Kjósendur allra flokka nema Sjálfstæðisflokks vilja hækka skatta á ríkasta eitt prósentið

Átta af hverjum tíu lands­mönnum styðja að skattar verði hækk­aðir á það eina pró­sent lands­manna sem á mest. Þeir kjós­endur sem skera sig úr er kjós­endur Sjálf­stæð­is­flokks­ins. Næstum tveir af hverjum þremur þeirra vilja óbreytta eða lægri skatta á ríka.

Mikill meirihluti landsmanna er hlynntur því að breiðu bökin beri meiri byrðar en þau gera í dag.
Mikill meiri­hluti lands­manna er hlynntur því að breiðu bökin beri meiri byrðar en þau gera í dag. Mynd: Bára Huld Beck

Næstum átta af hverjum tíu lands­mönnum, eða 77 pró­sent, telja að auð­ug­asta fólkið á Íslandi, það sem til­heyrir því eina pró­senti sem á mest, eigi að greiða hærri skatta. Einungis fimm pró­sent telja að skattar á rík­asta fólkið ættu að lækka.

Þetta kemur fram í könnun sem MMR gerði fyrir Sós­í­alista­flokk Íslands. Könnunin var net­könnun og gerð dag­ana 18. til 24. ágúst. 932 manns, 18 ára og eldri, voru spurðir og gáfu 850 upp afstöðu. Spurt var: „Finnst þér skattar sem auð­ug­asta fólkið á Íslandi greiðir ættu að vera hærri, lægri eða óbreyttir?“

Kjósendur Sjálfstæðisflokks sér á báti

Kjós­endur Sjálf­stæð­is­flokks­ins skera sig úr þegar kemur að vilja til að hækka skatta þeirra sem mest eiga. Alls segj­ast 37 pró­sent þeirra að það eigi að hækka skatta á auð­ug­ustu Íslend­ing­anna. 45 pró­sent þeirra vilja að skattar séu óbreyttir en 18 pró­sent kjós­enda Sjálf­stæð­is­flokks vilja að skattar á efsta pró­sentið verði lækk­aðir, eða næstum einn af hverjum fimm kjós­endum flokks­ins.

[adspot]Á meðal hinna átta flokk­anna sem mæl­ast með mögu­leika á að ná inn á þing segj­ast 87 pró­sent styðja slíka hækkun. Kjós­endur Sós­í­alista­flokks­ins eru næstum allir, eða 98 pró­sent, fylgj­andi hærri sköttum á rík­asta fólkið, 96 pró­sent kjós­enda Pírata styðja slíkar hækk­anir og 88 pró­sent kjós­enda Flokks fólks­ins. Alls segj­ast 85 pró­sent kjós­enda Sam­fylk­ing­ar­innar og Vinstri grænna að það eigi að hækka skatta á efsta pró­sentið, 84 pró­sent kjós­enda Fram­sókn­ar­flokks og Við­reisnar og 77 pró­sent kjós­enda Mið­flokks­ins.

Stjórn­endur og æðstu emb­ætt­is­menn hafa minnstan áhuga á að hækka skatta á efsta lagið, en þó segj­ast 62 pró­sent þeirra styðja slíka hækkun. Þá er stuðn­ing­ur­inn við skatta­hækk­anir á rík­ustu Íslend­ing­anna minnstur á meðal þeirra sem hafa milljón krónur eða meira í heim­il­is­tekjur á mán­uði en þar mælist hann samt sem áður 74 pró­sent, sem þýðir að þrír af hverjum fjórum úr efsta tekju­hópnum sem er mældur er hlynntur hækk­unum.

Í nýj­ustu kosn­inga­spá Kjarnans, sem birt var í gær­kvöldi, mæld­ist Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn með 24,1 pró­sent fylgi en önnur fram­boð með 75,9 pró­sent fylgi.

Ríkasta eitt prósentið tók til sín 30 prósent af nýjum auð

Ríkasta eitt pró­sentið, alls um 2.400 fjöl­skyldur, bættu 37,3 millj­örðum króna við eigið fé sitt í fyrra, eða um 30 pró­sent af öllum nýjum auð sem varð til á því ári. Þessar fjöl­skyldur áttu sam­tals 902,2 millj­arða króna í lok árs 2020. Þetta kom fram í svari Bjarna Bene­dikts­sonar, fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra, við fyr­ir­spurn Loga Ein­ars­sonar, for­manns Sam­fylk­ing­ar­innar, um skuldir og eignir lands­manna sem birt var í sumar.

Eigið fé rík­ustu hópanna hér­lendis hefur verið stór­lega van­metið, og er mun meira en þær tölur sem hér eru til umfjöll­unar hér að ofan. Hluti verð­bréfa­eignar, hluta­bréf í inn­lendum og erlendum hluta­fé­lögum, er metin á nafn­virði, en ekki mark­aðsvirði. Þá eru fast­eignir metnar á sam­kvæmt fast­eigna­mati, ekki mark­aðsvirði, sem er í flestum til­fellum hærra.

Það þýðir að ef verð­bréf í t.d. hluta­fé­lögum hafi hækkað í verði frá því að þau voru keypt þá kemur slíkt ekki fram í þessum tölum. Úrvals­vísi­tala Kaup­hallar Íslands hefur til að mynda hækkað um 110 pró­sent frá því í mars á síð­asta ári.

Meg­in­þorri verð­bréfa sem eru í beinni eigu ein­stak­linga til­heyra þeim tíu pró­sentum lands­manna sem eru rík­astir. Sá hópur átti 86 pró­sent allra verð­bréfa sem eru í beinni eigu ein­stak­linga í lok árs 2019.

Öfluðu 44,5 prósent allra fjármagnstekna

Kjarninn greindi frá því í frétta­skýr­ingu í apríl að að eitt pró­sent fram­telj­enda á Íslandi sem var með hæstu tekj­urnar á árinu 2019 voru sam­an­lagt með 142 millj­arða króna í tekjur. Um er að ræða 3.133 ein­stak­linga. Þessi hópur afl­aði 7,2 pró­sent allra tekna sem Íslend­ingar öfl­uðu í hitteð­fyrra.

Þetta eina pró­sent lands­manna var með 58 millj­arða króna í fjár­magnstekjur á árinu 2019, sem þýðir að hóp­ur­inn afl­aði 44,5 pró­sent allra tekna sem urðu til vegna ávöxt­unar á fjár­magni á því ári.

[links]Þetta kom fram í umfjöllun um álagn­ingu ein­stak­linga á árinu 2020 í Tíund, frétta­blaði Skatts­ins, sem Páll Kolbeins rekstr­ar­hag­fræð­ingur skrif­aði.

Þar sagði að tekju­hæsta eitt pró­sent lands­manna greiddi 37 millj­arða króna í skatta á umræddu ári og var með­al­skatt­byrði hóps­ins 26 pró­sent. Skatt­byrði þessa rúm­lega þrjú þús­und ein­stak­linga var aðeins meiri en með­al­skatt­byrði allra Íslend­inga á árinu 2019 – sem var 23 pró­sent – en hún var minni en t.d. næsta pró­sents fyrir neðan það í tekju­öfl­un­ar­stig­anum, sem greiddi 27,2 pró­sent tekna sinna í skatta og langt undir með­al­skatt­byrði tíu pró­sent rík­ustu Íslend­ing­anna, sem greiddi 35,2 pró­sent í skatta. Alls greiddu tekju­hæstu fimm pró­sentin síðan 27,9 pró­sent í skatt af tekjum sínum, eða hlut­falls­lega umtals­vert meira en rík­asta pró­sentið.

Í umfjöllun Páls í Tíund sagði orð­rétt: „Ástæða þess að skatt­byrði tekju­hæsta eina pró­sents lands­manna er lægri en skatt­byrði tekju­hæstu fimm pró­sent­anna er sú að fjár­magnstekjur vega þyngra í tekjum þeirra sem eru tekju­hærri á hverjum tíma en skattur af fjár­magnstekjum var 22 pró­sent en stað­greiðsla tekju­skatts og útsvars af launum, líf­eyri og trygg­inga­bótum yfir 11.125 þús. kr. var 46,24 pró­sent.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

kosningar2021

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár