Flokkur fólksins og Samfylkingin eyddu um milljón hvor á Facebook á 90 dögum

Þeir stjórn­mála­flokkar sem mæl­ast með mögu­leika á því að ná inn þing­manni í kom­andi kosn­ingum hafa sam­tals eytt 25,6 millj­ónum króna í aug­lýs­ingar á Facebook á einu ári.

Samfylkingin og Flokkur fólksins hafa verið dugleg við að nýta samfélagsmiðla til að kynna frambjóðendur sína og stefnumál undanfarið.
Sam­fylk­ingin og Flokkur fólks­ins hafa verið dug­leg við að nýta sam­fé­lags­miðla til að kynna fram­bjóð­endur sína og stefnu­mál und­an­farið. Mynd: Samsett


Flokkur fólks­ins aug­lýsti mest allra flokka á Facebook á þriggja mán­aða tíma­bili, frá miðjum maí og fram í miðjan ágúst­mánuð. Alls keypti flokk­ur­inn aug­lýs­ingar á sam­fé­lags­miðl­inum fyrir um 1,1 milljón króna. Sam­fylk­ingin var ekki langt undan, en hún keypti aug­lýs­ingar fyrir rétt undir einni milljón króna á tíma­bil­inu.

Þetta má sjá í skýrslu aug­lýs­inga­safns Face­book. Þar kemur fram að á því 90 daga tíma­bili sem skýrslan nær til hafi þeir níu flokkar sem mæl­ast með mögu­leika á því að kom­ast inn á þing eytt um 3,5 millj­ónum króna í aug­lýs­ingar á Facebook. Frá því í ágúst í fyrra hafa flokk­arnir níu alls keypt 7.569 aug­lýs­ingar fyrir sam­tals 25,6 millj­ónir króna.

Flokkur fólks­ins og Sam­fylk­ingin skera sig úr í eyðslu á tíma­bil­inu. Á eftir þeim kemur Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn sem hefur eytt 577 þús­und krónur og á eftir honum kemur Sós­í­alista­flokkur Íslands sem hefur eytt 190 þús­und krónum. Þeir þrír flokkar sem hafa eytt mestu á Facebook síð­ustu þrjá mán­uði: Flokkur fólks­ins, Sam­fylk­ingin og Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn hafa sam­tals eytt 76 pró­sent af öllu því fé sem íslenskir stjórn­mála­flokkar hafa eytt í aug­lýs­ingar á sam­fé­lags­miðl­inum á tíma­bil­inu. Sam­an­lagt fylgi þess­ara þriggja flokka, sam­kvæmt nýbirtri kosn­inga­spá Kjarnans, er 40,3 pró­sent.

Næst­kom­andi laug­ar­dag verða nákvæm­lega fimm vikur í kosn­ingar og í síð­ustu viku var þing form­lega rofið. Því má búast við því að kosn­inga­bar­átta flokka hefj­ist af fullri alvöru á allra næstu dögum. Í tölum úr aug­lýs­inga­safni Facebook má sjá að síð­ustu 30 daga hefur Sam­fylk­ingin eytt mestu í aug­lýs­ingar á sam­fé­lags­miðl­inum en þegar horft er til síð­ustu sjö daga þá hefur Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn vinn­ing­inn.

Flokkarnir skiptu á milli sín 2,8 milljörðum

Á yfir­stand­andi kjör­tíma­bili ákváðu meiri­hluti þeirra flokka sem eiga sæti á Alþingi að hækka fram­lög til stjórn­mála­flokka um 127 pró­sent. Fyrir vikið hafa þeir skipt á milli sín 2,8 millj­örðum króna á kjör­tíma­bil­inu úr opin­berum sjóðum.

[links]Síðustu birtu árs­reikn­ingar flokka sem eru aðgengi­legir almenn­ingi fyrir kom­andi kosn­ingar eru vegna árs­ins 2019. Inn í þá vantar því fram­lag árs­ins 2020 og 2021, en sam­an­lagt áttu flokk­arnir átta að fá um 1.456 millj­ónir króna til að skipta á milli sín á þeim tveimur árum.

Sós­í­alista­flokkur Íslands er eini flokk­ur­inn sem mælist með mögu­leika á því að ná manni inn á þing sem nýtur ekki þess­arar opin­beru fyr­ir­greiðslu, heldur þarf að fjár­magna sig með fram­lögum frá stuðn­ings­fólki flokks­ins. Fylgi hans mælist 6,1 pró­sent í nýj­ustu kosn­inga­spá Kjarnans.

Til sam­an­burðar átti Flokkur fólks­ins, sá sem aug­lýsir mest á Facebook, 65,6 millj­ónir króna í hand­bæru fé í lok árs 2019. Flokk­ur­inn fékk um 62 millj­ónir króna í fram­lag úr rík­is­sjóði á árinu 2019 en þá kost­aði um 22 millj­ónir króna að reka flokk­inn. Ef reiknað er með að rekstur hans hafi verið svip­aður á árunum 2020 og 2021 má ætlað að Flokkur fólks­ins, sem mæld­ist með 4,4 pró­sent fylgi í nýj­ustu kosn­inga­spánni, hafi úr rúm­lega 100 millj­ónum króna að spila í kom­andi kosn­ingum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

kosningar2021

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár