Ferðaþjónustu lokað, lífskjarasamningur á bláþræði og ósk um nýja atvinnustefnu

Kjarninn hitti á haust­mán­uðum full­trúa atvinnu­lífs og fékk sýn þeirra á stöðu mála og hvernig best væri að kom­ast út úr því ástandi sem upp var komið vegna veirunnar.

Kjarninn ákvað að taka ítar­leg við­töl við þetta fólk um ástandið vegna veirunnar og mesta atvinnu­leysi sem þjóðin hefur upp­lifað. Viðtölin sem vísað er í hér að neðan birt­ust frá lokum ágúst og til loka sept­em­ber­mán­aðar. Þriðja bylgjan svo­kall­aða var ekki skollin á Íslandi af þunga, en ljóst var að ein­hverjar hömlur myndu þurfa að vera á mann­lífi áfram um sinn. Nýbúið var að herða aðgerðir á landa­mærum.

Hagsmunir ferðaþjónustunnar, hagsmunir samfélagsins

Fyrstur í röð­inni var Jóhannes Þór Skúlason, fram­kvæmda­stjóri Samtaka ferða­þjón­ust­unnar, atvinnu­greinar sem nán­ast var búið að loka í sótt­varna­skyni. Samtalið hverfð­ist því að nokkru leyti um það og hertar aðgerðir á landa­mærum sem frá því 19. ágúst hafa falið í sér að ferða­menn þurfi að fara í tvær skimanir með sótt­kví á milli áður en þeir megi fara að blanda nokkru geði við þá sem hér á landi búa.

Jóhannes Þór sagði að taka þyrfti lang­tíma­á­hrif fjölda­at­vinnu­leysis inn í þær sviðs­myndir sem stjórn­völd væru að setja upp varð­andi efna­hags­leg áhrif mis­mun­andi sótt­varna­að­gerða. Hann sagði ferða­þjón­ust­una verða að ná við­spyrnu eins fljótt og mögu­legt væri, ann­ars myndi Ísland verða lengur að ná sér upp úr krepp­unni.

„Þú getur ekki talað um hags­muni ferða­þjón­ust­unnar án þess að tala um hags­muni sam­fé­lags­ins um leið. Hags­munir ferða­þjón­ust­unnar eru í raun­inni þeir að halda 25 þús­und manns í vinnu. Að ná inn tekjum sem hafa haldið fyr­ir­tækjum á lífi sem hafa staðið undir hátt í 40 pró­sent af verð­mæta­sköpun þjóð­ar­innar í gjald­eyri und­an­farin ár. Hags­munir sam­fé­lags­ins eru að þessi atvinnu­grein geti haldið áfram að standa undir einum þriðja af öllum inn­flutn­ingi vöru og þjón­ustu til lands­ins, eins og í fyrra,“ sagði Jóhannes Þór.

Jóhannes Þór nefndi í við­tal­inu að þegar hann starf­aði við kennslu í grunn­skóla eftir hrun fjár­mála­kerf­is­ins árið 2008 hefðu hann og kollegar hans í kenn­ara­stétt séð áhrifin af atvinnu­leysi og öðrum vanda­málum heim­il­anna koma fram löngu síðar.

„Það er ekki fyrr en haustið 2010 sem við fórum að sjá, til dæmis í ung­linga­deild­inni þar sem ég var að kenna, stór­aukn­ingu á hegð­un­ar­vanda­málum, vímu­efna­vanda­málum og alls kyns aga­vanda­málum sem fylgja því aug­ljós­lega að það eru erf­ið­leikar á heim­il­unum; langvar­andi atvinnu­leysi, fjár­hags­erf­ið­leikar eða annað. Þetta eru bara áhrifin á börnin,“ sagði Jóhannes Þór.

Sagðist neita að horfa á vinnumarkaðinn sem stríðsvöll

Halldór Benjamín Þor­bergs­son fram­kvæmda­stjóri Samtaka atvinnu­lífs­ins var næstur í röð­inni og tók á móti blaða­manni Kjarnans í Húsi atvinnu­lífs­ins í byrjun sept­em­ber. Atvinnu­leysi og vinnu­mark­aðs­mál – lífs­kjara­samn­ing­ur­inn – voru aðal­um­ræðu­efnið.

„Við tveir getum reynt hérna að rýna í krist­alskúlu og spurt okkur: „Mun atvinnu­á­standið á Íslandi batna í sept­em­ber, októ­ber og nóv­em­ber?“ Ég skal bara gefa þér mitt afdrátt­ar­lausa svar, að atvinnu­leysið mun halda áfram að aukast alla þessa mán­uði,“ sagði Halldór Benjamín – og reynd­ist sann­spár.

Kröfur verka­lýðs­hreyf­ing­ar­innar um hækkun grunnatvinnu­leys­is­bóta voru til umræðu í sam­fé­lag­inu þarna í sum­ar­lok. Samtök atvinnu­lífs­ins höfðu lagst gegn slíkum hækk­unum og Drífa Snædal for­seti Alþýðu­sam­bands Íslands sakað SA um mann­fjand­sam­lega afstöðu.

„Mér finnst svona munn­söfn­uður ekki sæm­andi for­seta ASÍ,“ sagði Halldór Benjamín um þau orð Drífu. Hann sagð­ist hafa farið hring­inn um landið í sumar og alls staðar fengið að heyra sömu sögu frá atvinnu­rek­endum: Þværi erfitt, þrátt fyrir atvinnu­á­standið, að fá fólk til vinnu.

Stjórn­völd kynntu 20. nóv­em­ber síð­ast­lið­inn að grunnatvinnu­leys­is­bætur næsta árs yrðu hækk­aðar um rúm­lega 7.000 krónur frá því sem áður var áætlað, með sér­stöku við­bót­ar­á­lagi. Þær verða því 307.430 krónur.

Í við­tal­inu ræddi Halldór Benjamín um að Íslend­ingum hefði sem þjóð mis­tek­ist að ná fram hag­kvæmni. „Við erum föst í viðjum van­ans og erum of hrædd við að gera drastískar breyt­ingar, sama hvort við horfum inn í heil­brigð­is­kerfið, mennta­kerfið eða stjórn­kerfið. Ég vil meina að skipu­lag á vinnu­mark­aði sé ekki ákjós­an­legt heldur og það sé kostn­að­ar­samt og búi til sóun í kerf­inu,“ sagði Halldór Benjamín.

Í því sam­hengi benti hann á að eitt og hálft ár væri liðið frá því að lífs­kjara­samn­ing­ur­inn var und­ir­rit­aður, en að ekki væri enn búið að ljúka kjara­lot­unni. Mögu­leiki væri þannig á að samn­ingnum yrði sagt upp án þess að búið væri að semja við öll félög á hans grunni. Það gerð­ist þó ekki – þrátt fyrir að Samtök atvinnu­lífs­ins lýstu yfir for­sendu­bresti – sem leiddi til mik­illar störu­keppni á vinnu­mark­aði.

Segja má að rík­is­stjórnin hafi á end­anum orðið fyrst til að blikka, en kynn­ing 25 millj­arða króna aðgerða­pakka þann 29. sept­em­ber leiddi til þess að Samtök atvinnu­lífs­ins ákváðu að láta kjara­samn­inga standa.

Stjórnvöld verði að hætta að velja sigurvegara

„Það eru mjög stórar ákvarð­anir og stra­tegískar sem bíða þess að vera teknar, um það á hverju við ætlum að byggja verð­mæta­sköp­un­ina,“ sagði Sigurður Hann­es­son við blaða­mann Kjarnans í við­tali sem birt­ist 14. sept­em­ber.

Þar lýsti hann þeirri skoðun sinni að ferða­þjón­ustan hefði á árunum eftir hrun fengið of mikla athygli stjórn­valda á sama tíma og önnur vaxt­ar­tæki­færi hafi farið for­görðum. Það sama megi ekki ger­ast nú – stjórn­völd þurfi að hætta að velja sig­ur­veg­ara.

„[É]g held því fram, og við hjá Samtökum iðn­að­ar­ins, að á næstu einum til tveimur árum verði teknar ákvarð­anir sem muni ráða því hvernig fram­tíðin til næstu tíu, tutt­ugu og jafn­vel þrjá­tíu ára verði í þessu sam­hengi,“ segir Sigurður og bætir við að Samtök iðn­að­ar­ins hafi árum saman kallað eftir því að stjórn­völd móti hér atvinnu­stefnu.

„Það hrökkva ýmsir í kút þegar þetta orð er nefnt, því það er ekki vel skil­greint hug­tak og hefur breyst í tím­ans rás. Ef við förum langt aftur í tím­ann, segjum 100 ár, þá byggði atvinnu­stefna – ekki bara hér á landi heldur víðar – á miklum rík­is­af­skiptum og eign­ar­haldi rík­is­ins á atvinnu­rekstri. Síðan kom tíma­bil þar sem stjórn­völd völdu sig­ur­veg­ara og þar á eftir kom tíma­bil einka­væð­ingar og kannski afskipta­leysis,“ sagði Sigurður. Atvinnu­stefna stjórn­valda í dag ætti hins vegar að snú­ast um að auka sam­keppn­is­hæfni með umbótum.

Sigurður sagði að efna­hags­að­gerðir stjórn­valda vegna kór­ónu­veiru­far­ald­urs­ins sýndu „svart á hvítu“ að stjórn­völd væru með atvinnu­stefnu af öðrum toga en þá sem hann teldi æski­lega.

„Sú atvinnu­stefna gengur út á það að velja sig­ur­veg­ara og þar er raunar einn sig­ur­veg­ari sem er á blaði og það er ferða­þjón­ustan. Aðgerðir stjórn­valda miða fyrst og fremst við að bjarga ferða­þjón­ust­unni. Það er skilj­an­legt, með hlið­sjón af því hvaða vægi hún hefur haft, þar eru fjöl­mörg störf undir og greinin mun sann­ar­lega ná fyrri styrk, það er bara spurn­ing um tíma, en á sama tíma eru tæki­færi sem fara for­görðum vegna þess að athygli stjórn­valda bein­ist ekki að þeim,“ sagði Sigurður.

Alltaf til að taka umræðuna

Kjarninn hitti Heiðrúnu Lind Mart­eins­dóttur fram­kvæmda­stjóra Samtaka fyr­ir­tækja í sjáv­ar­út­vegi undir lok mán­að­ar­ins. Á meðal þess sem var til umræðu var staðan á útflutn­ings­mörk­uðum fyrir íslenskan fisk og sú við­var­andi umræða sem er í sam­fé­lag­inu um sjáv­ar­út­veg og það hversu miklu atvinnu­greinin skilar, eða ætti að skila, í fjár­hirslur rík­is­ins.

Heiðrún Lind sagði ágætt að talað væri um sjáv­ar­út­veg, það sem hann skap­aði og skil­aði til sam­fé­lags­ins. „Allt er þetta eðli­leg umræða og við eigum að taka hana, sama á hvaða tíma hún kemur. En það er hins vegar mik­il­vægt, nú sem fyrr, að við séum með traustar stoðir undir efna­hag lands­ins,“ sagði Heiðrún Lind og nefndi að tvær hinar stóru stoð­irnar, ferða­þjón­ustan og álið, ættu undir högg að sækja.

„Þá hefði ég talið þeim mun mik­il­væg­ara að umræðan sner­ist um það hvernig við skjótum styrk­ari stoðum undir sjáv­ar­út­veg. Hvernig getur hann skapað meira verð­mæti? Umræðan, því miður, er stundum á þann veg eins og einu verð­mætin geti falist í veiði­gjaldi eða gjaldi fyrir nýt­ingu auð­lind­ar­innar,“ sagði Heiðrún Lind.

„Það að skatt­leggja grein­ina úr hófi mun leiða til þverr­andi sam­keppn­is­hæfni. Það mun draga úr fjár­fest­ingum, það verður minna svig­rúm til að fjár­festa í nýsköpun og mark­aðs­starfi, öllu því sem á að leiða til verð­mæta­sköp­unar. Vel má vera að aukin gjald­taka leiði til þess að meiri fjár­munir fara í rík­is­sjóð til skamms tíma, en til lengri tíma litið mun það þýða þverr­andi sam­keppn­is­hæfni og minni verð­mæti. Og þannig að end­ingu minni verð­mæti til bæði rík­is­sjóðs og sam­fé­lags­ins.

Mér finnst umræðan oft ein­földuð að þessu leyti, eins og að verð­mætin verði til með því að við fáum skatt í formi auð­linda­gjalds­ins. Ef að tekjur rík­is­ins á ári eru ríf­lega 900 millj­arðar króna, þá hefur einn millj­arður til eða frá í formi veiði­gjalds ekki úrslita­á­hrif í því hvort okkur tak­ist að reka Land­spít­al­ann þannig að sómi sé af eða byggja tvær Hörpur á ári eða hvað sem að menn vilja að verði gert fyrir gjald af nýt­ingu auð­linda,“ sagði Heiðrún Lind.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

árið2020

Pistill

Sandra B. Franks

Far­ald­ur­inn yfir­skyggði allt

Á við­burða­ríku ári sem nú er liðið yfir­skyggði Covid-19 far­ald­ur­inn allt annað. Hann reyndi veru­lega á starfs­þrek heil­brigð­is­starfs­manna og ekki síst okkur sjúkra­liða. Mörg okkar voru í fram­lín­unni. Aðrir sjúkra­liðar stóðu vakt­ina í störfum sem ekki voru síður mik­il­væg. Ég er mjög stolt af því hve frá­bær­lega sjúkra­liða­stéttin hefur staðið sig í Covid far­aldr­inum. Hann hefur svo sann­ar­lega beint athygl­inni...

Mest lesið undanfarið ár