Fílaeigendur í fýlu

Fyrir nokkrum dögum náðu dönsku stjórn­ar­flokk­arnir ásamt Sós­í­alde­mókrötum og Danska þjóð­ar­flokknum sam­komu­lagi um að fílar, sæljón og sebra­hestar verði bönnuð í dönskum fjöl­leika­húsum. Fjórir fílar sem tvö fjöl­leika­hús eiga fá þó tíma­bundið „starfs­leyfi“.

Upphaf sirku­s­anna er rakið til þess að árið 1768 aug­lýsti breski reið­skóla­kenn­ar­inn Philip Astley sýn­ingu sem hann kall­aði „Kúnstir á hest­baki“. Philip Astley var fyrr­ver­andi her­maður og þekkti vel til hesta. Sýn­ing­arnar fóru fram í suð­ur­hluta Lundúna. Astley hafði reiknað út að heppi­leg­ast væri að hafa svæðið hring­laga, um það bil þrettán metra í þver­mál.

Þegar hest­arnir væru látnir hlaupa í hring nýtt­ist mið­flótta­aflið knap­anum best til að sýna „kúnst­irnar“. Astley kall­aði sýn­ing­ar­svæðið Amp­hitheatre en Charles Hughes, keppi­nautur hans í sýn­ing­ar­hald­inu, nefndi sitt svæði, sem hann opn­aði 1782, Royal Circus, með til­vísun í hinn forna leik­vang í Róm, Circus Maximus (Circo Massimo).

Orðið circus (á dönsku cirkus, sirkus eða fjöl­leika­hús á íslensku) fest­ist fljótt í sessi. Sýningar Astley og síðar Hughes og ann­arra urðu mjög vin­sælar og ein­skorð­uð­ust ekki við „kúnstir á hest­baki“. Hundar, fuglar, fílar, sæljón, ljón og tígris­dýr, áður­nefndir hestar og fleiri dýra­teg­undir (ekki þó kettir sem láta lítt að stjórn) hafa lengstum þótt ómissandi hluti sýn­ing­anna ásamt fim­leika­fólki, töfra­mönnum og trúðum.

Fyrstu sirkussýningar í Danmörku

Ekki eru til nákvæmar upp­lýs­ingar um fyrstu sirkus­sýn­ingar í Danmörku en vitað er að árið 1799 kom þangað breskur sirkus­flokkur og sýndi listir sínar. Tívolíið í Kaup­manna­höfn var opnað árið 1843 og tólf árum síðar var reist þar „sirku­stjald“. Nokkru fyrr hófust sirkus­sýn­ingar á Dyrehavs­bakken (Bakken) sem er elsti skemmti­garður í heimi, opn­aður 1583. Danir hafa lengstum verið miklir áhuga­menn um sirkus og Sirkus­bygg­ingin í Kaup­manna­höfn er sögð sú elsta í heimi, byggð 1886 en síðar end­ur­byggð eftir bruna. Bygg­ingin er friðuð, var lengst af ein­göngu notuð til sirkus­sýn­inga en er í dag notuð til margs konar sýn­inga- og skemmt­ana­halds.

Sirkusum fækkar

Á nítj­ándu öld og langt fram eftir þeirri tutt­ug­ustu nutu sirkusar mik­illa vin­sælda víða um heim. Sirkus­flokka, sem ferð­uð­ust um, var beðið með spenn­ingi enda úrval afþrey­ing­ar­efnis minna en síðar varð. Á allra síð­ustu ára­tugum hefur sirkus­flokkum í flestum löndum fækkað, nokkrir af elstu og þekkt­ustu sirkusum í Danmörku hafa lagt upp laupana, Cirkus Benneweis þeirra þekkt­astur.

Ástæður þess að sirkusum hefur fækkað eru fyrst og fremst þær að allur til­kostn­aður hefur auk­ist mjög en aðsóknin á sama tíma dalað. Aðdrátt­ar­aflið er ekki það sama og áður var. Í dag eru sex sirkusar í Danmörku, þeir eiga það sam­eig­in­legt að starfa ein­ungis á sumrin og ferð­ast þá um landið þvert og endi­langt. Cirkus Arena er langstærstur, hefur sæti fyrir 1750 áhorf­endur í tjald­inu.

Breytt viðhorf gagnvart dýrunum

Áratugum saman voru dýrin eitt helsta aðdrátt­ar­afl sirku­s­anna. Að sjá tígris­dýr stökkva gegnum log­andi hring, sæljónin dansa með stóran bolta á trýn­inu, fíl­ana leika þung­lama­legar listir sínar og hundana með sínar hunda­kúnstir. Allt þetta og margt fleira var það sem mörgum, einkum yngri kyn­slóð­inni þótti mest spenn­andi við sirkus­heim­sókn­ina. Lengi vel veltu fáir fyrir sér hlut­skipti dýr­anna sem máttu búa við ófrelsi og oft á tíðum lakar aðstæður, allt þeirra líf langt frá því sem eðli­legt gæti talist.

Um og upp úr miðri síð­ustu öld óx dýra­vernd­ar­sam­tökum víða um heim fiskur um hrygg og þau beindu sjónum sínum meðal ann­ars að sirkusum. Árið 1962 tóku gildi breyt­ingar á dönskum dýra­vernd­ar­lögum, með þeim var lagt bann við að rán­dýr og flest villt dýr skyldu bönnuð í sirkusum. Fílar voru und­an­skildir og sömu­leiðis sæljón og sebra­hestar. Þetta hafði í för með sér miklar breyt­ingar á starf­semi sirku­s­anna sem nú lögðu æ meiri áherslu á skemmti­at­riði þar sem dýr komu ekki við sögu.

Húsdýr áfram leyfð og fjórir fílar á undanþágu

Samkvæmt sam­komu­lagi danskra þing­manna, og minnst var á í upp­hafi þessa pistils verða dýr, önnur en hús­dýr nú bönnuð í sirkusum í Danmörku. Þetta kom sirkus­höld­urum ekki bein­línis á óvart, hafði legið í loft­inu. Tveir danskir sirkusar eru með fíla sem taka þátt í sýn­ing­unum, þeir fá ótíma­bundna und­an­þágu til ,,starfa“. Cirkus Arena er með þrjá fíla, allt kýr. Þær heita Djungla, Jenny og Lara og eru í kringum þrí­tugt en fílar geta náð að minnsta kosti 70 ára aldri. Fjórði sirkus­fíll­inn í Danmörku er í eigu Cirkuz Trapez. Það er líka kýr, hún er 35 ára gömul og heitir Ram­boline, skírð eftir kvik­mynda­per­són­unni Rambo sem, eins og margir vita, var leik­inn af Sylv­ester Stallone. Þótt þessar fjórar fíla­frúr eigi, ef allt verður með felldu, enn langt líf fyrir höndum er ekki þar með sagt að þær verði áfram um ára­tuga­skeið í „sirkus­brans­anum“.

Tals­maður Cirkus Arena sagði í blaða­við­tali að þær Djungla, Jenny og Lara ættu ekki mörg ár eftir í sirku­snum „kannski fimm til sex“. Þær hafa yfir vetr­ar­mán­uð­ina verið leigðar til sirkuss á Ítalíu og eru því „í vinnu“ allt árið. Þegar Cirkus Arena fékk und­an­þág­una til að hafa fíl­ana áfram fylgdu því skil­yrði um betri umhirðu og aðbúnað og tals­maður sirkuss­ins sagði blaða­mönnum að þeir Arena menn væru fúlir yfir þess­ari aðfinnslu, fíl­arnir hefðu það gott „fyrir hönd fíl­anna erum við í fýlu“.

Ram­boline hjá Cirkus Trapez er hins­vegar í fríi allan vet­ur­inn, þá dvelur hún á bænda­býli við Sommer­sted á Jótlandi þar sem hún unir sér vel og eig­endur sirkuss­ins sjá um að hún stundi nauð­syn­lega lík­ams­rækt, haldi sér í formi. Ram­boline sjálf hefur tak­mark­aðan áhuga á rækt­inni en veit að alltaf leggst líkn með þraut, eftir rækt­ina fær hún nefni­lega stórt ban­anaknippi. Hún hefur verið í sirkus í þrjá ára­tugi. Eig­and­inn, Bernhard Kaselowsky segir að þegar dag­inn fari að lengja á vorin og fugla­söng­ur­inn eykst viti Ram­boline að nú fari „ver­tíðin“ að byrja.

Að þessu sinni verður fyrsta sýn­ing Cirkus Trapez 12. apríl.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár