Frásögn hásetans „alveg í takt“ við upplifun annarra háseta

Vara­for­maður Verka­lýðs­fé­lags Vest­firð­inga seg­ist ekki vita hvað yfir­vél­stjór­anum á Júlíusi Geir­munds­syni gangi til með því að segja það „bull“ sem háset­arnir upp­lifðu um borð.

Arnar Gunnar Hilmarsson, háseti á Júlíusi Geirmundssyni, sagði frá aðbúnaðinum um borð í viðtali við RÚV.
Arnar Gunnar Hilm­ars­son, háseti á Júlíusi Geir­munds­syni, sagði frá aðbún­að­inum um borð í við­tali við RÚV. Mynd: Skjáskot RÚV

Frásögn Arnars Gunnars Hilm­ars­sonar, háseta á frysti­skip­inu Júlíusi Geir­munds­syni er „alveg í takt“ við upp­lifun ann­arra háseta skips­ins af veiði­ferð­inni þar sem upp komu veik­indi sem reynd­ust vegna COVID-19. Yfir­vél­stjóri tog­ar­ans sagði í við­tali við Vísi í gær að hann kann­að­ist ekki við lýs­ingar um að skip­verjar hefðu verið skikk­aðir til að vinna veikir, að fjöl­miðla­bann hefði verið sett á og að margir hefðu veikst. „Þetta var ekk­ert svona,“ sagði yfir­vél­stjór­inn Þór Ólafur Helgason við Vísi. „Þetta eru ekki þræla­búðir. Það er eng­inn skikk­aður í vinnu veikur. Ég varð ekki var við alla þessa fár­veiku nema einn eða tvo og þeir voru inni og rek­inn inn þessi sem var veikastur.“

Þá sagði hann það „bull“ að ein­hver hefði verið sendur fár­veikur út að vinna. COVID-19 væri „grafal­var­legur sjúk­dómur“ en að menn yrðu að segja „satt og rétt frá. Ekki búa til ein­hverjar svona æsifréttir og koma með eitt­hvað eins og þetta hafi verið svaka­legur heragi,“ sagði yfir­vél­stjór­inn að auki.

[adspot]

Spurður út í þessi ummæli yfir­vél­stjór­ans seg­ist Bergvin Eyþórs­son, vara­for­maður Verka­lýðs­fé­lags Vest­firð­inga, sem hefur mál háset­anna til með­ferðar, ekki vita hvað honum gangi til. „Við fund­uðum með háset­unum og það sem Arnar sagði er alveg í takt við það sem allir í hópnum sögðu okkur.“

Bergvin segir þetta því ekki aðeins upp­lifun Arnars heldur allra hinna háset­anna.

[links]Háset­arnir hafa að sögn Bergvins tekið hina „óvægnu og oft á tíðum ósmekk­legu umræðu“ á sam­fé­lags­miðlum um málið nærri sér. „Þeir eru þegar búnir að eiga mjög erf­iða tíma, túr­inn og eftir að þeir komu í land. Þetta er ekki til að bæta ástandið hjá þeim.“

Verka­lýðs­fé­lag Vest­firð­inga birti í morgun til­kynn­ingu á vef­síðu sinni þar sem fram kom að stað­reyndir máls­ins einar og sér væru alvar­legar, „en það að kasta fram óábyrgum athuga­semdum og fara í per­són­u­árásir gera mál­inu ekki gagn á neinn hátt og eru frekar til þess fallnar að leiða umræð­una frá stað­reynd­unum og skapa úlfúð í okkar sam­fé­lagi.“ Þess vegna óskar Verka­lýðs­fé­lag Vest­firð­inga eftir því að við allir tjái sig með ábyrgum hætti og sýni hátt­vísi.

„Við erum þarna að vísa í almenn komment um málið,“ segir Bergvin við Kjarnann í morgun. „Við erum ekki að hnýta í neinn ákveð­inn en við viljum halda þessu á mál­efna­legum grunni. Það er eina leiðin til að vinna svona mál en ekki með upp­hróp­unum.“

Í morgun hófst fundur for­svars­manna Verka­lýðs­fé­lags Vest­firð­inga og ann­arra félaga sem skip­verjarnir á Júlíusi Geir­munds­syni til­heyra. Full­trúar félaga skip­stjóra, stýri­manna og vél­stjóra eru m.a. á þeim fundi. „Við erum að ráða ráðum okkar,“ segir Bergvin um fram­hald máls­ins.

Málið sé litið mjög alvar­legum augum hjá félag­inu og verði unnið áfram með hags­muni félags­manna að leið­ar­ljósi.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár