Seldi helminginn í glæsihýsi til eiginkonu sinnar eftir að hafa verið dæmdur til að greiða 120 milljónir

Páll Þór Magn­ús­son var dæmdur til að greiða þrota­búi IceCapital 120 millj­ónir í októ­ber 2014. Fimm dögum síðar seldi hann helm­ing í húsi sínu í Garðabæ til eig­in­konu sinnar. Kröfur í bú IceCapital námu 51 millj­arði króna.

Páll Þór Magnússon.
Páll Þór Magn­ús­son.

Páll Þór Magn­ús­son, fyrr­ver­andi fram­kvæmda­stjóri IceCapital, seldi eig­in­konu sinni, Gabríelu Krist­jáns­dóttur, helm­ings­hlut í 370 fer­metra ein­býl­is­húsi í Garðabæ fimm dögum eftir að hann var dæmdur til að greiða þrota­búi félags­ins um 120 millj­ónir króna. Fast­eigna­mat húss­ins er 87 millj­ónir króna. Þrotabúi IceCapital hefur ekki tek­ist að inn­heimta þá skuld sem Páll Þór var dæmdur til að greiða því. Frá þessu er greint í Frétta­blað­inu í dag.

IceCapital hét áður Sund og var í eigu ekkju Óla Í Olís heit­ins og barna hennar. Páll Þór er giftur dóttur Gunn­þór­unnar Jóns­dóttur, ekkju Óla. Félagið var mjög umsvifa­mikið fyrir hrun en var lýst gjald­þrota árið 2012. Alls var 51 millj­arði króna lýst í búið en lítið hefur fengið upp í þær kröfur.

2. októ­ber 2014 var þrota­búi IceCapital dæmdar 520 millj­ónir í Hér­aðs­dómi Reykja­ness. Dómurinn var vegna rift­unar á ýmsum gern­ingum stjórn­enda félags­ins sem áttu sér stað eftir banka­hrunið, haustið 2008 og snemma árs 2009. Skipta­stjóri þrota­bús IceCapital segir að fyrr­ver­andi helstu stjórn­endur félags­ins, Páll Þór og Jón Krist­jáns­son, skuldi búinu tæpar 350 millj­óir króna með drátt­ar­vöxtum. Þeir virð­ist þó ekki hafa lög­heim­ili hér­lendis lengur né vera með skráðar eignir á Íslandi. Fjöldi félaga í þeirra eigu hefur verið færður í erlent eign­ar­hald á síð­ustu árum. Vegna þessa hefur búinu gengið illa að inn­heimta skuldir þeirra.

Í Frétta­blað­inu í dag er greint frá því að í afsali ein­býl­is­húss­ins í Garðabæ, sem er dag­sett 7. októ­ber 2014, komi fram að Páll Þór hafi selt helm­ings­hlut í hús­næð­inu til eig­in­konu sinnar sem eign­að­ist það þar með að fullu. Ekki kemur fram hvað var greitt fyrir hlut­inn. Þetta gerð­ist fimm dögum eftir ofan­greindan dóm.

Eitt rift­un­ar­mál­anna sem dæmt var í í októ­ber 2014 snéri að sölu á 2/3 hlutar í þyrlu­fyr­ir­tæk­inu Norð­ur­flugi út úr IceCapital í des­em­ber 2008. Norð­ur­flug er nú í eigu erlendra félaga sem tengj­ast eig­endum IceCapital. Fyr­ir­tækið hagn­að­ist um 160 millj­ónir króna á árunum 2013 og 2014. Þá seldu hlut­hafar í Norð­ur­flugi þriðj­ungs­hlut í því til Air Greenland síð­asta sumar á 200 millj­ónir króna.

Töldu sig fórnarlömb markaðsmisnotkunar

Þeir Páll Þór og Jón hafa löngum borið fyrir sig að hafa verið blekktir í við­skiptum við íslenska banka í rekstri IceCapital. Síðla árs 2010 tók hér­aðs­dómur Reykja­víkur fyrir mál Arion banka gegn félag­inu vegna van­efnda á lána­samn­ingi. Í mál­inu bar lög­maður Sund/IceCapital, fyrir sig að félagið hefði verið mis­notað mark­aðs­mis­notk­un­ar­til­burðum Kaup­þings, fyr­ir­renn­ara Arion banka, til að kaupa hluta­bréf bank­anum til að hafa áhrif verð­myndun hans. Þá hafi rekstur Kaup­þings eftir árið 2006 verið „einn blekk­ing­ar­leikur af hálfu stjórn­enda bank­ans" og fjár­festar hafi „bæði verið blekktir og beittir svik­um".

Í mála­til­bún­aði Sunds/IceCapi­tal sagði auk þess að stjórn­endur Kaup­þings hafi „á árunum 2007 til 2008 unnið mark­visst þágu ein­stakra hlut­hafa sinna og tekið stöðu gegn íslensku krón­unn­i". Á grund­velli þess­ara raka fór lög­maður Sund/IceCapital fram á að skjól­stæð­ingar hans yrðu ekki bund­nir af lána­samn­ingn­um. Hér­aðs­dómur hafn­aði þessum rökum og Hæsti­réttur stað­festi þá nið­ur­stöðu nokkrum mán­uðum síð­ar. IceCapi­tal var gert að greiða Arion banka 3,5 millj­arða króna.

Sami hópur var aftur mættur fyrir dóm­stóla vorið 2011, nú vegna dótt­ur­fé­lags IceCapital, Iceproperties, sem eig­end­urnir vildu ekki gefa upp til gjald­þrota­skipta þrátt fyrir him­in­háar skuld­ir. Í mál­flutn­ingi fyrir dómi kom fram í máli lög­manns Iceproperties að hann teldi skjól­stæð­inga sína hafa verið fórn­ar­lömb mark­aðs­mis­notk­unar af hendi Glitnis banka þegar þeir keyptu bréf í honum fyrir um átta millj­arða króna, sem voru fengnir að láni hjá Glitni. Dóm­stólar ´féllust ekki á þessi rök og Iceproperties var gefið upp til gjald­þrota­skipta.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár