Áhöfnin lokuð „inni í stálkassa“

Sjáv­ar­út­vegs­ráð­herra seg­ist sleg­inn yfir því sem gerð­ist um borð í frysti­skip­inu Júlíusi Geir­munds­syni. Hann segir aug­ljóst að farið hafi verið frek­lega á svig við þau grund­vall­ar­at­riði sem snú­ast um öryggi og vel­ferð áhafnar.

Kristján Þór Júlíusson sjávarútvegsráðhera.
Kristján Þór Júl­í­us­son sjáv­ar­út­vegs­ráð­hera. Mynd: Bára Huld Beck

Kristján Þór Júl­í­us­son sjáv­ar­út­vegs­ráð­herra segir mál skip­verj­anna á Júlíusi Geir­munds­syni, sem Hrað­frysti­húsið-Gunnvör gerir út, ömur­legt og telur ljóst að frek­lega hafi verið farið á svig við grund­vall­ar­at­riði sjó­mennsk­unnar sem snú­ast um að vernda heilsu og öryggi áhafn­ar­innar. „Fyr­ir­tækið hefði átt að taka á þessu máli með allt öðrum hætti en gert var.“

Þetta sagði ráð­herr­ann í Silfrinu í dag.

Meiri­hluti áhafn­ar­innar er með COVID-19 og hefur lýst skelfi­legum aðstæðum sem sköp­uð­ust um borð er einn af öðrum fór að veikj­ast. Skip­verjar segj­ast hafa verið látnir vinna veikir og sumir hafi veikst alvar­lega, fengið háan hita og glímt við önd­un­ar­erf­ið­leika.

„Ég þekki það af eigin reynslu sem sjó­maður og skip­stjóri um hvað er að tefla þarna,“ sagði Kristján Þór. Markmið hverrar veiði­ferðar íslensks fiski­skips sé það að sigla úr höfn og koma áhöfn­inni heilli heim. „Við þessar aðstæður skiptir öryggi og vel­ferð sjó­manna um borð höf­uð­máli. Það er alveg aug­ljóst að heilsa og vel­ferð skip­verja leikur lyk­il­hlut­verk. Og af allri umfjöllun um þetta ömur­lega mál er alveg aug­ljóst, öllum sem á vilja horfa, að þarna er farið frek­lega á svig við þessi grund­vall­ar­at­riði.“

Kristján sagði marga sam­verk­andi þætti hafa komið til í mál­inu. Hann seg­ist telja þetta ein­angrað til­vik í sjáv­ar­út­vegi. Nefndi hann dæmi um allt önnur vinnu­brögð sem við­höfð voru um borð í öðru skipi þar sem upp kom hópsmit.

[links]Hann sagði að ábyrgð útgerðar og skip­stjóra væri vissu­lega mikil. „Svo er það þannig hjá íslenskum sjó­mönnum, eins og kom fram í þessu ein­læga og heið­ar­lega við­tali við unga háset­ann að þar eru menn um borð að taka þetta „á kass­ann“ eins og sjó­menn segja stundum. En þegar við erum að ræða hvernig þessir hlutir ganga þá gleym­ist oft að um borð í fiski­skipi eru, eins og í þessu til­viki 20 menn í áhöfn, sem eru lok­aðir inni stál­kassa í þessar þrjár vikur, og það eru eðli­lega ótal til­finn­ingar sem bær­ast með mönnum í þess­ari stöðu.“

Spurður hvort hann teldi þessa óheil­brigðu og óeðli­legu menn­ingu sem var um borð í Júlíusi Geir­munds­syni vera til marks um víð­tækara vanda­mál í sjáv­ar­út­veg­inum í heild sinni sagði Kristján að „ógn­ar­stjórnun“ væri ekki bara bundin við sjáv­ar­út­veg. „Ég ætla rétt að vona að þessi heið­ar­leiki hjá unga sjó­mann­inum bitni ekki á honum með þeim hætti að hann missi atvinnu. Þetta er frá­bært dæmi um ein­stak­ling sem að þorir að stíga fram og er ágætis málsvari íslenskra sjó­manna við þær aðstæður sem þarna eru uppi og þarna skap­ast. Þetta er gríð­ar­lega erfitt, að takast á við þetta, það þarf mik­inn kjark til að koma fram með þessum hætti og ég tek ofan fyrir þessum unga manni.“

Kristján Þór sagð­ist hafa átt fund með for­ystu­fólki sjó­manna fyrir um tveimur vikum. Þar hafi þeir lýst yfir áhyggjum sínum af versn­andi sam­skiptum sjó­manna og útgerð­ar­manna. „Ég vænti þess að þetta mál geti orðið til þess að kveikja betur í þeim vilja til við­ræðna til að bæta þau sam­skipti.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár