Samfylkingin langstærst í nýjum Þjóðarpúlsi

Flokkur for­sæt­is­ráð­herra mælist með 27 pró­senta fylgi í nýrra könnun Gallup. Sjálf­stæð­is­flokkur mælist næst stærstur með 22,4 pró­sent.

Nærri helmingur
Nærri helm­ingur Sam­an­lagður stuðn­ingur við rík­is­stjórn­ar­flokk­anna þriggja er 49,3 pró­sent. Mynd: Golli

Sam­fylk­ingin mælist með 27 pró­senta stuðn­ing í nýjum Þjóð­ar­púlsi Gallup. Það myndi tryggja flokknum 19 þing­sæti, væru þetta nið­ur­stöður kosn­inga. RÚV greinir frá nið­ur­stöð­unum.

Viðreisn mælist næst stærsti stjórn­ar­flokk­ur­inn með 14,6 pró­senta fylgi í könn­un­inni og Flokkur fólks­ins mælist með 7,7 pró­senta fylgi.

Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn er næsti stærsti flokkur lands­ins, miðað við könn­un­ina, og mælist með 22,4 pró­senta fylgi. Mið­flokk­ur­inn er næst stærsti stjórn­ar­and­stöðu­flokk­ur­inn á þingi, með 9,3 pró­senta fylgi. Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn mælist með 5,7 pró­sent. 

Af þeim flokkum sem eru utan þings, en buðu fram síð­ast, eru Sós­í­alistar stærstir. Þeir mæl­ast með 5,4 pró­senta fylgi. Það er litlu minna en Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn. Píratar mæl­ast með 4 pró­senta fylgi og Vinstri græn með 3,3 pró­sent. Hvorugur þeirra myndi ná kjörnum full­trúa í dag, miðað við þetta. 

Könnun Gallup 3.–31. mars 2025
Samfylkingin
27,0%
Sjálfstæðisflokkurinn
22,4%
Viðreisn
14,6%
Miðflokkurinn
9,3%
Flokkur fólksins
7,7%
Framsókn
5,7%
Sósíalistaflokkurinn
5,4%
Píratar
4,0%
Vinstri græn
3,3%
Heimild: Gallup. Úrtak 10.324, svarhlutfall 47,5%. Strikalínan er 5% þröskuldurinn fyrir jöfnunarsæti.
Kjósa
25
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • FB
    Finnur Birgisson skrifaði
    Það hefði nú gjarnan mátt fljóta með hvað flokkarnir fengu í kosningunum og hvernig fylgið hefur síðan verið að hreyfast skv. könnunum.
    0
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár