Óvænt úrslit og óttinn við Trump

Donald Trump mælist lík­leg­astur til að vinna í næstu umferð for­vals repúblik­ana í Banda­ríkj­unum. Á meðan bít­ast Bernie Sanders og Hillary Clinton um hylli kjós­enda demókrata. Bryndís Ísfold lítur á stöð­una fyrir kosn­ingar á morgun.

Clinton og Sanders ræða málin í kappræðum á CNN-sjónvarpsstöðinni í síðustu viku.
Clinton og Sanders ræða málin í kapp­ræðum á CNN-sjón­varps­stöð­inni í síð­ustu viku.

Baráttan um útnefn­ingu flokk­anna fyrir for­seta­kosn­ing­arnar í Banda­ríkj­unum tók óvænta stefnu í síð­ustu viku, þegar Bernie Sanders vann Michigan, þvert á allar kann­anir þar sem Hillary Clinton hafði verið spáð stórum sigri. Slík skekkja í for­seta­for­vali hefur ekki sést síðan for­seta­fram­bjóð­and­inn Gary Hart vann Walter Mondale árið 1984, segja frétt­skýrendur sem voru gap­andi af undrun í kosn­inga­vökum kvölds­ins.

Clinton hefur þó tölu­vert for­skot á Sanders, en hún er nú með 760 atkvæði eða kjör­menn og hann 546 en þá eru ótaldir svo­kall­aðir ofur­kjör­menn sem eru atkvæði sem bæt­ast við á lands­fundi flokks­ins í júlí. Þessi hluti er um 15 pró­sent af öllum atkvæð­unum og er í höndum elítu flokks­ins. Ofur­at­kvæð­unum hefur nær öllum verið merkt Hillary Clinton, en það gæti hins vegar breyst fyrir lands­fund­inn þó það sé óal­gengt að ofur­kjör­menn­irnir skipti um skoðun. Til að tryggja útnefn­ing­una þarf annar fram­bjóð­and­inn að fá 2,383 atkvæði.

Sigur Sanders í Michigan á þriðju­dag, þar sem hann fékk 50 pró­sent atkvæða og hún 48 pró­sent, er rak­inn til átaka í kapp­ræðum um frí­versl­una­samn­inga sem Sanders hefur talað gegn. Margir í Michigan telja að fram­leiðslu­störf í rík­is­ins hafi af þeim sökum flust erlendis. Hillary hefur á stjórn­mála­ferli sínum stutt marga af þessum frí­versl­un­ar­samn­ingum og tók­ust þau á um þessi mál í kapp­ræðum í vik­unni fyrir kosn­ing­arnar. Á sama tíma hefur Hillary gagn­rýnt Sanders fyrir að kjósa gegn því að bjarga bíla­fram­leið­endum frá gjald­þroti þegar það kom til kasta öld­unga­deild­ar­þings­ins.

Útgöngu­spár sýna að yngri kjós­endur skil­uðu sér í mun meira mæli á kjör­stað ólíkt því sem hefur verið raunin í mörgum öðrum ríkjum sem kosið hefur verið í hingað til. Sanders nýtur mik­ils stuðn­ings meðal ungs fólks af báðum kynjum á meðan stuðn­ingur Hillary er meiri meðal eldri kjós­enda, sem að jafn­aði skila sér betur á kjör­stað. Kosn­ing­arnar í Michigan voru með þeim hætti að hægt var að mæta og kjósa án þess að þurfa að skrá sig sem stuðn­ings­mann flokks­ins fyr­ir­fram, en margt bendir til þess að það hafi haft áhrif á hversu margir tóku þátt.

Áhuga­vert er að sjá að 71 pró­sent þeirra sem telja sig óháða en kusu í fovali demókrata kusu Bernie Sanders. Útgöngu­spár sýna líka að Sanders nýtur nú stuðn­ings mun stærri hóps svartra kjós­enda en í flestum öðrum ríkjum þar sem Clinton hefur haft yfir­gnæf­andi stuðn­ing þess hóps. Í Michigan hafði Sanders stuðn­ing 34 pró­sent kjós­enda sem ekki eru hvítir.

Aug­lýs­ingar hjá Sanders hafa borið þess merki að hann sækir stíft á hóp spænsku­mæl­andi kjós­enda, en fyrr í vik­unni gaf her­ferð hans út áhrifa­mikla stutt­mynd sem vakti nokkra athygli. Myndin fjallar um konu sem starfar á iðn­að­ar­bónda­býli í Flórída og segir frá bar­áttu hennar fyrir bættum kjörum sem Bernie Sanders tók beinan þátt í og tókst að hafa áhrif á kjör starfs­mann­anna, með því að beita sér í öld­unga­deild­inni. Stutt­myndin var sýnd í sjón­varp­stöð­inni UNIVISION sem er spælsku­mæl­andi stöð en þar fóru kapp­ræð­urnar fram á mið­viku­dag.

Það vakti einnig athygli í vik­unni að Hillary Clinton lét hafa eftir sér að því fyrr sem demókratar myndu velja hana sem næsta for­seta­fram­bjóð­anda demókrata því fyrr væri hægt byrja að berja á repúblikönum. Þessi ummæli fóru illa í suma en sér­fræð­ingar í kosn­inga­fræðum hafa einnig bent á að reynslan sýni að því lengri sem for­völ flokk­anna vara, þeim mun meira spenn­andi verði kosn­ing­arnar á end­anum, svo fremi sem fram­bjóð­end­urnir skaði ekki hvern annan sem er langt í frá að vera raunin hjá demókrötum.

Að sama skapi voru hörð við­brögð við svörum Sanders í kapp­ræð­unum þegar hann var spurður um kyn­þátta­for­dóma. Þar sagði hann meðal ann­ars: „Þegar þú ert hvítur, þá veistu ekki hvernig það er að búa í gettói. Þú veist ekki hvernig það er að vera fátækur. Þú veist ekki hvernig það er að vera áreittur þegar þú ert að ganga úti á götu eða vera dreg­inn út úr bíl“. Þótti mörgum það bera vott um ras­isma að telja að þeir sem væru fátækir væru allir svartir en raunin er sú að tæpar 48 millj­ónir Banda­ríkja­manna búa við fátækt og þar af hafa tæpar 11 millj­ónir svartan hör­und­s­lit; það nemur 26 pró­sent allra svartra íbúa í land­inu.

Stuðn­ings­menn Sanders segja að ummælin hafi verið tekin úr sam­hengi og ekk­ert sé við þau að athuga. Dæmi hver fyrir sig, ummælin má finna hér.

En óvæntu úrslitin í Michigan hafa blásið nýjum bar­áttu­eldi í brjóst stuðn­ings­manna Sanders og eftir sig­ur­inn voru aug­lýs­ingar og skila­boð frá kosn­inga­bar­átt­unni alveg skýr; þau eru ekk­ert að fara að pakka saman. Frá upp­hafi, hefur áhersla hans á að hann sé eini fram­bjóð­and­inn sem ekki tekur fjár­magn frá stórum hags­muna­að­ilum og sé laus við allar teng­ingar við Wall Street, verið í for­grunni. Þessi umræða færir stöðugt kast­ljósið á þá stað­reynd að Clinton hefur þegið háar upp­hæðir frá fyr­ir­tækjum á Wall Street sem skaðar hana ef marka má það sem fólk nefnir sem ástæðu í könn­unum fyrir því hvers vegna það velur Sanders umfram hana. Sander hefur und­an­farna viku talað mikið um mann­úð­legar leiðir til að takast á við 11,5 millj­ónir ólög­legra inn­flytj­enda í land­inu og það sama hefur Hillary Clinton gert. Hún nýtur sem fyrr mik­ils stuðn­ings meiri­hluta svartra kjós­enda og virð­ist hafa sterk­ari stöðu meðal kjós­enda af rómönskum upp­runa í flestum ríkjum.

Það er ótrú­legt til þess að hugsa að fyrir ári síðan töldu mjög fáir að sós­í­alisti frá Brooklyn á átt­ræð­is­aldri gæti heillað svo stóran hóp kjós­enda. Hvað þá að hann ætti rauveru­legan mögu­leika á að vinna útnefn­ingu demókrata. Eitt er víst að sós­í­al­ism­inn er kom­inn til að vera í banda­rískum stjórn­málum og þó enn sé mjög á bratt­ann á sækja ætlar Sanders sér að næla sér í útnefn­ingu demókrata.

Næsta umferð forvalsins í fimm stórum ríkjum

Á morgun, þann 15. mars, er stór dagur í for­vali demókrata. Þá verður kosið í fimm stórum ríkjum og í pott­inum eru 792 atkvæði (kjör­menn). Í öllum til­fellum er um að ræða hlut­falls­lega skipt­ingu eftir atkvæða­magni. Flórída (246), Illionis (182), Missouri (84), Norður-Karólína (121) og Ohio (159). Ef marka má kann­anir (sem best er að taka með fyr­ir­vara eftir útkom­una í Michigan) þá mælist Clinton með mun meiri stuðn­ing í öllum ríkj­unum. Hún er með ríf­lega 60 pró­sent stuðn­ing í Flórída, 63 pró­sent í Illinois, 55,7 pró­sent í Norður-Karólínu, 56,3 pró­sent í Ohio.

En eins og nið­ur­stöð­urnar í Michigan sýndu þá getur allt gerst. Áhuga­fólk um spár getur leikið sér að því að giska á útkom­una úr næstu for­völum og unnið til stiga reyn­ist ágiskunin rétt. Á vef banda­rísku frétta­stof­unnar CNN er búið að stilla upp spáleik.

Cruz sækir á forskot Trump

Á sama tíma hefur for­skot Donald Trump hjá repúblikönum minnkað og sækir Ted Cruz mikið á. Trump heldur for­ystu með 461 kjör­mann, Cruz hefur 360, Rubio 154 og Kaisch 54. Til að vinna þarf minnst 1237 kjör­menn. Í síð­ustu viku sigr­aði Trump í þremur af þeim fjórum ríkjum sem kosið var í: Hawaí, Michigan og Miss­issipi. Cruz hafði öruggan sigur í Idaho en fékk um þriðj­ung atkvæða í þeim ríkjum sem Trump sigr­aði í og þótti með því sýna að hann væri sá fram­bjóð­andi sem lík­leg­astur væri til að fella Trump. Met­kjör­sókn hjá repúblikönum í sumum ríkjum á sama tíma og kjör­sókn hjá demókrötum er fremur lítil vekur margar spurn­ingar og eykur á ótta þeirra sem vilja alls ekki sjá Trump sem næsta for­seta Banda­ríkj­anna. Fyrir marga kjós­endur sem ótt­ast að Trump gæti orðið for­seti er hins vegar ekki mikil huggun í því að Cruz gæti einnig orðið for­seti lands­ins því Curz þykir með eins­dæmum íhald­samur, nátengdur teboðs­hreyf­ingu repúblikana­flokks­ins sem Sarah Palin hefur verið í for­svari fyrir. 

En stuðn­ing­ur­inn við Trump virð­ist stöð­ugur og þó hann glími við tölu­verða sam­keppni um útnefn­ing­una sýna kann­anir mik­inn og stöðugan stuðn­ing við Trump. Það er því áhuga­vert að skoða hvaða hópur það er sem stendur að baki honum. Í síð­ustu viku komu fram fjöl­mörg dæmi í ræðum og ritum Trumps sem bera þess merki að hann sé sekur um að sýna af sér ras­isma. Alhæf­ingar um inn­flytj­endur og ofbeld­is­full ummæli hans um þá sem og mót­mæl­endur sem hafa mætt á fram­boðs­fundi hans, hafa vakið athygli. Þar hefur hann sagt blákalt að það ætti að berja þá sem mæta til að mót­mæla honum og hvatt fólk til að gera það. 

Mynd­bands­upp­tökur hafa verið sýndar af stuðn­ings­mönnum Trumps á fram­boðs­fundum, sem að jafn­aði eru allir hvítir, slá til mót­mæl­enda sem í sumum til­fellum eru svartir eða fólk ættað frá rómönsku amer­íku, eru mjög óhugna­legar. Um helg­ina sauð upp úr milli mót­mæl­enda og þeirra sem biðu eftir að kom­ast á fund með Trump fyrir utan ráð­stefnu­höll í Chicago og til átaka kom. Fundinum var því frestað og ótt­ast margir að þetta sé aðeins byrj­unin á því sem koma skal næstu mán­uði. Að sama skapi virð­ast mót­mælin gegn Trump þétta hóp kjós­endar hans enn frekar. 

Á fundi í vik­unni bað hann fólk að rétta upp hægri hönd sína og lofa að styðja við stefnu­mál hans og minntu myndir af fund­inum óneit­an­lega á það hvernig var heilsað að sið nas­ista í seinni heim­styrj­öld­inni. Þessi sam­lík­ing hefði lík­lega ekki orðið til á öðrum fram­boðs­fundum, en sú stað­reynd að Trump hefur talað fyrir því að banna múslimum að heim­sækja landið, henda út úr land­inu millj­ónum ólög­legra inn­flytj­enda og láta skrá banda­ríska múslima, eru ógn­vekj­andi og minna óneit­an­lega áherslur nas­ista í upp­hafi fjórða ára­tugs­ins í Þýska­landi. 

Frank Luntz, mál­fræð­ingur og sér­legur frasa­höf­undur repúblik­ana, tví­taði mynd frá fundi Trump í vik­unni og spáði því að fram­bjóð­and­inn myndi örugg­lega ekki gera þetta aftur:


Það vekur furðu og skelf­ingu margra kjós­enda að svo stór hópur lands­manna skuli enn styðja Trump þrátt fyrir áherslur hans, en einnig í ljósi þess að hann hefur sýnt að hann hefur tak­mark­aða þekk­ingu á mörgum málum. Hann virð­ist hafa ein­stakt lag á því að halda blaða­mönnum (und­ir­rit­aðri með­taldri) upp­teknum við að bíða eftir næstu hneykslis­sprengju. Hann veit hvernig hann heldur sér í sviðs­ljós­inu með því að vera algjör­lega á skjön við það sem hinn svo­kall­aði pólítíski rétt­trún­aður kallar á. Hvað sem hann segir eða gerir, gerir hann ávallt án þess að biðj­ast afsök­unar á fram­ferði sínu. Hann ein­fald­lega margend­ur­tekur hvað hann sé frá­bær og hvað hann eigi að baki frá­bær afrek í við­skiptum. Hann end­ur­tekur sífellt hvað hann er ríkur og hvernig hann muni sjá til þess að „Ameríka verði frá­bær á ný“. En hann slær einnig á strengi sem Sanders hefur líka fók­userað á, eins og að vera laus við að þiggja fé frá Wall Street, að vera ekki óska­fram­bjóð­andi elít­unnar, að skilja að fólk sé pirrað og treysti ekki hinum hefð­bundna stjórn­mála­manni í Washington. Það er því ekki óal­gengt að sjá í könn­unum að óákveðnir segi að þeir muni annað hvort kjósa Sanders eða Trump, eftir því hvor fái útnefn­ing­una, þó í raun sé him­inn og haf á milli þeirra í flestum öðrum stefnu­málum.

Greina­höf­undar tíma­rits­ins The Atlantic hafa rýnt í þá sem hafa hingað til kosið Trump í for­völum ríkj­anna og eru fjögur megin ein­kenni sem flestir þessir kjós­endur eiga sam­merkt. Meðal kjós­enda hans hafa mun fleiri enga háskóla­menntun miðað við stuðn­ings­menn ann­arra fram­bjóð­enda. Þegar kjós­endur Trump eru spurðir í könn­unum hvort þeir upp­lifi að fólk eins og það hafi ekki neitt um málin að segja (e. People like me don’t have any say) segj­ast 86,5 pró­sent þeirra vera sam­mála þv. Til sam­an­burðar svara aðeins 7 pró­sent kjós­enda Clinton og 8 pró­sent kjós­enda Sanders því sama.

Þeir sem vilja sjá leið­toga sem sýnir af sér vald­boðs­hneigð (e. aut­horit­ari­an­ism) sem svarar ótta þessa hóps um ytri ógn, eru lík­legri en aðrir að kjósa Trump. En Trump hefur sjálfur sagt að verði hann for­seti muni hann láta drepa fjöl­skyldur ISIS-liða, hann muni láta loka moskum, elta uppi börn ólög­legra inn­flytj­enda og fyr­ir­skipa frek­ari óhugnað. Nýverið benti Nate Cohn á í grein í New York Times, að þegar stuðn­ingur Trump er skoð­aður land­fræði­lega sést að sterkasti stuðn­ings­hópur hans liggur frá Gulf Coast og eftir Appalachian-fjöll­unum til New York. Fyrir tæpu ári birt­ist einnig fræði­grein þar sem tengsl milli dauða svartra ein­stak­linga og birt­ingar svæð­is­bund­ins ras­isma á inter­net­inu voru rann­sökuð. Þar sést að tengslin eru sterk­ust á þessu svæði í eystri ríkjum Banda­ríkj­anna.

Kortið sýnir styrk tengsla milli rasískra ummæla og leitarorða á internetinu og dánartíðni svartra.
Kortið sýnir styrk tengsla milli rasískra ummæla og leit­ar­orða á inter­net­inu og dán­ar­tíðni svartra.

Á morgun verður einnig kosið hjá repúblikönum í Flórída, Illinois, Missouri, Norður-Karólínu, Ohio og á Norður-Mariana eyjum. Það sem er óvenju­legt við þessi for­völ er að í flestum þeirra er atkvæð­unum skipt hlut­falls­lega milli fram­bjóð­enda. Í Norður-Karólínu er annað fyr­ir­komu­lag en þar tekur sig­ur­veg­ar­inn alla eða flesta kjör­menn sem ríkið á.

Þar sem þessi ríki eru öll í stærri kant­inum og gefa því af sér marga kjör­menn geta nið­ur­stöður úr þessum ríkjum hæg­lega breytt stöð­unni hjá repúblikönum. Ef rýnt er í spá Nate Silvers, sem heldur úti vefnum Five Thirty Eight, um það hver er lík­leg­astur til að sigra þessi ríki miðað við kann­anir síð­ustu daga hefur Trump vinn­ing­inn. Í Flórída eru 85 pró­sent líkur á sigri Trump. Aðeins 15 pró­sent líkur eru á að Marco Rubio, öld­unga­deilda­þing­maður rík­is­ins, vinni þar sam­kvæmt spánni. Þá eru 57 pró­sent líkur á sigri Trump í Illinois, 73 pró­sent líkur í Norður-Karólínu og 69 pró­sent líkur á sigri Kasich í Ohio, þar sem hann er nú rík­is­stjóri. Minnst afger­andi eru kann­anir í Illinois og gæti verið áhuga­vert að sjá hvort Rubio, sem mælist með 29 pró­sent líkur á sigri gegn 57 pró­sent líkum Trumps, nái ein­hverju flugi á loka­sprett­inum. Í ljósi þess að í þessum ríkjum eru regl­urnar með þeim hætti að sá sem sigrar fær alla eða stærsta hluta kjör­manna gæti þessi næsta hrina for­vala gert Trump á algjör­lega ósigr­andi í for­vali repúblik­ana.

Hvað tekur við þá er ómög­legt að spá fyrir um en það er alveg ljóst að hvorki elíta repúblikana­flokks­ins né stórir hags­muna­að­ilar í sam­fé­lag­inu eru til­búin til að sætta sig við hann sem fram­bjóð­anda repúblik­ana. Þá er spurn­ing hvort þessir aðilar leggi lóð sín á voga­skálar demókrata, and­stæð­inga sinna. Ef sagan hefur kennt okkur eitt­hvað, þá er það að ólík­leg­ustu aðilar ger­ast banda­menn þegar þeir geta sam­ein­ast um það hver sé óvin­ur­inn.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár