Atvinnuflugmenn ósáttir við stöðuna sem upp er komin hjá Icelandair

Atvinnu­flug­menn munu sinna starfi örygg­is­liða um borð í vélum Icelandair frá og með mánu­degi. Formaður Félags atvinnu­flug­manna segir flug­menn ósátta við stöð­una en þeir séu skuld­bundnir sam­kvæmt loft­ferða­lögum til að tryggja öryggi um borð.

Íslenskir atvinnu­flug­menn eru ósáttir við þá stöðu sem komin er upp hjá Icelandair. Þetta segir Jón Þór Þor­valds­son, for­maður Félags íslenskra atvinnu­flug­manna í sam­tali við Kjarnann. Flugmenn munu að óbreyttu ganga í störf flug­freyja- og þjóna frá og með mánu­degi sem örygg­is­liðar um borð í vélum Icelandair.

„Okkar afstaða er bara þessi sem við höfum lýst. Við erum ekk­ert sáttir við þessa stöðu en við erum nátt­úr­lega ekki aðilar að þess­ari deilu og við bara óskum þess heitt og inni­lega að fólk setj­ist niður og semji eins og sið­aðra manna er háttur,“ segir Jón Þór.

Hann segir loft­ferða­lög skylda flug­menn til að ganga í þessi störf. „Flug­stjóri er end­an­lega ábyrgur fyrir öllum örygg­is­þáttum um borð í flugi og við nátt­úr­lega vinnum eftir lögum um loft­ferðir og vinnum eftir flug­rekstr­ar­f­yf­ir­mælum þess fyr­ir­tækis sem við vinnum hjá og við förum eftir þeim, Þar til eitt­hvað annað breyt­ist. Við getum ekki vikið okkur undan því.“

Icelandair sendi frá sér til­kynn­ingu í gær þar sem sagði að samn­inga­við­ræður við Flug­freyju­fé­lag Íslands kæmust ekki lengra og að þeim væri lok­ið. Í til­kynn­ing­unni kom einnig fram að flug­menn félags­ins muni starfa tíma­bundið sem örygg­is­liðar frá og með mánu­deg­inum 20. júlí. Þar kom einnig fram að félagið gerði ráð fyrir „að hefja við­ræður við annan samn­ings­að­ila á hinum íslenska vinnu­mark­aði, um fram­tíð­ar­kjör örygg­is- og þjón­ustu­liða hjá félag­in­u“.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Kjaramál

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár