Samfylkingin sýnir á kosningaspilin

Í kosn­inga­stefnu Sam­fylk­ing­ar­innar eru sett fram lof­orð um kjara­bætur eldri borg­ara, öryrkja og barna­fjöl­skyldna. Auk þess boðar flokk­ur­inn upp­töku stór­eigna­skatta, hærri álögur á stærstu útgerð­ar­fyr­ir­tækin og metn­að­ar­fyllri aðgerðir í lofts­lags­málum.

Logi Einarsson formaður Samfylkingarinnar heldur ræðu á fundinum í dag.
Logi Ein­ars­son for­maður Sam­fylk­ing­ar­innar heldur ræðu á fund­inum í dag. Mynd: Samfylkingin

Sam­fylk­ingin boðar sókn gegn sér­hags­munum, auk­inn stuðn­ing við fjöl­skyldu­fólk, stór­eigna­skatta og metn­að­ar­fyllri aðgerðir í lofts­lags­málum í kosn­inga­stefnu sinni, sem kynnt var á fundi í Aurora Basecamp í Hafn­ar­firði í dag.

Kosn­inga­stefna flokks­ins er sett fram undir slag­orð­inu Betra líf, fyrir þig, þína fjöl­skyldu og kom­andi kyn­slóðir og sagði Logi Ein­ars­son for­maður flokks­ins í ávarpi sínu að í stefn­unni væri ekk­ert að finna sem Sam­fylk­ingin væri óviss um að geta fram­kvæmt, ef hún kæm­ist til valda eftir kom­andi kosn­ingar.

Hann sagði Sam­fylk­ing­una þannig ekki ætla í „lof­orða­kapp­hlaup“ við flokka sem kæmu fram með „óraun­hæfar til­lögur“ fyrir kosn­ingar, flokka sem væru fyrst og fremst að bjóða sig fram til þess að „veita hávært aðhald“. Logi nefndi ekki neinn sér­stakan flokk í þessu sam­hengi.

Barnabætur fyrir meðaltekjufólk

Í kosn­inga­stefnu Sam­fylk­ing­ar­innar eru þó nokkur lof­orð, sem sum hver eru ansi stór að vöxtum. Þannig seg­ist flokk­ur­inn ætla að end­ur­reisa stuðn­ings­kerfið fyrir barna­fjöl­skyldur með því að greiða fullar barna­bætur með öllum börnum til for­eldra með allt að með­al­tekjum, sem séu 1.200 þús­und krónur hjá pari eða 600 þús­und krónur hjá ein­stæðum for­eldrum.

Þetta segir flokk­ur­inn að muni skila sér í því að með­al­fjöl­skylda með tvö börn, sem í dag fái engar barna­bætur, fái 54 þús­und krónur í hverjum mán­uði.

Einnig lofar Sam­fylk­ingin því að hækka þak á greiðslum í fæð­ing­ar­or­lofi og vinna með sveit­ar­fé­lögum að því að brúa bilið á milli fæð­ing­ar­or­lofs og leik­skóla og hækka fæð­ing­ar­styrk náms­manna og for­eldra utan vinnu­mark­aðar í dæmi­gert neyslu­við­mið félags­mála­ráðu­neyt­is­ins.

Stóreignaskattar á hreina eign yfir 200 milljónum

Í skatta­málum seg­ist Sam­fylk­ingin vilja beita skatt­kerf­inu til þess að draga úr ójöfn­uði. Flokk­ur­inn seg­ist ætla sér að inn­leiða á ný stór­eigna­skatt á hreina eign umfram 200 millj­ónir og efla skatt­eft­ir­lit og skatt­rann­sóknir til að draga úr und­an­skotum. Þá vill flokk­ur­inn fela emb­ætti skatt­rann­sókn­ar­stjóra ákæru­vald.

Einnig seg­ist Sam­fylk­ingin ætla sér að hækka veiði­gjöld og taka upp sér­stakt álag á stærstu útgerðir, sem veiða yfir fimm þús­und þorskígildistonn á ári. Þetta segir flokk­ur­inn að muni ein­ungis leggj­ast á um tutt­ugu stærstu fyr­ir­tækin í íslenskum sjáv­ar­út­vegi.

Þúsund leigu- og búseturéttaríbúðir á ári

Í hús­næð­is­málum seg­ist Sam­fylk­ingin vilja hafa for­ystu um grund­vall­ar­stefnu­breyt­ingu og að fjöl­skyldur eigi rétt á hús­næð­is­ör­yggi hvort sem þær eigi heim­ili sitt eða leigi.

[adspot]

Sam­fylk­ingin seg­ist ætla að stuðla að því að byggðar verði 1.000 leigu- og búsetu­réttar­í­búðir árlega með hús­næð­is­fé­lögum án hagn­að­ar­sjón­ar­miða og að það kalli á tvö­földun stofn­fram­laga til slíkra bygg­inga. Einnig seg­ist flokk­ur­inn vilja færa hús­næðis- og bygg­ing­ar­mál undir eitt ráðu­neyti sem hafi yfir­sýn og beri ábyrgð á upp­bygg­ingu um allt land.

Þá seg­ist flokk­ur­inn ætla að styðja við rann­sóknir og nýsköpun í þróun bygg­inga til að ná niður bygg­ing­ar­kostn­aði og huga sér­stak­lega að því að tryggja fram­boð á íbúðum fyrir ungt fólk og hús­næði­kjarna fyrir eldra fólk.

Frítekjumark öryrkja fari úr 110 þúsund í 200 þúsund

Í mál­efnum eldri borg­ara og öryrkja seg­ist Sam­fylk­ingin vilja draga úr skerð­ingum í almanna­trygg­ingum og ráð­ast í heild­ar­end­ur­skoðun almanna­trygg­inga. Í kosn­inga­stefnu flokks­ins segir að mark­miðið sé að líf­eyrir verði ekki lægri en lægstu laun, frí­tekju­mark líf­eyr­is­greiðslna verði fjór­faldað upp í 100 þús­und krónur og frí­tekju­mark atvinnu­tekna verði þre­faldað upp í 300 þús­und krónur.

Þær aðgerðir sem Sam­fylk­ingin lofar því að ráð­ast í strax er að hækka frí­tekju­mark öryrkja vegna atvinnu­tekna úr 110 þús­und krónum upp í 200 þús­und og tvö­falda frí­tekju­mark eldra fólks vegna líf­eyr­is­sjóðs­greiðslna, úr 25 þús­und upp í 50 þús­und, auk þess að hækka frí­tekju­mark atvinnu­tekna upp í 200 þús­und krónur.

Keflavíkurlína og Landlína auk Borgarlínu

Í lofts­lags­málum boðar Sam­fylk­ingin „nýja og miklu metn­að­ar­fyllri“ aðgerða­á­ætlun, auk þess sem lagt er til að mark­mið um að minnsta kosti 60 pró­senta sam­drátt í losun Íslands fyrir árið 2030 verði fest í lög.

Þá seg­ist flokk­ur­inn ætla að hefja und­ir­bún­ing að Kefla­vík­ur­línu, grænni teng­ingu á milli Reykja­víkur og Kefla­vík­ur­flug­vallar og flýta Borg­ar­línu og öðrum lofts­lagsvænum fram­kvæmdum í sam­göngu­á­ætlun.

Einnig seg­ist flokk­ur­inn ætla sér að byggja upp Landlínu, „heild­stætt almenn­ings­vagna­net svo að það verði ein­faldur og raun­hæfur kostur fyrir fólk að ferð­ast um Ísland án einka­bíls.“

Flokk­ur­inn seg­ist líka ætla sér að hraða orku­skiptum í sam­göngum og raf­væða bíla­leigu­bíla­flot­ann með skatta­legum hvötum og mark­vissri upp­bygg­ingu hleðslu­inn­viða. Þá vill Sam­fylk­ingin afnema skatta­af­slátt sem er í dag veittur af kaupum bíla sem ganga fyrir jarð­efna­elds­neyti, tengilt­vinn­bílum.

Frítekjumark fyrir lítil fyrirtæki og einyrkja

Hvað efna­hags- og atvinnu­mál varðar seg­ist Sam­fylk­ingin vilja að Ísland vaxti út úr krepp­unni. Flokk­ur­inn seg­ist hafna „nið­ur­skurðar­á­ætl­unum rík­is­stjórn­ar­innar til næstu ára“ sem boð­aðar hafi verið í fjár­mála­á­ætlun næstu ára með orð­unum „afkomu­bæt­andi ráð­staf­anir“.

Sam­fylk­ingin seg­ist ætla sér að fjár­festa af krafti í grunn­innviðum og auka stuðn­ing við nýjar stoðir í atvinnu­líf­inu. Flokk­ur­inn seg­ist einnig ætla sér að ein­falda rekstr­ar­um­hverfi lít­illa fyr­ir­tækja og ein­yrkja, auka þjón­ustu við þau og létta álögur á þau með setn­ingu frí­tekju­marks fyrir fyr­ir­tæki, sem sam­kvæmt kosn­inga­stefn­unni á að eiga eitt­hvað skylt við per­sónu­af­slátt ein­stak­linga.

Grunnframfærsla námsmanna verði fært upp að neysluviðmiði

Í mennta­málum seg­ist Sam­fylk­ingin ætla sér að hækka grunn­fram­færslu náms­manna í dæmi­gert neyslu­við­mið félags­mála­ráðu­neyt­is­ins og tryggja að frí­tekju­mark náms­manna sem eru á náms­lánum fylgi launa­þróun.

Flokk­ur­inn seg­ist einnig ætla að efla iðn-, verk- og starfs­nám þannig að fleiri geti fengið inn­göngu í þessar greinar, auk þess að efla list­nám með lækkun skóla­gjalda við Lista­há­skóla Íslands og greið­ara aðgengi að list­námi um allt land.

Sam­fylk­ingin seg­ist einn ætla sér að auka fram­lög til rann­sóknar- og vís­inda­sjóða og styðja nýsköpun og þró­un­ar­starf í mennta­málum.

Meira fjármagn í heilbrigðismál

Sam­fylk­ingin seg­ist vilja setja meira fé í heil­brigð­is­mál, ráð­ast í aðgerðir gegn und­ir­mönnun og stytta biðlista eftir brýnum aðgerðum. Þá vill flokk­ur­inn ráð­ast í þjóð­ar­á­tak í geð­heil­brigð­is­málum um allt land.

Flokk­ur­inn seg­ist jafn­framt vilja að ríkið greiði allan ferða­kostnað inn­an­lands vegna nauð­syn­legrar heil­brigð­is­þjón­ustu við fólk fjarri heima­byggð, auk þess að nýta betur fjár­magn sem veitt sé til heil­brigð­is­mála.

Þá vill flokk­ur­inn létta álagi af Land­spít­ala með „kerf­is­breyt­ingum, nýjum búsetu- og þjón­ustu­úr­ræðum fyrir eldra fólk, auk­inni heima­þjón­ustu og mark­vissri fjölgun hjúkr­un­ar­rýma.“

Þjóðaratkvæði um ESB og ný stjórnarskrá

Sam­fylk­ingin vill að Ísland gangi inn í Evr­ópu­sam­bandið og er með það í kosn­inga­stefnu sinni að staðið verði við fyr­ir­heit um að þjóðin fái að kjósa um fram­hald aðild­ar­við­ræðna.

Einnig vill Sam­fylk­ingin að unnið verði að nýrri stjórn­ar­skrá á grunni þjóð­ar­at­kvæða­greiðsl­unnar frá 2012. „Þjóð­ar­eign auð­linda, jafnt atkvæða­vægi og umhverf­is­vernd eru á meðal þess sem við teljum brýnt að binda í stjórn­ar­skrá,“ segir í kosn­inga­stefnu flokks­ins.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

kosningar2021

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár