Flokkur fólksins safnar upp digrum kosningasjóði með framlögum úr ríkissjóði

Hagnaður Flokks fólks­ins á árinu 2019 var 68 pró­sent af veltu flokks­ins. Um síð­ustu ára­mót átti flokk­ur­inn tæp­lega 66 millj­ónir króna í hand­bæru fé. Það mun bæt­ast við þann sjóð í ár og á því næsta. Nær allar tekjur Flokks fólks­ins koma úr rík­is­sjóði.

Inga Sæland, formaður Flokks fólksins.
Inga Sæland, for­maður Flokks fólks­ins. Mynd: Bára Huld Beck

Flokkur fólks­ins hagn­að­ist um tæp­lega 43 millj­ónir króna á árinu 2019. Tekjur flokks­ins komu nær ein­vörð­ungu úr opin­berum sjóðum. Alls nam fjár­fram­lag úr rík­is­sjóði 62,2 millj­ónum króna og fjár­fram­lag frá Reykja­vík­ur­borg var tæp­lega 1,1 milljón krónur. Einu öðru tekj­urnar sem Flokkur fólks­ins hafði á árinu 2019 voru félags­gjöld upp á 295 þús­und krónur. Þau rúm­lega helm­ing­uð­ust á milli ára.

Kostn­að­ur­inn við rekstur flokks­ins, sem er með tvo þing­menn á þingi og einn full­trúa í borg­ar­stjórn Reykja­víkur, er ein­ungis brot af tekjum hans. Í fyrra kost­aði rekst­ur­inn alls 22,1 milljón króna og því sat meg­in­þorri þeirrar fjár­hæðar sem Flokkur fólks­ins fékk úr rík­is­sjóði eftir á banka­reikn­ingi hans í árs­lok. Svipað var uppi á ten­ingnum árið 2018 þegar hagn­aður Flokks fólks­ins var 27 millj­ónir króna.

Því á flokk­ur­inn 65,6 millj­ónir króna í hand­bært fé og búast má við að nokkrir tugir millj­óna króna bæt­ist við þá upp­hæð í ár og á því næsta sem munu nýt­ast í kosn­inga­bar­átt­una sem er framundan vegna þing­kosn­inga í sept­em­ber 2021.

[adspot]Fram­lög úr rík­is­sjóði hækk­­uðu veru­­lega í kjöl­far þess að til­­laga sex flokka sem sæti eiga á Alþingi um að hækka fram­lag rík­­­­­is­ins til stjórn­­­­­­­­­mála­­­­­flokka á árinu 2018 um 127 pró­­­­­sent var sam­­­­­þykkt í fjár­­­­­lögum sem voru afgreidd áður en þingi var slitið í lok des­em­ber 2017.

Sam­an­lagt verða þau um 2,8 millj­arðar króna á kjör­tíma­bil­inu öllu. Þá eru ótalin fram­lög úr sjóðum sveit­ar­fé­laga.

Einu flokk­­­­arnir sem skrif­uðu sig ekki á til­­­­lög­una voru Píratar og Flokkur fólks­ins.

68 prósent af veltu

Flokkur fólks­ins, með Ingu Sæland í broddi fylk­ingar, fékk 6,9 pró­sent atkvæða í kosn­ing­unum 2017 og er minnsti flokk­ur­inn á þingi. Upp­haf­lega voru þing­menn­irnir fjórir en tveir þeirra, Ólafur Ísleifs­son og Karl Gauti Hjalta­son, voru reknir úr flokknum eftir Klaust­urs­málið og gengu skömmu síðar til liðs við Mið­flokk­inn. Flokk­ur­inn hefur sjaldn­ast mælst inni á þingi á kjör­tíma­bil­inu í könn­unum en á því varð þó breyt­ing í könnun MMR sem birt var í vik­unni. Þar mæld­ist fylgið 6,2 pró­sent.

[links]Hagnaður Flokks fólks­ins í fyrra var um 68 pró­sent af veltu. Til sam­an­burðar var hagn­aður stærsta stjórn­mála­flokks lands­ins, Sjálf­stæð­is­flokks, tæp­lega 20 pró­sent af veltu.

Stjórn­mála­flokk­arnir áttu allir að skila inn árs­reikn­ingum til Rík­is­end­ur­skoð­unar fyrir 1. nóv­em­ber og eru reikn­ing­arnir birtir nú birtir í heild sinni í fyrsta sinn eftir að Rík­is­end­ur­skoðun fer yfir þá. Áður voru ein­ungis birtir útdrættir úr reikn­ing­un­um.

Sex flokkar skil­uðu á réttum tíma og reikn­ingar þeirra voru birtir 21. nóv­em­ber síð­ast­lið­inn. Þar kom fram að sam­an­lagt skil­uðu þessir sex flokk­ar, sem eru allir stjórn­mála­flokkar á þingi utan Pírata og Flokks fólks­ins, hagn­aði upp á 304 millj­ónir króna á árinu 2019.

Stjórn Flokks fólks­ins skrif­aði undir reikn­ing hans 4. des­em­ber, rúmum mán­uði eftir að frest­ur­inn rann út.

Eini árs­reikn­ingur flokks sem er með sæti á þingi sem Rík­is­end­ur­skoðun hefur ekki birt er reikn­ingur Pírata.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

kosningar2021

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár