Tæplega helmingur kjósenda Sjálfstæðisflokksins vilja hafa Jón áfram sem dómsmálaráðherra

Tæplega helm­ingur kjós­enda Sjálf­stæð­is­flokks­ins myndu vilja hafa Jón Gunn­ars­son áfram sem dóms­mála­ráð­herra út þetta kjör­tíma­bil en 19,4 pró­sent vilja hafa Guðrúnu Haf­steins­dóttur sem dóms­mála­ráð­herra, sam­kvæmt nið­ur­stöðu nýrrar könn­unar Maskínu.

Rétt rúmur þriðj­ungur lands­manna er ánægður með störf Jóns Gunn­ars­sonar sem dóms­mála­ráð­herra. Um fimmt­ungur lands­manna gerir miklar vænt­ingar til Guðrúnar Haf­steins­dóttur, sem tók nýverið við sem dóms­mála­ráð­herra. 44 pró­sent lands­manna er hins vegar sama hvort þeirra er dóms­mála­ráð­herra. 

Þetta er meðal þess sem fram kemur í nýrri könnun Maskínu sem fram­kvæmd var dag­ana 19. til 22. júní. Í könn­un­inni er meðal ann­ars spurt hvort fólk vilji frekar hafa Jón eða Guðrúnu sem dóms­mála­ráð­herra út þetta kjör­tíma­bil. Guðrún tók við lykla­völdum í dóms­mála­ráðu­neyt­inu 19. júní af Jóni sem gegnt hafði emb­ætti dóms­mála­ráð­herra í 18 mán­uði. 

Ráð­herra­skiptiGuðrún tók við sem dóms­mála­ráð­herra af Jóni 19. júní.

43,8 prósent er alveg sama hvort er dómsmálaráðherra

27,6 pró­sent aðspurðra vilja frekar hafa Jón áfram sem dóms­mála­ráð­herra en 28,7 pró­sent vilja hafa Guðrúnu sem dóms­mála­ráð­herra út kjör­tíma­bilið. 43,8 pró­sent aðspurðra er hins vegar alveg sama hvort þeirra er dóms­mála­ráð­herra. 

Ef svör eru skoðuð eftir því hvaða stjórn­mála­flokk fólk myndi kjósa nú má sjá að 48,8 pró­sent þeirra sem myndu kjósa Sjálf­stæð­is­flokk­inn vilja frekar hafa Jón en 19,4 pró­sent virð­ast ánægð með ráð­herra­skiptin og vilja hafa Guðrúnu út kjör­tíma­bilið. Þau sem myndu kjósa Mið­flokk­inn vilja helst hafa Jón sem dóms­mála­ráð­herra, eða 78,9 pró­sent. Guðrún er vin­sælust hjá kjós­endum Pírata en 55,5 pró­sent þeirra sem myndu kjósa Pírata nú vilja hafa Guðrúnu sem dóms­mála­ráð­herra út kjör­tíma­bilið. 

Kjósendur Miðflokksins ánægðastir með Jón

Kjós­endur Mið­flokks­ins eru ánægð­astir með störf Jóns á meðan hann var dóms­mála­ráð­herra, eða 58,9 pósent. Þar á eftir koma kjós­endur Sjálf­stæð­is­flokks­ins en 47,3 pró­sent kjós­enda hans eru ánægð með störf hans sem dóms­mála­ráð­herra. Kjós­endur Sós­í­alista­flokks­ins eru óánægð­astir með störf Jóns, eða 68,8 pró­sent, en þar á eftir koma kjós­endur Pírata, en 44,7 pró­sent kjós­enda þeirra eru óánægðir. 

Um fimmtungur hefur miklar væntingar til Guðrúnar

8,4 pró­sent svar­enda gera mjög miklar kröfur til Guðrúnar sem dóms­mála­ráð­herra. 13,1 pró­sent gerir fremur miklar kröfur en 42,2 pró­sent svar­enda gera fremur litlar eða mjög litlar kröfur til hennar. Kjós­endur Sjálf­stæð­is­flokks gera mestar vænt­ingar til hennar, 51,5 pró­sent þeirra gera mjög miklar eða fremur miklar vænt­ingar til Guðrúnar sem dóms­mála­ráð­herra en kjós­endur Sós­í­alista­flokks­ins minnstar, eða 48,8 pró­sent. 

Könnunin fór fram frá 19. til 22. júní og voru svar­endur 966 tals­ins.
Kjósa
2
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár