Segir málið hafa skaðað samskipti sjómanna og útgerðarmanna

Heiðrún Lind Mart­eins­dóttir, fram­kvæmda­stjóri Samtaka fyr­ir­tækja í sjáv­ar­út­vegi, segir í yfir­lýs­ingu að Hrað­fryst­húsið-Gunnvör hafi ekki farið að leið­bein­ingum um mögu­legt smit á sjó. Heiðrún er sögð skráður höf­undur skjals sem HG sendi fjöl­miðlum í dag.

Heiðrún Lind Marteinsdóttir, framkvæmdastjóri Samtaka fyrirtækja í sjávarútvegi.
Heiðrún Lind Mart­eins­dóttir, fram­kvæmda­stjóri Samtaka fyr­ir­tækja í sjáv­ar­út­vegi. Mynd: RÚV/Skjáskot

Heiðrún Lind Mart­eins­dóttir, fram­kvæmda­stjóri Samtaka fyr­ir­tækja í sjáv­ar­út­vegi, segir að um borð í Júlíusi Geir­munds­syni hafi ekki verið farið að útgefnum leið­bein­ingum um við­brögð ef grunur um smit af kór­ónu­veirunni vaknar. Leið­bein­ing­arnar voru samdar sam­eig­in­lega af SFS og stétt­ar­fé­lögum sjó­manna í sam­starfi við emb­ætti land­læknis og voru þær sendar á útgerð­ar­fyr­ir­tækin.

„Um borð í skipum er nánd mikil á milli manna og veik­indi geta hæg­lega borist út, eins og því miður sýndi sig í þessu til­felli,“ skrifar Heiðrún Lind í yfir­lýs­ingu. „Í til­felli Júlíusar Geir­munds­sonar var ekki farið eftir þessum leið­bein­ingum. Samkvæmt þeim hefði átt að hafa sam­band við Land­helg­is­gæsl­una þegar veik­inda varð vart og þar með hefði málið verið komið í réttan far­veg. Á þessum mis­bresti verða skip­stjóri og útgerð skips­ins að axla ábyrgð.“

Hrað­frysti­húsið-Gunnvör hf., sem gerir út Júlíus Geir­munds­son, sendi frá sér yfir­lýs­ingu í morgun þar sem beðist er afsök­unar á því að ekki hafi verið haft sam­band við Gæsluna eins og leið­bein­ingar gerðu ráð fyrir. Einnig kom fram að útgerð­inni þætti „þung­bært að sitja undir ásök­unum um að van­rækja heilsu og öryggi sjó­manna“. Þessi yfir­lýs­ing var birt á vef útgerð­ar­innar og þar sett fram í nafni Einars Vals Krist­jáns­sonar, fram­kvæmda­stjóra HG. Vísir greinir hins vegar frá því að í word-skjali sem sent hafi verið með yfir­lýs­ing­unni á suma fjöl­miðla í morgun, hafi Heiðrún Lind, fram­kvæmda­stjóri SFS, verið skráður höf­undur skjals­ins.

´[links]Í yfir­lýs­ingu SFS sem fylgdi í kjöl­farið í nafni Heiðrúnar Lindar, talar hún um mik­il­vægi þess að sam­skipti útgerða og sjó­manna séu góð, sér­stak­lega þegar í hlut eigi frysti­skip sem eru lengi á sjó. „Þetta mál hefur skaðað þessi sam­skipti. SFS hyggj­ast ræða málið við for­ystu­menn stétt­ar­fé­laga sjó­manna á næstu dögum. Mik­il­vægt er að greina hvað fór úrskeiðis og læra af því. Raunir þess­ara skip­verja á Júlíusi Geir­munds­syni mega ekki end­ur­taka sig á íslenskum skipum.“

Kristján Þór Júl­í­us­son sjáv­ar­út­vegs­ráð­herra var spurður út í málið í Silfrinu í morgun og sér­stak­lega um þátt SFS í því og nýlegan sam­fé­lags­sátt­mála sem sjáv­ar­út­vegs­fyr­ir­tæki, m.a. Hrað­frysti­húsið-Gunnvör skrifar undir. Í sátt­mál­anum er sér­stak­lega talað um örygg­is­mál sjó­manna og spurði Fanney Birna Jóns­dóttir, stjórn­andi Silf­urs­ins, ráð­herr­ann hvort að hægt væri að taka plaggið alvar­lega í ljósi þess sem nú hefur komið á dag­inn. „Ég held að það sé ágætt að taka þetta mál sem dæmi um það hvers vegna Samtök fyr­ir­tækja í sjáv­ar­út­vegi eru að setja sér stefnu í þessum efnum. Og maður hefði ályktað sem svo, og ég ætla ekk­ert að draga það í efa, að það sé fullur vilji sam­tak­anna að gera brag­ar­bót í þessum efnum. Það er virð­ing­ar­vert að sam­tökin setji sér ein­hverja stefnu. Ég ætla þá að vona að það verði dreg­inn ein­hver lær­dómur af þessu máli, að það verði próf­mál í þá veru að bæta með­ferð þess­ara mála. Því á engan hátt getur þetta mál, sem að sem hefur leitt til þess­arar miklu umræðu og öllum er brugðið sem fylgst hafa með, getur ekki verið for­dæmi fyrir nokkurn skap­aðan hlut í góðum sam­skiptum eða sam­fé­lags­á­byrgð.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár