Flokkur fólksins skiptir um ásýnd

Flokkur fólks­ins hefur farið í algjöra yfir­haln­ingu og breytt allri ásýnd flokks­ins. Hann hefur skilað miklum hagn­aði und­an­farin ár og situr á digrum kosn­inga­sjóði.

Flokkur fólks­ins hefur látið end­ur­hannað merki flokks­ins og breytt allir ásýnd hans. Í til­kynn­ingu frá Flokki fólks­ins segir að merki flokks­ins, litir, let­ur­gerð séu meðal þess sem muni taka breyt­ingum og nið­ur­staðan sé nýtt heild­ar­út­lit á öllu kynn­ing­ar­efni. „Meg­in­mark­miðið er að flokk­ur­inn haldi áfram að vekja athygli allra á bar­áttu sinni gegn fátækt og órétt­læti í íslensku sam­fé­lagi.“

Aðal litur flokks­ins verður héðan í frá gulur en merki flokks­ins var áður blátt, hvítt og rautt. Í til­kynn­ingu segir að lit­ur­inn líki „eftir sól­inni, er von­ar­neisti og boð um betri tíma. Hann er nær gildum flokks­ins sem snúa að vel­ferð og stendur upp úr, hvar sem hann er. Samhliða gula litnum verður svar­fjólu­blár not­aður og bleikur þegar á við, en hann er skírskotun í rætur flokks­ins. Merkið verður áfram frið­ar­dúfa en með end­ur­bættu útliti og breyttum vængjum sem mynda tvö „F” sem standa fyrir nafn flokks­ins. Nýtt, snyrti­legt og auð­les­an­legt letur end­ur­speglar þá hug­sjón að Flokkur Fólksins vill tala til allra, ekki síst til þeirra sem eldri eru.“

Eru með tvo þingmenn

Flokkur fólks­ins, með Ingu Sæland í broddi fylk­ing­ar, fékk 6,9 pró­sent atkvæða í kosn­ing­unum 2017 og er minnsti flokk­ur­inn á þingi. Upp­haf­lega voru þing­menn­irnir fjórir en tveir þeirra, Ólafur Ísleifs­son og Karl Gauti Hjalta­son, voru reknir úr flokknum eftir Klaust­urs­málið og gengu skömmu síðar til liðs við Mið­flokk­inn. Flokk­ur­inn hefur sjaldn­ast mælst inni á þingi á kjör­tíma­bil­inu í könn­unum en á því varð þó breyt­ing í könnun MMR sem birt var fyrr í des­em­ber. Þar mæld­ist fylgið 6,2 pró­sent.

[adspot]Kjarninn greindi frá því fyrr í þessum mán­uði að Flokkur fólks­ins hefði hagn­ast um tæp­lega 43 millj­ónir króna á árinu 2019.

Tekjur flokks­ins komu nær ein­vörð­ungu úr opin­berum sjóð­­um. Alls nam fjár­­fram­lag úr rík­­is­­sjóði 62,2 millj­­ónum króna og fjár­­fram­lag frá Reykja­vík­­­ur­­borg var tæp­­lega 1,1 milljón krón­­ur. Einu öðru tekj­­urnar sem Flokkur fólks­ins hafði á árinu 2019 voru félags­­­gjöld upp á 295 þús­und krón­­ur.

Safna í digran kosningasjóð

Kostn­að­­ur­inn við rekstur flokks­ins, sem er með tvo þing­­menn á þingi og einn full­­trúa í borg­­ar­­stjórn Reykja­vík­­­ur, er ein­ungis brot af tekjum hans. Í fyrra kost­aði rekst­­ur­inn alls 22,1 milljón króna og því sat meg­in­þorri þeirrar fjár­­hæðar sem Flokkur fólks­ins fékk úr rík­­is­­sjóði eftir á banka­­reikn­ingi hans í árs­­lok. Alls eyddi Flokkur fólks­ins því um 35 pró­sent af tekjum sínum í rekstur í fyrra, en lagði afgang­inn til hliðar til. Svipað var uppi á ten­ingnum árið 2018 þegar hagn­aður Flokks fólks­ins var 27 millj­­ónir króna.

Því átti flokk­­ur­inn 65,6 millj­­ónir króna í hand­­bært fé í lok síð­asta árs og búast má við að nokkrir tugir millj­­óna króna bæt­ist við þá upp­­hæð í ár og á því næsta sem munu nýt­­ast í kosn­­inga­bar­átt­una sem er framundan vegna þing­­kosn­­inga í sept­­em­ber 2021.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

kosningar2021

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár