Bjartsýn spá sóttvarnalæknis rættist ekki

Kór­ónu­veirusmitum hefur fjölgað mikið und­an­farna daga og var boðað óvænt til blaða­manna­fundar almanna­varna í dag vegna þessa. Sótt­varna­læknir segir að það muni ekki skila neinu að leita að söku­dólgi.

Þórólfur Guðnason sóttvarnalæknir.
Þórólfur Guðnason sótt­varna­læknir. Mynd: Lögreglan

Þórólfur Guðnason sótt­varna­læknir sagði á blaða­manna­fundi Almanna­varna í dag að hann hefði verið bjart­sýnn í gær að verið væri að ná utan um far­ald­ur­inn. „Sú bjart­sýna spá mín hefur ekki ræst.“ Hann skoðar nú að leggja það til við heil­brigð­is­ráð­herra að herða tak­mark­anir.

Fram kom í fréttum í morgun að sjö­tíu og fimm ein­stak­lingar hefðu greinst með kór­ón­u­veirusmit inn­­an­lands í gær og var um helm­ingur í sótt­kví við grein­ingu. Und­an­farna fjóra daga hafa því 128 smit greinst inn­­an­lands.

Sótt­varna­læknir sagði á fund­inum að þessi vöxtur væri þó ekki óvæntur þar sem talað hefði verið um að slíkar bylgjur myndu koma upp af og til. „Það hefur ber­lega komið í ljós að það þarf lítið til til þess að veiran breiði úr sér – og breið­ist milli ein­stak­linga.“

Að leita að sökudólgi mun ekki skila neinu

Ástæður fyrir þess­ari bylgju, eru að hans mati, vafa­laust margar. „Í grunn­inn er hægt að segja að allar þær til­slak­anir sem við höfum verið að grípa til, bæði til­slak­anir í sótt­vörnum hjá okkur sem ein­stak­lingum og opin­berar til­slak­anir sem hafa verið í gangi hafa vafa­laust leitt til þess að veiran á hægar um vik til að dreifa sér því í grunn­inn vitum við hvernig þessi veira berst á milli manna.“

Þórólfur telur rétt að vara við því núna að fara að leita að söku­dólgi – þetta sé það sem aðrar þjóðir eru einnig að ganga í gegnum. Jafnvel sé von á annarri bylgju eftir að nið­ur­lögum þess­arar hefur verið ráðið.

„Það að fara að leita að ein­hverjum söku­dólgi mun ekki skila okkur neinu í þeirri bar­áttu sem við þurfum að heyja núna á næst­unni.

Við þurfum að minna okkur á það að við höfum staðið í þessu saman til þessa og það hefur skilað okkur góðum árangri, til dæmis fyrr í vetur. Það mun skila okkur góðum árangri áfram,“ sagði sótt­varna­læknir.

Jákvætt að enginn sé alvarlega veikur

Hið jákvæða á þessum tíma­punkti, að hans sögn, er að eng­inn sé alvar­lega veikur á sjúkra­húsi en hann minnti á að þeir sem væru að veikj­ast núna væru yngra fólk sem veik­ist að jafn­aði ekki eins og eldri ein­stak­lingar eða ein­stak­lingar með und­ir­liggj­andi vanda­mál.

„Það er alveg eins lík­legt að mikil útbreiðsla meðal yngra fólks geti síðan á end­anum smit­ast yfir í eldri ein­stak­linga sem gætu þá veikst alvar­lega,“ sagði hann.

Þá minnti hann á í þessu sam­hengi að alvar­leg veik­indi kæmu yfir­leitt ekki fram fyrr en um viku eftir byrjun ein­kenna, þannig að „við gætum eftir að sjá alvar­leg ein­kenni á næstu dögum eða næstu vikum“.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár