240 íslenskar fjölskyldur áttu 293 milljarða króna í eigið fé um síðustu áramót

Tvær af hverjum þremur krónum sem urðu til af nýjum auði á Íslandi í fyrra, og rann beint til ein­stak­linga, fóru til rík­ustu fimm pró­sent lands­manna. Eigið fé lands­manna hefur ekki hækkað jafn lítið milli ára síðan á árinu 2010.

Það 0,1 pró­sent íslenskra fjöl­skyldna sem var með mestar tekjur í fyrra átti alls 293 millj­arða króna í eigið fé í lok árs 2020. Um er að ræða 240 fjöl­skyldur og því er með­al­eign á hverja fjöl­skyldu um 1,2 millj­arðar króna.

Á árinu 2020 óx eigið fé 0,1 pró­sent rík­asta hluta þjóð­ar­innar um 10,8 millj­arða króna. Alls hefur það vaxið um 131 millj­arð króna frá árinu 2010, eða um 81 pró­sent. Hlut­falls­lega dregst hlut­deild þessa hóps af heild­ar­eignum þjóð­ar­innar lít­il­lega saman í stað milli ára en næstum níu pró­sent af nýjum auði sem varð til á Íslandi í fyrra rann til hans.

Eigið fé lands­manna jókst minna í fyrra en það hafði gert árin á undan. Það var til að mynda 1.565 millj­arðar króna í lok árs 2010 og óx upp í 5.176 millj­arða króna í lok árs 2019, sem var í fyrsta sinn sem það fór yfir fimm þús­und millj­arða króna. Það þýðir að eigið fé óx að með­al­tali um 401 millj­arða króna á því tíma­bili. Mest hækk­aði eigin féð á árunum 2017 (760 millj­arðar króna) og 2018 (641 millj­arðar króna), en vert er að taka fram að á þeim árum varð mesta hækkun sem átt hefur sér stað á vexti á eigin fé frá því að Hagstofa Íslands hóf að halda utan um þær tölur. Í fyrra bætt­ust hins vegar ein­ungis við 122 millj­arðar króna. Það er minnsta aukn­ing á eigin fé innan árs sem orðið hefur hér­lendis í meira en ára­tug.

Af þeim fóru 77 millj­arðar króna til rík­ustu fimm pró­senta lands­ins, um tólf þús­und fjöl­skyldna. Því fór um 64 pró­sent af nýjum auði sem varð til á árinu 2020 til rík­ustu fimm pró­sent lands­manna. Sá hópur átti 2.076 millj­arða króna sam­an­lagt í lok síð­asta árs.

Ríkasta eitt pró­sentið, alls um 2.400 fjöl­skyldur, bættu 37,3 millj­örðum króna við eigið fé sitt í fyrra, eða um 30 pró­sent af öllum nýjum auð sem varð til á því ári. Þessar fjöl­skyldur áttu sam­tals 902,2 millj­arða króna í lok árs 2020.

Þetta kemur fram í svari Bjarna Bene­dikts­sonar, fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra, við fyr­ir­spurn Loga Ein­ars­sonar, for­manns Sam­fylk­ing­ar­innar, um skuldir og eignir lands­manna sem birt var síð­degis í dag á vef Alþingis.

Ekki tekið tillit til eigna í lífeyrissjóðum

Ein­faldur sam­an­burður á eigna­stöðu fólks á Íslandi er flók­inn. Sér­stak­lega vegna þess að þær hag­tölur sem safnað er saman mæla ekki að öllu leyti heild­ar­eignir fólks né taka til­lit til hlut­deildar þess í eignum líf­eyr­is­sjóða­kerf­is­ins, sem er risa­vaxið og á eignir sem í lok apríl síð­ast­lið­ins voru yfir sex þús­und millj­arða króna virði. Ef þeirri eign er deilt í fjölda lands­manna þá ætti hver og einn um 16,3 millj­óna króna eign í líf­eyr­is­sjóða­kerf­inu að með­al­tali.

Hluti þeirra eigna eru inn­lendar verð­bréfa­eignir eins og hluta­bréf í skráðum félögum.

Þær tölur sem eru hér til umfjöll­unar eru yfir eignir sem fólk hefur safnað saman utan líf­eyr­is­eignar. Hjá flestum Íslend­ingum er meg­in­uppi­staða þeirra eigna bundin í heim­ilum þeirra. Bein þátt­taka almenn­ings á hluta­bréfa­mark­aði hefur verið dræm á und­an­förnum árum, þótt hún hafi glæðst veru­lega í ár af ýmsum ástæðum. Í lok árs 2019 áttu til að mynda um átta þús­und ein­stak­lingar hluta­bréf hér­lendis, en sá hópur telur nú um 32 þús­und manns.

0,1 prósent þénuðu stóran hluta af fjármagnstekjum

Það 0,1 pró­sent lands­manna sem var með mestar tekjur í fyrra var með 32,6 millj­arða króna í fjár­magnstekjur. Slíkar tekjur voru 60 pró­sent af öllum tekjum hóps­ins á árinu 2020. Til sam­an­burðar þén­uðu þær tólf þús­und fjöl­skyldur sem höfðu hæstar tekjur á síð­asta ári um 75 millj­arða króna í fjár­magnstekjur. Það þýðir að rík­ustu 240 fjöl­skyld­urnar í hópnum tóku til sín um 44 pró­sent af öllum fjár­magnstekjum sem tekju­hæstu fimm pró­sent lands­manna þén­uðu á síð­asta ári.

Logi Einarsson spurði Bjarna Benediktsson um eignir og skuldir ríkustu landsmanna.
Logi Ein­ars­son spurði Bjarna Bene­dikts­son um eignir og skuldir rík­ustu lands­manna.

Eigið fé rík­ustu hópanna hér­lendis hefur verið stór­lega van­metið, og er mun meira en þær tölur sem hér eru til umfjöll­unar segja til um. Hluti verð­bréfa­eignar, hluta­bréf í inn­lendum og erlendum hluta­fé­lögum, er metin á nafn­virði, en ekki mark­aðsvirði. Þá eru fast­eignir metnar á sam­kvæmt fast­eigna­mati, ekki mark­aðsvirði, sem er í flestum til­fellum hærra.

Það þýðir að ef verð­bréf í t.d. hluta­fé­lögum hafi hækkað í verði frá því að þau voru keypt þá kemur slíkt ekki fram í þessum tölum. Úrvals­vísi­tala Kaup­hallar Íslands hefur til að mynda hækkað um 55 pró­sent á einu ári.

Meg­in­þorri verð­bréfa sem eru í beinni eigu ein­stak­linga til­heyra þeim tíu pró­sentum lands­manna sem eru rík­astir. Sá hópur átti 86 pró­sent allra verð­bréfa sem eru í beinni eigu ein­stak­linga í lok árs 2019.

Eignir erlendis

Þessi hópur er líka lík­leg­astur allra til að eiga eignir utan Íslands sem koma ekki fram í ofan­greindum tölum, en áætlað hefur verið að íslenskir aðilar eigi hund­ruð millj­arða króna í aflands­fé­lögum sem ekki hafi verið gerð grein fyrir.

Þessi staða var meðal ann­ars dregin upp í skýrslu sem unnin var fyrir Bjarna Bene­dikts­son, fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra, eftir opin­berun Panama­skjal­anna og var birt í jan­úar 2017. Nið­ur­staða hennar var að upp­safnað umfang eigna Íslend­inga á aflands­svæðum frá árinu 1990 til 2015 næmi ein­hvers staðar á bil­inu 350 til 810 millj­örðum króna, og að tekju­tap hins opin­bera á árunum 2006 til 2014 vegna þessa væri lík­lega um 56 millj­örðum króna. Á hverju ári gæti tapið vegna van­tal­inna skatta því verið á bil­inu 4,6 til 15,5 millj­arðar króna.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið undanfarið ár