Sættir hafa náðst hjá Viðreisn og Benedikt starfar áfram innan flokksins

Benedikt Jóhann­es­son fyrr­ver­andi for­maður Við­reisnar greinir frá því í dag að sam­komu­lag hafi náðst um að hann starfi áfram með flokknum.

Benedikt Jóhannesson, einn stofnenda Viðreisnar, mun starfa áfram með flokknum.
Benedikt Jóhann­es­son, einn stofn­enda Við­reisnar, mun starfa áfram með flokknum. Mynd: Birgir Þór Harðarson

Mál­funda­fé­lagið End­ur­reisn, sem stofnað var fyrir skömmu af Benedikt Jóhann­essyni og fleirum, verður félag innan Við­reisnar. Benedikt sjálfur mun því áfram starfa innan vébanda Við­reisnar.

Frá þessu greinir hann sjálfur í færslu á Facebook í dag, en þar birtir hann til­kynn­ingu um málið, þar sem fram kemur að stjórn Við­reisnar hafi á fimmtu­dag sam­þykkt til­lögu sem felur meðal ann­ars í sér að End­ur­reisn, sem berst fyrir heið­ar­leika, góðum stjórn­ar­háttum, dreng­lyndi í stjórn­málum, frelsi, jafn­rétti, stöð­ugu efna­hags­lífi og rétt­læti, verði hluti af Viðreisn.[links]

Prófkjör verði meginregla

Í færslu Bene­dikts segir að sam­komu­lag hafi náðst um að „horft sé fram á veg­inn og allir félagar berj­ist innan Við­reisnar fyrir hug­sjónum flokks­ins,“ en fyrr í sumar úti­lok­aði Benedikt ekki að stofna annan stjórn­mála­flokk í kjöl­far þess að upp­still­ing­ar­nefnd Við­reisnar bauð honum ekki for­ystu­sæti á Suð­vest­ur­horn­inu, heldur neðsta sæti á lista.

Í kjöl­farið sagði hann sig frá trún­að­ar­störfum fyrir flokk­inn.

Í til­kynn­ing­unni sem Benedikt birtir í dag kemur fram að þær til­lögur sem sam­komu­lag hafi náðst um feli meðal ann­ars í sér að próf­kjör verði meg­in­regla um val á efstu sætum lista flokks­ins.

Tillaga um slíkt muni koma til umræðu á kom­andi lands­þingi Við­reisnar.

Þorgerður Katrín ánægð með samkomulagið

Þar er einnig vitnað til orða Þor­gerðar Katrínar Gunn­ars­dóttur for­manns Við­reisnar um málið. „Ég er ánægð með að sam­komu­lag hafi náðst og þá sér­stak­lega með að Benedikt muni áfram starfa með flokknum enda öfl­ugur liðs­maður. Við höfum sam­eig­in­lega sýn á það hvernig gera má íslenskt sam­fé­lag betra og ég hef fulla trú á því að saman eigum við eftir að gera flokk­inn sterk­ari,“ er haft eftir for­mann­inum í til­kynn­ing­unni sem Benedikt birtir.

[adspot]

Benedikt kveðst jafn­framt ánægður og segir nú skipta máli „að snúa bökum saman og berj­ast saman fyrir nauð­syn­legum grund­vall­ar­breyt­ingum á íslensku sam­fé­lagi“ þar sem áherslu­mál Við­reisnar hafi „aldrei verið eins mik­il­væg fyrir þjóð­ina og einmitt núna.“

„Það þarf að setja á odd­inn að reisa fjár­hag rík­is­ins eftir Covid-far­ald­ur­inn og halla­rekstur und­an­farin ár, afla­heim­ildir verði seldar á mark­aði til tak­mark­aðs tíma þannig að hluti þeirra verði boð­inn upp á hverju ári, kosn­inga­réttur allra verði jafn, óháð búsetu, inn­flutn­ingur mat­væla verði frjáls og tollar og önnur gjöld á þau afnumdir. Gengi krón­unnar verði tengt við evru með það að mark­miði að hægt verði að taka upp evru þegar þar að kemur, ríki og sveit­ar­fé­lög hætti að sinna verk­efnum sem einka­að­ilar geta sinnt og aðför að einka­rekstri í heil­brigð­is­kerf­inu verði hætt.

Hér eftir sem hingað til mun ég starfa af fullum heil­indum að þessum mark­miðum innan Við­reisnar,“ hefur Benedikt eftir sjálfum sér, í til­kynn­ing­unni um þessar sættir innan Við­reisnar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

kosningar2021

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár