Mynd: Samsett

Störukeppni á vinnumarkaði

Samtök atvinnu­lífs­ins hafa boðað atkvæða­greiðslu um hvort segja eigi upp Lífs­kjara­samn­ingnum. Verka­lýðs­hreyf­ingin telur að for­sendur samn­ings­ins standi og trúir því ekki að sam­staða sé um það á meðal atvinnu­rek­enda að leggja í stríð á vinnu­mark­aði.

Samtök atvinnu­lífs­ins hafa boðað til atkvæða­greiðslu á meðal aðild­ar­fyr­ir­tækja sinna til um afstöðu þeirra til upp­sagnar Lífs­kjara­samn­ings­ins. Þar með leggja stjórn­endur Samtaka atvinnu­lífs­ins það mat sitt að for­sendur samn­ing­anna séu brostnar í dóm aðild­ar­fyr­ir­tækja sinna.

Þegar atkvæða­greiðslan var fyrst boðuð stóð til að hún myndi hefj­ast í dag. Eftir funda­lotur síð­ustu daga var ákveðið að fresta henni um einn dag, og á hún að óbreyttu að hefj­ast á morgun.

Aðild­ar­fyr­ir­tæki Samtaka atvinnu­lífs­ins greiða sem nemur 0,19 pró­sent af heild­ar­launa­greiðslum næst­lið­ins árs í árgjald til sam­tak­anna. Þegar þau greiða atkvæði þá svarar hverjar eitt þús­und krónur í greiddum árgjöldum til eins atkvæðis. Það liggur því fyrir að stærri fyr­ir­tæki, sem greiða mikið í launa­kostnað, hafa mikið atkvæða­vægi.

Fari atkvæða­greiðslan fram, og verði upp­sögn Lífs­kjara­samn­ings­ins sam­þykkt, mun það leiða til þess að vinnu­mark­aðs­deilur muni bæt­ast ofan á 9,4 pró­sent atvinnu­leysi og þann efna­hags­sam­drátt sem hefur orðið vegna kór­ónu­veiru­far­ald­urs­ins og áætlað er að hafi þurrkað um 300 millj­arða króna út úr hag­kerf­inu innan árs.

Hvað er Lífskjarasamningurinn?

Lífs­kjar­ar­samn­ing­arnir sem und­ir­rit­aðir voru í byrjun apríl 2019 eiga að gilda til 1. nóv­em­ber 2022. Þeir voru óvenju­legir að því leyti að samið var um launa­hækk­anir í krónum talið, ekki um hlut­falls­lega launa­hækkun, sem gerir það að verkum að kjara­bæt­urnar skila sér betur til tekju­lágs launa­fólks.

Sú launa­hækkun sem varð 1. apríl í fyrra, alls 17 þús­und krónur, hækk­aði til að mynda laun þess sem var með 800 þús­und krónur í mán­að­ar­laun fyrir um 2,1 pró­sent. Laun þess sem var með 300 þús­und krónur hækk­uðu hins vegar um 5,7 pró­sent þrátt fyrir að krónu­tölu­hækk­unin hafi verið sú sama.

Næstu áfangar launa­hækk­ana eru síðan þannig að þeir sem eru með lægstu launun, starfa á kaup­taxta, fá fleiri krónur en hinir sem eru með meira. Annar áfangi launa­hækk­ana á grund­velli samn­ing­anna tók gildi 1. apríl 2020, en þá hækk­uðu laun um 18 þús­und krónur og 24 þús­und krónur hjá þeim sem starfa á kaup­töxtum. Þriðji áfang­inn á svo að taka gildi um kom­andi ára­mót og laun eiga þá að hækka um 15.750 krónur á mán­uði almennt en um 24 þús­und krónur hjá þeim sem starfna á töxtum. Þeirri launa­hækkun vilja Samtök atvinnu­lífs­ins fresta í ljósi yfir­stand­andi efna­hags­að­stæðna.

For­sendur Lífs­kjara­samn­ings­ins voru þrjár. Í fyrsta lagi að kaup­máttur launa hefði auk­ist á samn­ings­tíma­bil­inu, sam­kvæmt launa­vísi­tölu Hagstofu Íslands. Í öðru lagi að vextir myndu taka „veru­legum lækk­unum“ fram að end­ur­skoðun samn­ings­ins í sept­em­ber 2020 og að þeim myndu hald­ast lágir út samn­ings­tím­ann. Í þriðja lagi að stjórn­völd myndu standa við gefin fyr­ir­heit sam­kvæmt yfir­lýs­ingum rík­is­stjórn­ar­innar sem birtar voru í tíu blað­síðna skjali sem bar yfir­skrift­ina „Stuðn­ingur stjórn­valda við lífs­kjara­samn­inga“.

Mat á því hvort þessar for­sendur hefðu stað­ist átti að eiga sér stað fyrir lok sept­em­ber 2020 og aftur fyrir lok sept­em­ber 2021.

Hafi for­send­ur­brestur átt sér stað að mati annað hvort þeirra stétt­ar­fé­laga sem standa að gerð samn­ings­ins sem fram­kvæmda­stjórnar Samtaka atvinnu­lífs­ins þá ber að til­kynna um það fyrir klukkan 16 þann 30. sept­em­ber næst­kom­andi, eða á mið­viku­dag. Í kjöl­farið mun samn­ing­ur­inn falla úr gildi dag­inn eftir, þann 1. októ­ber.

Hafa forsendurnar staðist?

Ljóst er að tvær fyrst­nefndu for­sendur samn­ings­ins hafa stað­ist. Kaup­mátt­ar­aukn­ing það sem af er samn­ings­tím­anum hefur verið 4,8 pró­sent.

Ekki var til­greint sér­stak­lega um það opin­ber­lega, þegar Lífs­kjara­samn­ing­ur­inn var und­ir­rit­aður, hversu mikið stýri­vextir þyrftu að lækka til að for­sendur héldu, heldur sagt að þeir þyrftu að taka „veru­legum lækk­unum“. Kjarn­inn greindi frá, skömmu ef því að gert hafi verið hlið­­ar­­sam­komu­lag, svo­­kallað „skúffu­­sam­komu­lag“ sem er ekki hluti af opin­berum kjara­­samn­ingi, sem fól í sér að vextir yrðu að lækka um 0,75 pró­­sent­u­­stig fyrir sept­­em­ber 2020, þegar fyrsta end­­ur­­skoðun sér­­stakrar for­sendu­nefndar mun eiga sér stað, til að kjara­­samn­ingar hald­i. Þeir hafa lækkað um 3,5 pró­sentu­stig frá því í apríl í fyrra og langt umfram það sem „skúffu­sam­komu­lagið“ sagði til um.

Lífskjarasamningurinn var undirritaður í apríl í fyrra eftir nokkuð harðar deilur á vinnumarkaði. Mynd: Aðsend
Lífs­kjara­samn­ing­ur­inn var und­ir­rit­aður í apríl í fyrra eftir nokkuð harðar deilur á vinnu­mark­aði. Mynd: Aðsend

Þriðja for­sendan snýst um þær 38 tölu­settu aðgerðir, sem verð­metnar voru á 80 millj­arða króna, og rík­is­stjórnir sam­þykkti að ráð­ast í til að liðka fyrir gerð Lífs­kjara­samn­ings­ins. Sumar þeirra aðgerða voru tíma­settar. Þar ber að nefna leng­ingu fæð­ing­ar­or­lofs, breyt­ingu á skerð­ing­ar­mörkum barna­bóta, aukin fram­lög í almenna íbúða­kerfið, sam­þykkt hlut­deild­ar­lána, fram­leng­ing á úrræði sem heim­ilar lands­mönnum að nota sér­eign­ar­sparnað skatt­frjálst til að greiða niður hús­næð­is­lán, að sjóðs­fé­lagar í líf­eyr­is­sjóðum mættu ráð­stafa allt 3,5 pró­sent skyldu­ið­gjalds í svo­kall­aða til­greina sér­eign, að gjald­skrár rík­is­ins myndu ekki hækka árið 2019 og ekki meira en um 2,5 pró­sent árið 2020 og að komið yrði á þriggja þrepa skatt­kerfi með nýju lág­tekju­þrepi. Öll þessi atriði eru annað hvort komin í fram­kvæmd eða eru vel á veg komin.

Stendur eitthvað út af?

Á meðal þess sem stjórn­völd skuld­bundu sig líka til að gera var að banna 40 ára verð­tryggð jafn­greiðslu­lán frá byrjun árs 2020, nema með ákveðnum skil­yrðum. Þessi skuld­bind­ing var sett inn í umgjörð Lífs­kjara­samn­ings­ins vegna þess að tveir verka­lýðs­for­ingjar, Ragnar Þór Ing­ólfs­son for­maður VR og Vil­hjálmur Birg­is­son for­maður Verka­lýðs­fé­lags Akraness, þrýstu á það. Sú krafa var sett fram á loka­metrum samn­ings­gerð­ar­innar, sam­kvæmt heim­ildum Kjarnans.

Frumvarp þess efnis var kynnt í sam­ráðs­gátt stjórn­valda í fyrra. Samkvæmt því yrðu nær allir hópar sem eru lík­legir til að taka verð­tryggð jafn­greiðslu­lán til 40 ára, und­an­þegnir banni við töku lán­anna. Því átti að banna þau án þess að banna þau.

Á meðal þeirra sem skil­uðu umsögn um málið voru Samtök fjár­mála­fyr­ir­tækja, aðild­ar­sam­taka innan Samtaka atvinnu­lífs­ins. Þau bentu á að þessi teg­und lána væri algeng­asta lána­form á Íslandi. Það að stytta hámarks­láns­tíma niður í 25 ár, líkt og lagt var til í frum­varp­inu, hefði umtals­verð áhrif á greiðslu­byrði jafn­greiðslu­lána. Hún myndi raunar hækka um 29 pró­sent. „Að öðru óbreyttu myndi slík breyt­ing hafa veru­lega nei­kvæð áhrif á getu almenn­ings til að fjár­magna íbúð­ar­kaup, sér­stak­lega ungs fólk og tekju­lægri hópa.“ Samtökin gagn­rýndu frum­varpið á marg­hátt­aðan annan hátt og veltu meðal ann­ars fyrir sér hvort að það stæð­ist jafn­ræð­is­reglu stjórn­ar­skrár­innar.

Vilhjálmur Birgisson hefur lengi barist fyrir því að 40 ára verðtryggð jafngreiðslulán verði bönnuð.
Vil­hjálmur Birg­is­son hefur lengi barist fyrir því að 40 ára verð­tryggð jafn­greiðslu­lán verði bönnuð.

Þessu lof­orði stjórn­valda hefur ekki verið hrint í fram­kvæmd og verka­lýðs­hreyf­ingin telur að þetta sé eina tíma­setta lof­orð stjórn­valda sem sé ekki í ferli. Frumvarp um málið verður hins vegar lagt fram á kom­andi haust­þingi, sem hefst á fimmtu­dag.

Hvers vegna eru Samtök atvinnulífsins þá að hóta uppsögn?

Samtök atvinnu­lífs­ins meta kostnað við þær launa­hækk­anir sem eiga að taka gildi um kom­andi ára­mót á um 45 millj­arða króna. Þau telja, í ljósi þess að hag­vöxtur sé nú langt frá því sem spáð var þegar Lífs­kjara­samn­ing­ur­inn var gerður, vegna kór­ónu­veiru­far­ald­urs­ins og efna­hags­legra afleið­inga hans. Þess vegna telja Samtök atvinnu­lífs­ins að ekki séu nægir fjár­munir til staðar hjá fyr­ir­tækjum til að efna umsamdar launa­hækk­anir í þessu ástandi.

Til að mæta þess­ari stöðu hafa þau reynt að fá verka­lýðs­hreyf­ing­una til að láta skjól­stæð­inga hennar, launa­fólk í land­inu, taka hluta þessa kostn­aðar á sig. Helst hefur það verið reynt með tvennum hætti. Annars vegar með því að draga tíma­bundið úr mót­fram­lagi atvinnu­rek­enda inn í líf­eyr­is­sjóði, og þar með draga úr inn­greiðslum launa­fólks í slíka. Hins vegar með því að fresta umsömdum launa­hækk­unum tíma­bundið.

Verka­lýðs­hreyf­ingin hefur fall­ist á hvor­ugt og telur að for­sendur kjara­samn­inga hafi stað­ist. Hún sér ekki ástæðu til þess að launa­fólk gefi frá sér samn­ings­bundin rétt­indi að óbreyttu. For­víg­is­fólk innan verka­lýðs­hreyf­ing­ar­innar sem Kjarninn ræddi við telja vanda atvinnu­lífs­ins að mestu bund­inn við ferða­þjón­ust­una, og að það sé ekki þeirra skjól­stæð­inga, sér­stak­lega lág­tekju­hópa, að verja hlutafé eig­enda fyr­ir­tækja í þeim geira með því að gefa eftir launa­hækk­anir eða „lána“ þær tíma­bundið til fyr­ir­tækj­anna í land­inu. Samtök atvinnu­lífs­ins telja hins vegar að áhrif kór­ónu­veirunnar séu mun víð­tæk­ari, þótt þau bitni mest á fyr­ir­tækjum í ferða­þjón­ustu.

Hvað er að gerast?

Eftir að Alþýðu­sam­band Íslands til­kynnti á fimmtu­dag að það teldi for­sendur Lífs­kjara­samn­ings­ins stand­ast, þá til­kynntu Samtök atvinnu­lífs­ins það nokkrum mín­útum síðar að þau væru á önd­verðu meiði.

Síðan þá hefur staðið fyrir störu­keppni og ásök­un­ar­leikur. Halldór Benjamín Þor­bergs­son, fram­kvæmda­stjóri Samtaka atvinnu­lífs­ins, hefur sagt opin­ber­lega að Alþýðu­sam­bandið sé „á góðri leið með að stimpla sig út úr vit­rænni umræðu um efna­hags­mál. Þá standa eftir Samtök atvinnu­lífs­ins og stjórn­völd.“

Ríkisstjórnin hefur þegar kynnt nokkra aðgerðarpakka vegna kórónuveirufaraldursins, sem hafa mælst misjafnlega fyrir.
Rík­is­stjórnin hefur þegar kynnt nokkra aðgerð­ar­pakka vegna kór­ónu­veiru­far­ald­urs­ins, sem hafa mælst mis­jafn­lega fyrir.

Margir við­mæl­endur Kjarnans innan verka­lýðs­hreyf­ing­ar­innar telja að með þessu útspili, og við­tali hans í Silfrinu í gær þar sem hann tal­aði á svip­uðum nótum, hafi Halldór Benjamín verið að reyna að stilla verka­lýðs­hreyf­ing­unni upp við vegg, og fá hana til að semja með því að teikna hana upp sem söku­dólg­inn í mál­inu þrátt fyrir að það væru Samtök atvinnu­lífs­ins sem hóti upp­sögn kjara­samn­inga. Það var þó sam­hljómur á meðal við­mæl­enda Kjarnans um það að bíta ekki á agnið. Sú afstaða hefur birst ágæt­lega í fjöl­mörgum greinum sem skrif­aðar hafa verið af lyk­il­fólki í stærstu stétt­ar­fé­lögum lands­ins und­an­farna daga. Hægt er að lesa þær t.d. hér, hér og hér.

Hver eru næstu skref?

Verka­lýðs­hreyf­ingin ætlar ekki að setj­ast við samn­inga­borðið að óbreyttu, heldur veðja á að sam­staða fyr­ir­tækja innan Samtaka atvinnu­lífs­ins um að segja upp kjara­samn­ingum sé ekki jafn breið og Halldór Benjamín hefur gefið til kynna. Innan hennar er talið að um sjón­ar­spil sé að ræða úr hendi for­svars­manna Samtaka atvinnu­lífs­ins til að setja þrýst­ing á stjórn­völd um að beina frek­ari opin­beru fé í átt að fyr­ir­tækjum lands­ins.

Þar horfa þau meðal ann­ars til orða Sigurðar Hann­es­sonar, fram­kvæmda­stjóra Samtaka iðn­að­ar­ins, í við­tali við Kjarnann nýverið. Þar sagði Sigurður meðal ann­ars að aðgerðir stjórn­valda í efna­hags­málum vegna kór­ónu­veiru­far­ald­urs­ins sýni „svart á hvítu“ að stjórn­völd séu með atvinnu­stefnu af öðrum toga en þá sem hann teldi æski­lega. „Sú atvinnu­stefna gengur út á það að velja sig­ur­veg­ara og þar er raunar einn sig­ur­veg­ari sem er á blaði og það er ferða­þjón­ust­an. Aðgerðir stjórn­valda miða fyrst og fremst við að bjarga ferða­þjón­ust­unni. Það er skilj­an­legt, með hlið­sjón af því hvaða vægi hún hefur haft, þar eru fjöl­mörg störf undir og greinin mun sann­ar­lega ná fyrri styrk, það er bara spurn­ing um tíma, en á sama tíma eru tæki­færi sem fara for­görðum vegna þess að athygli stjórn­valda bein­ist ekki að þeim.“

Við­mæl­endur Kjarnans innan ýmissa aðild­ar­sam­taka Samtaka atvinnu­lífs­ins síð­ustu vikur hafa end­u­r­ómað þessa skoðun. Og yfir­fært hana á for­ystu Samtaka atvinnu­lífs­ins, sem þeim hefur fund­ist vera að beita sér um of fyrir hönd ferða­þjón­ust­unnar, en minna fyrir skjól­stæð­inga ann­arra aðild­ar­sam­taka.

Hvað getur ríkið gert?

Samtal Samtaka atvinnu­lífs­ins og stjórn­valda, sem nú stendur yfir, snýst um að finna leiðir þar sem stjórn­völd geti mætt atvinnu­líf­inu með ein­hverjum hætti, fyrst verka­lýðs­hreyf­ingin ætlar ekki gera það.

Líkt og áður sagði er kostn­aður við launa­hækk­anir sem eiga að taka gildi um ára­mót áætl­aður um 45 millj­arðar króna og Samtök atvinnu­lífs­ins vilja deila þeim byrðum með ein­hverjum öðrum, í stað þess að aðild­ar­fyr­ir­tæki þeirra axli þær ein.

Kostn­aður við launa­hækk­anir sem eiga sam­kvæmt gild­andi kjara­samn­ingi að taka gildi Samtalið, sam­kvæmt heim­ildum Kjarnans, hverf­ist því um það hvort stjórn­völd geti með ein­hverjum hætti gripið til aðgerða til að draga úr kostn­aði atvinnu­lífs­ins vegna launa­hækk­ana, og þar með komið i veg fyrir að kjara­samn­ingum verði sagt upp á fimmtu­dag. Það er hægt að gera með til dæmis tíma­bundnum skatt­kerf­is­breyt­ingum eða beinni inn­spýt­ingu á fjár­magni til fyr­ir­tækja lands­ins í gegnum frek­ari aðgerð­ar­pakka vegna kór­ónu­veiru­far­ald­urs­ins. Stefán Ólafsson, pró­fessor við Háskóla Íslands og sér­fræð­ingur í hluta­starfi hjá Efl­ing­u, lagði fram eina slíka til­lögu í grein sem hann birti á Kjarn­anum um helg­ina. Þar sagði hann lausn­ina á stöð­unni liggja í að lækka trygg­inga­gjaldið tíma­bundið. „Það auð­veldar fyr­ir­tækjum að taka á hækkun launa­taxta fyrir lægst laun­aða fólkið á vinnu­mark­að­inum og að halda fleirum í vinnu[...]Það myndi auka skuldir rík­is­ins lít­il­lega til við­bótar við ann­að, en skilar sé að öðru leyti í mild­ari afleið­ingum krepp­unnar og minni þörf fyrir útgjöld til atvinnu­leys­is­bóta.“

Munu stjórnvöld bregðast við?

Stjórn­völd hafa hins vegar legið undir ámæli fyrir að klæða sér­tækar aðgerðir fyrir ákveðin fyr­ir­tæki, sér­stak­lega Icelandair Group, í bún­ing almennra aðgerða. Nægir þar að nefna svo­kall­aða upp­sagn­ar­styrki, þar sem um 3,3 millj­arðar króna hið minnsta af þeim átta millj­örðum króna sem greiddir voru út í slíka fóru félags­ins. Þá liggur einnig fyrir að flestar þær efna­hags­að­gerðir sem stjórn­völd hafa kynnt til leiks til að hjálpa atvinnu­líf­inu í heild hafa ekki skilað til­ætl­uðum árangri, utan hinar svoköll­uðu hluta­bóta­leiðar. Flestar þessar aðgerðir hafa verið óvin­sælar og stjórn­völd hafa verið ásökuð um sér­hags­muna­gæslu vegna þeirra.

Ríkisstjórnin hefur legið undir ámæli fyrir að hafa sniðið stærstu aðgerðir sínar að ákveðnum fyrirtækjum. Þar er oftast talað um Icelandair Group. Mynd: FB-síða Icelandair
Rík­is­stjórnin hefur legið undir ámæli fyrir að hafa sniðið stærstu aðgerðir sínar að ákveðnum fyr­ir­tækjum. Þar er oft­ast talað um Icelandair Group. Mynd: FB-síða Icelandair

Við­mæl­endur sem áttu aðkomu að fund­ar­höldum í ráð­herra­bú­staðnum um helg­ina vegna stöð­unnar á vinnu­mark­aði töldu sig skynja pirr­ing á meðal sumra ráð­herra í garð Samtaka atvinnu­lífs­ins fyrir að hafa stillt þeim upp með þeim hætti sem nú blasir við. Þ.e. að bolt­inn sé nú komin í fang rík­is­stjórn­ar­innar og það sé hennar að leysa úr stöðu sem hún á ekki beina aðkomu að.

Hver það verður sem sé að lesa stöð­una rétt, í þeirri störu­keppni sem nú stendur yfir, mun skýr­ast á morgun eða hinn. Mikið er undir, enda lausir kjara­samn­ingar með til­heyr­andi ófriði á vinnu­mark­aði ofan á mesta sam­drátt sem mælst hefur, atvinnu­leysi sem stefnir í tveggja stafa tölu og áfram­hald­andi kór­ónu­veiru­far­aldur eitt­hvað sem flestir vilja forð­ast.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið undanfarið ár