Búið að samþykkja innan við helming frumvarpa ríkisstjórnarinnar

Innan við helm­ingur þeirra frum­varpa sem rík­is­stjórnin hefur lagt fram í vetur er orð­inn að lögum. Fjöldi laga frá rík­is­stjórn hefur ekki verið minni síð­ustu tutt­ugu ár, en hlut­fallið hefur hins vegar farið lægra.

Fjörutíu frum­vörp rík­is­stjórn­ar­innar eru orðin að lögum á þessu þingi, en rík­is­stjórnin hefur lagt fram 90 frum­vörp á þing­inu alls. Það þýðir að 44,4% frum­varpa hennar hafa verið sam­þykkt. Það er nokkuð hærra hlut­fall en á sama tíma á síð­asta þingi, þegar hlut­fall sam­þykkra frum­varpa var rúm­lega 35%, en þá höfðu samt fleiri frum­vörp orðið að lögum en nú er, eða 42.

Þingi ætti að vera að ljúka miðað við upp­runa­lega starfs­á­ætlun þings­ins fyrir vet­ur­inn, en eins og greint hefur verið frá verður þing­inu frestað í byrjun júní en mun koma aftur saman í ágúst til að klára þetta þing áður en boðað verður til kosn­inga í haust. Atburða­rásin í kringum Panama­skjölin og það að Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son hætti sem for­sæt­is­ráð­herra setti auð­vitað strik í reikn­ing­inn hvað varðar afkasta­getu þings­ins, en fram að því hafði þessi þing­vetur einnig verið afkastaminni hjá rík­is­stjórn en verið hefur und­an­farna ára­tugi, eins og Kjarninn hefur greint frá.

Fjöldi frumvarpa frá ríkisstjórn

[adspot]

Líkt og sjá má hér að ofan hefur rík­is­stjórn ekki lagt fram eins fá frum­vörp und­an­farin tutt­ugu ár og á þessu þingi. Fjöldi frum­varpa sem lögð eru fram segir auð­vitað ekki alla sög­una. Þegar skoðað er hversu mörg frum­varpa rík­is­stjórna eru orðin að lögum á þessum degi á hverju þingi kemur einnig í ljós að færri frum­vörp stjórn­valda eru orðin að lögum nú en verið hefur síð­ustu tutt­ugu ár. Fjöldi laga frá rík­is­stjórnum er mjög breyti­legur eftir árum, en sjá má að þeim hefur fækkað veru­lega á þessu tíma­bili. Hafa verður í huga að töl­urnar eiga við fjölda laga sem sam­þykkt höfðu verið á þessum degi, 24. maí, ár hvert. Misjafnt er hversu lengi þingið starfar eftir árum.

Fjöldi samþykktra frumvarpa

Það gefur þó aðeins aðra mynd ef skoðað er hversu hátt hlut­fall frum­varpa frá rík­is­stjórn hefur tek­ist að afgreiða frá þing­inu á þessum tíma þing­vetr­ar­ins. Í fyrra fór hlut­fallið niður í ríf­lega 35% sam­þykkt en það er ekki það minnsta sem verið hefur und­an­farin ár, því árið 2006 hafði ein­ungis 34,8% frum­varpa rík­is­stjórn­ar­innar farið í gegnum þingið á þessum tíma.

Hlutfall samþykktra mála af heildarfjölda frumvarpa

Lengi rætt um hversu seint mál koma fram

Í mörg ár hefur verið rætt um það innan og utan þings­ins hversu seint mörg stór frum­vörp koma inn í þingið. Nú er staðan til að mynda þannig að enn eiga fjórtán frum­vörp, sem rík­is­stjórnin setti á for­gangs­lista sinn yfir mál til að klára fyrir kosn­ingar, eiga eftir að koma inn í þingið. Mörg frum­vörp komu fram eftir að form­legur frestur til að leggja fram frum­vörp rann út, þann 1. apríl síð­ast­lið­inn. Þannig er ástandið iðu­lega og mis­jafnt hverju kennt er um.

Fyrr í vetur vöktu bæði þing­menn í stjórn og stjórn­ar­and­stöðu athygli á því að skortur væri á þing­málum frá rík­is­stjórn­inni. Bryn­hildur Pét­urs­dótt­ir, þing­maður Bjartrar fram­tíð­ar, vakti athygli á þessu í þing­inu þann 10. nóv­em­ber síð­ast­lið­inn. Hún benti á að þing­nefndir hefðu af þessum sökum lítið að gera og þing­störfin væru í upp­námi. Árni Páll Árna­son, for­maður Sam­fylk­ing­ar­inn­ar, tók undir með henni, og flokks­systir hennar Heiða Kristín Helga­dóttir líka. „Hér er fullt af fólki sem er til­búið að vinna og það er miður að málin komi svo inn í þingið eftir tvær til þrjár vikur og þá séu þau afgreidd á ein­hverju hunda­vað­i,“ sagði hún. Svan­dís Svav­ars­dótt­ir, þing­maður VG, benti á að tveir mán­uðir væru liðnir af þing­inu og þrír ráð­herrar hefðu ekki skilað einu ein­asta þing­máli inn. Birgitta Jóns­dótt­ir, þing­maður Pírata, lagði til að nefndir væru í verk­fall þangað til mál kæmu inn í þær. „Ég tek undir þá hvatn­ingu til ráð­herra að fara að koma fleiri málum hérna inn svo að við í þing­inu getum tekið það hlut­verk okkar alvar­lega að vinna að málum vel,“ sagði Unnur Brá Kon­ráðs­dótt­ir, þing­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins við umræð­urn­ar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár