Spotify tók yfir markaðinn fyrir streymi „nánast á einni nóttu“

Alls óvíst er um fram­tíð vefs­ins ton­list.is á streymi­mark­aði. Innkoma Spotify breytti rekstr­ar­að­stæðum vefs­ins nán­ast á einni nóttu og „án þess að nokkrum vörnum yrði komið við“.

Samkeppnin um streymismarkað fyrir tónlist er ansi hörð, og íslenskar streymisveitur hafa ekki getað haldið í við alþjóðlegu risanna á markaðnum.
Sam­keppnin um streym­is­markað fyrir tón­list er ansi hörð, og íslenskar streym­isveitur hafa ekki getað haldið í við alþjóð­legu risanna á mark­aðnum. Mynd: Birgir Þór Harðarson

Vefurinn ton­list.is er í raun horf­inn af mark­aðnum fyrir streymi á tón­list. Velta hans í fyrra var 15,3 millj­ónir króna og kostn­aður við rekstur vefs­ins yfir 40 millj­ónir króna. Tap vegna ein­ing­ar­innar var alls 24,1 millj­ónir króna. Þetta kemur fram í sam­runa­skrá vegna fyr­ir­hug­aðs sam­runa Fjar­skipta og 365 miðla sem skilað var til Sam­keppn­is­eft­ir­lits­ins 27. apríl síð­ast­lið­inn.

„Ástæðan er sú að bæði vel­heppnað við­mót og mark­aðs­setn­ing Símans gerði það að verkum að Spotify tók þennan markað yfir á nán­ast einni nóttu, án þess að nokkrum vörnum yrði komið við. Alls óvíst er um fram­tíð ton­list.is á þessum mark­aði til lengri tíma,“ segir í sam­runa­skránni.

Um 60 þúsund Íslendingar með Spotify

Talið er að um 60 þús­und Íslend­ingar séu með áskrift að tón­list­ar­streymi­veit­unni Spotify. Hér­lendis selur Síminn áskrift að Spotify, meðal ann­ars með því að bjóða hana með öðrum vörum fyr­ir­tæk­is­ins með afslætti. Sé Premium-áskrift að Spotify keypt hjá Símanum kostar hún 1.490 krónur á mán­uði. Sé hún keypt beint af Spotify kostar hún hins vegar 9,99 evrur á mán­uði, eða 1.140 krónur á mán­uði. Samkvæmt upp­lýs­ingum Kjarnans er stærsti hluti þeirra Íslend­inga sem eru með áskrift að Spotify með beina áskrift. Þ.e. ekki í gegnum Símann.

Gunn­hildur Arna Gunn­ars­dóttir, upp­lýs­inga­full­trúi Símans, segir enda að þótt matið sem sett sé fram í sam­runa­skránni sé athygl­is­vert þá sé Spotify alheims­þjón­usta sem allir orðið þekki. „Kynning Símans réð þar vart úrslitum heldur sú stað­reynd að þjón­ustan er tækni­lega góð, þar er gott fram­boð á efni á sann­gjörnu verði. Spotify er ekki eina tón­list­ar­veitan sem ton­list.is keppir við. Þær eru margar og ljóst að í þessu sem öðru getur verið erfitt að keppa við alþjóðarisa. Við hjá Símanum höfum séð að í sam­keppni kjósa neyt­endur ein­fald­lega það sem þeir telja sig fá meira virði eða betri þjón­ustu fyrir fé sitt.“

[adspot]

Áhrif midi.is hverfandi

Vefurinn ton­list.is er ekki eina ein­ingin sem fylgir með yfir til Fjar­skipta, verði kaup þess félags á flestum eignum 365 miðla sam­þykkt, sem er ekki talin vera í hafa áhrif á sam­keppni með sam­run­anum. midi.is mun líka fara yfir til Fjar­skipta. Það fyr­ir­tæki ann­ast sölu á mann­fagn­aði og við­burði svo sem leik­sýn­ingar, tón­leika, kvik­mynda­sýn­ingar, íþrótta­leiki og fleira.

Í sam­runa­skránni segir að starf­semi og áhrif midi.is séu hverf­andi. Velta midi.is hafi verið 26,2 millj­ónir króna í fyrra, en 65,5 millj­ónir króna árið áður. Árið 2014 var velta Miða.is rúmar 88 millj­ónir króna.

365 miðlar keyptu midi.is vorið 2013 . Í frétt um kaupin á Vísi.is var haft eftir þáver­andi for­stjóra 365 miðla, Ara Edwald, að starf­semin félli vel að rekstri 365. Mark­miðið væri að „gera þetta sterka vöru­merki enn öfl­ugra.“

Síðan þá hefur sam­keppni midi.is auk­ist veru­lega. Fyr­ir­tækið Tix Miðasala, sem á og rekur vef­inn tix.is, hóf til að mynda sam­bæri­lega starf­semi á vef sem opn­aði í októ­ber 2014.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár