Mynd: Samsett

Miðflokkurinn heldur áfram að dala en Sósíalistaflokkurinn heldur áfram að rísa

Rík­is­stjórnin stendur tæpt og undir helm­ingur þjóð­ar­innar hefur í hyggju að kjósa flokk­ana sem að henni standa. Hin frjáls­lynda miðja á þingi græðir þó lítið á þeirri stöðu, að minnsta kosti enn sem komið er.

Mið­flokk­ur­inn og Sós­í­alista­flokkur Íslands hafa sæta­skipti á stærð­ar­lista stjórn­mál­anna sam­kvæmt nýj­ustu kosn­inga­spá Kjarnans og Baldurs Héð­ins­sonar. Fyrir rúmri viku mæld­ist Mið­flokk­ur­inn með 6,6 pró­sent fylgi og var sjö­undi stærsti flokkur lands­ins. Sós­í­alista­flokk­ur­inn mæld­ist hins vegar með 6,2 pró­sent fylgi og var minnstur þeirra átta flokka sem mæld­ust með öruggan mögu­leika á að ná manni inn á þing.

Nú, níu dögum síðar, er staða sú að Sós­í­alista­flokk­ur­inn mælist með 7,5 pró­sent fylgi en Mið­flokk­ur­inn hefur skroppið saman niður í 6,2 pró­sent.

Miðflokkurinn vill gefa fólki peninga

Sós­í­alista­flokk­ur­inn kynnti fram­boðs­lista sína síðar en flestir aðrir og virð­ast þeir mæl­ast vel fyrir hjá þeim sem hafa áhuga á að kjósa flokk­inn. Þá hefur hann mán­uðum saman birt það sem hann kallar til­boð til kjós­enda. Þau eru nú orðin ell­efu tals­ins, og snú­ast meðal ann­ars um að byggja 30 þús­und íbúðir á ára­tug, að lækka skatta á almenn­ing og ráð­ast að rótum spill­ingar. Það nýjasta, sem kynnt var í dag, snýst um sós­íal­íska byggð­ar­stefnu.

Mið­flokk­ur­inn birti kosn­inga­á­herslur sínar í gær í tíu punkta skjali sem hann kall­aði „Tíu ný rétt­indi fyrir íslensku þjóð­ina“. Uppi­staðan í þeim lof­orðum snýst um að greiða lands­mönnum háar fjár­hæðir úr rík­is­sjóði með inn­lögnum á banka­reikn­inga þeirra.

Mið­flokk­ur­inn vill til dæmis greiða helm­ing­inn af öllum afgangi sem rík­is­sjóður skilar á hverju ári til full­orð­inna lands­manna, greiða auð­linda­gjald vegna nýt­ingu fiski­miða, orku og sölu los­un­ar­heim­ilda til þeirra, gefa þjóð­inni þriðj­ung í Íslands­banka (mark­aðsvirði er um 80 millj­arðar króna) sem hún á nú þegar og greiða mót­fram­lag úr rík­is­sjóði sem gefur öllum tæki­færi til að eign­ast hús­næði. Þá ætlar flokk­ur­inn að afnema skerð­ingar, hækka líf­eyr­is­greiðslur upp í lág­marks­laun og hækka frí­tekju­mark atvinnu­tekna upp í 500 þús­und krónur.

Ríkisstjórnin tæp

Stjórn­ar­flokk­arnir þrír, sem eiga flestir eftir að kynna áherslur sínar í kom­andi kosn­ingum, mæl­ast sam­tals með 48,7 pró­sent fylgi, sem gæti dugað til að þeir næðu næf­ur­þunnum meiri­hluta á þingi. Þeir fengu sam­tals 52,9 pró­sent atkvæða í kosn­ing­unum 2017 og því hafa þeir saman tapað 4,2 pró­sentu­stigum á kjör­tíma­bil­inu.

Sjálf­stæð­is­flokkur og Vinstri græn mæl­ast bæði undir kjör­fylgi og síð­ar­nefndi flokk­ur­inn hefur tapað þorra þess fylgis sem kvarn­ast hefur af stjórn­ar­flokk­unum á kjör­tíma­bil­inu, eða 3,9 pró­sentu­stig. Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn hefur tapað 1,2 pró­sentu­stigi en Framsókn hefur einn stjórn­ar­flokk­anna bætt við sig fylgi, farið úr 10,7 í 11,6 pró­sent.

Frjálslynda miðjan þarf að bæta við sig til að ná í ríkisstjórn

Frjáls­lyndu miðju­flokk­arnir á Alþingi: Sam­fylk­ing, Píratar og Viðreisn, fengu sam­tals 28 pró­sent atkvæða árið 2017. Þeir mæl­ast nú saman með 32,6 pró­sent, eða 4,6 pró­sentu­stigum meira en í síð­ustu kosn­ingum. Ljóst er að þessir flokkar þurfa að bæta við sig fylgi á næstu vikum ef þeir ætla sér í rík­is­stjórn. Hið svo­kall­aða Reykja­vík­ur­mynstur er nú með 45,6 pró­sent fylgi og ef það myndi skipta út Viðreisn fyrir Fram­sókn­ar­flokk­inn færi fylgið upp í 47,3 pró­sent.

Samfylkingin kynnti kosningastefnu sína í gær.
Sam­fylk­ingin kynnti kosn­inga­stefnu sína í gær.

Gott gengi Sós­í­alista­flokks­ins er að höggva í fylgi Sam­fylk­ing­ar­innar, sem mælist undir kjör­fylgi, og bæði fram­bjóð­endur flokks­ins og stuðn­ings­menn eru farnir að hvetja vinstra fólk opin­ber­lega til að „spreða ekki atkvæði á flokka“ sem vilji ekki taka þátt í myndun stórnar í anda Reykja­vík­ur­mód­els­ins. Erfitt er að skilja þá herkvaðn­ingu með öðrum hætti en að henni sé beint gegn Sós­í­alista­flokknum.

Flokk­ur­inn kynnti kosn­inga­stefnu sína í gær, en þar eru sett fram lof­orð um kjara­bætur eldri borg­ara, öryrkja og barna­fjöl­skyldna. Auk þess boðar flokk­ur­inn upp­töku stór­eigna­skatta, hærri álögur á stærstu útgerð­ar­fyr­ir­tækin og metn­að­ar­fyllri aðgerðir í lofts­lags­málum.

Viðreisn sýnir á spilin um komandi helgi

Viðreisn er lík­lega ekki sátt með að vera komin undir tíu pró­sent markið á ný í síð­ustu kosn­inga­spám. Þekkt nöfn hafa tekið sæti á listum flokks­ins, hann hefur tekið þátt í meiri­hluta­sam­starfi í Reykja­vík í næstum heilt kjör­tíma­bil og er nú að fara í sínar þriðju þing­kosn­ingar. Viðreisn er því ekki nýr flokkur lengur.

Heima­til­bú­inn vand­ræða­gangur í kringum val á listum og höfnun á stofn­anda flokks­ins, yfir­lýs­ingar vara­for­manns flokks­ins um að nýtt fisk­veiði­stjórn­un­ar­kerfi eigi ekki að skila rík­is­sjóði meiri tekjum og mis­skiln­ingur for­manns flokks­ins á spurn­ingu í við­tali við Pál Magn­ús­son hefur valdið Viðreisn erf­ið­leikum á síð­ustu vikum. Þrátt fyrir það er flokk­ur­inn að mæl­ast með 3,2 pró­sentu­stigum yfir því sem hann fékk í síð­ustu kosn­ingum, en með minna fylgi en hann fékk í jóm­frúar-kosn­ingum sínum árið 2016. Viðreisn mun kynna kosn­inga­á­herslur sínar um kom­andi helgi.

Jakob Frímann Magnússon leiðir lista Flokks fólksins í Norðausturkjördæmi. Mynd: Flokkur fólksins
Jakob Frímann Magn­ús­son leiðir lista Flokks fólks­ins í Norð­aust­ur­kjör­dæmi. Mynd: Flokkur fólks­ins

Píratar eru að dala lít­il­lega og mæl­ast nú með 11,4 pró­sent fylgi í kosn­inga­spánni. Það er þó yfir því sem flokk­ur­inn fékk árið 2017 en undir því sem Píratar fengu árið 2016. Þeir sam­þykktu sína kosn­inga­stefnu­skrá í júlí.

Eyða miklu en skila litlu

Sá flokkur sem hefur verið að eyða mestum fjár­munum í að aug­lýsa á sam­fé­lags­miðlum og er einnig dug­legur að kaupa­hefð­bundnar aug­lýs­ingar í íslenskum fjöl­miðlum til að vekja athygli á sér, Flokkur fólks­ins, virð­ist ekki vera að hafa erindi sem erf­iði enn sem komið er. Sú ákvörðun flokks­ins að raða þjóð­þekktum tón­list­ar­manni, Jakobi Frímanni Magn­ús­syni, í eitt for­ystu­sætið á listum hans fyrir kom­andi kosn­ingar virð­ist heldur ekki hafa aukið fylgið sem neinu nemur. Flokk­ur­inn skipti algjör­lega um ásýnd í lok árs í fyrra þegar hann tók upp nýtt merki og nýja ein­kenn­andi liti.

Samkvæmt nýj­ustu kosn­inga­spánni er afar tæpt að Flokk­ur­inn nái yfir fimm pró­senta þrösk­uld­inn til að fá úthlutað jöfn­un­ar­mönnum, en hann gæti þó náð inn kjö0rdæma­kjörnum mönnum í ein­hverjum kjör­dæmum.

Þær kann­anir sem liggja til grund­vallar nýj­ustu kosn­inga­spánni eru eft­ir­far­andi:

  • Skoð­ana­könnun MMR í sam­starfi við Morg­un­blaðið 18 - 24. ágúst (vægi 35,4 pró­sent)
  • Skoð­ana­könnun Maskínu í sam­starfi við Frétta­stofu Stöðvar 2, Bylgj­unnar og Vísis 13 – 23. ágúst (20,2 pró­sent)
  • Þjóð­ar­púls Gallup 29. júlí-15. ágúst (vægi 44,4 pró­sent)

Hvað er kosn­inga­spá­in?

Fyrir hverjar kosn­ingar um allan heim birta fjöl­miðlar gríð­ar­legt magn af upp­lýs­ingum. Þessar upp­lýs­ingar eru oftar en ekki töl­fræði­legar, byggðar á skoð­ana­könn­unum þar sem fólk hefur verið spurt hvernig það upp­lifir stjórn­málin og hvað það getur ímyndað sér að kjósa. Stjórn­mála­fræð­ingar og fjöl­miðlar kepp­ast svo við að túlka nið­ur­stöð­urnar og veita almenn­ingi enn meiri upp­lýs­ingar um stöð­una í heimi stjórn­mál­anna.

Allar þessar kann­anir og allar mögu­legar túlk­anir á nið­ur­stöðum þeirra kunna að vera rugl­andi fyrir hinn almenna neyt­anda. Einn kannar skoð­anir fólks yfir ákveðið tíma­bil og annar kannar sömu skoð­anir á öðrum tíma og með öðrum aðferðum. Hvor könn­unin er nákvæm­ari? Hverri skal treysta betur? Svarið er oftar en ekki óljóst því vand­inn er að hinn almenni kjós­andi hefur ekki for­sendur til að meta áreið­an­leika hverrar könn­unar.

Þar kemur kosn­inga­spáin til sög­unnar.

Kosn­­inga­­spálíkan Bald­­urs Héð­ins­­sonar miðar að því að setja upp­­lýs­ing­­arnar sem skoð­ana­kann­­anir veita í sam­hengi. Fyr­ir­liggj­andi skoð­ana­kann­­anir eru teknar saman og þeim gefið vægi til þess að spá fyrir um úrslit kosn­­inga. Nið­ur­stöður spálík­ans­ins eru svo birtar hér á Kjarn­anum reglu­lega í aðdrag­anda kosn­inga.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

kosningar2021

Mest lesið undanfarið ár