Að banna verðtryggð 40 ára lán án þess að banna þau

Frumvarp um tak­mörkun á töku verð­tryggðra lána til 40 ára und­an­skilur að mestu hóp sem afar ólík­legur er til að taka slík lán frá því að taka þau.

Fyrir kosn­ing­arnar 2013 var eitt helsta kosn­inga­lof­orð Fram­sókn­ar­flokks­ins að afnema verð­trygg­ingu. Í stefnu­skrá flokks­ins sagði að fyrsta skrefið yrði „að setja þak á hækkun verð­trygg­ingar neyt­enda­lána. Skip­aður verði starfs­hópur sér­fræð­inga til að und­ir­búa breyt­ingar á stjórn efna­hags­mála sam­hliða afnámi verð­trygg­ing­ar­inn­ar, meðal ann­ars til að tryggja hags­muni lán­þega gagn­vart of miklum sveiflum á vaxta­stigi óverð­tryggðra lána. Starfs­hóp­ur­inn skili nið­ur­stöðum fyrir árs­lok 2013.“

Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son, þáver­andi for­maður þess flokks, sagði fimm dögum fyrir þær kosn­ingar að val kjós­enda stæði á milli Fram­sókn­ar­stjórnar eða verð­trygg­inga­stjórnar.

Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn vann stór­sigur í þeim kosn­ingum, sett­ist í rík­is­stjórn og Sig­mundur Davíð varð for­sæt­is­ráð­herra. Í stefnu­yf­ir­lýs­ingu rík­is­stjórn­ar­innar kom fram að sam­hliða fram­kvæmd Leið­rétt­ing­ar­innar, sem beind­ist að þeim sem voru með verð­tryggð hús­næð­is­lán á árunum 2008 og 2009, ætti að „„breyta sem flestum verð­tryggðum lánum í óverð­tryggð“.

Skipaður var starfs­hópur til að und­ir­búa afnám verð­trygg­ingar. Hann skil­aði af sér nið­ur­stöðu í jan­úar 2014. Nið­ur­staða hóps­ins var að það ætti ekki að afnema verð­trygg­ingu. Þess í stað lagði hann fram til­lögu um að stigin yrðu skref í þá átt með því að banna svokölluð Íslands­lán, en þau eru 40 ára verð­tryggð lán með jöfnum greiðslum. Auk þess yrðu hvatar auknir til töku og veit­ingar óverð­tryggðra lána. Einn full­trúi í sér­fræði­hópnum skrif­aði ekki upp á þessa nið­ur­stöðu, Vil­hjálmur Birg­is­son, for­maður Verka­lýðs­fé­lags Akraness. Hann ákvað að skila sér­á­liti þar sem hann lagði til að verð­trygg­ing á neyt­enda­lánum yrði alfarið bönnuð frá og með 1. júlí 2014.

Síðan þá hefur ekk­ert verið gert til að hamla töku verð­tryggðra hús­næð­is­lána og umræðan um það meira og minna dottið niður hin síð­ustu ár. Ástæður þess eru nokkrar. Í fyrsta lagi fór verð­bólga undir 2,5 pró­sent verð­bólgu­mark­mið Seðla­banka Íslands í febr­úar 2014, mán­uði eftir að starfs­hóp­ur­inn skil­aði af sér, og hélst þar þangað til á seinni hluta síð­asta árs. Verð­bólgan hefur hald­ist nokkuð stöðug í kringum þrjú pró­sent síðan þá og mælist í dag 3,2 pró­sent.

Í öðru lagi hefur fast­eigna­verð hækkað langt umfram verð­bólgu á síð­ast­liðnum árum og rúm­lega tvö­fald­ast á höf­uð­borg­ar­svæð­inu frá árinu 2011. Það þýðir að virði eign­anna sem keyptar voru hefur auk­ist langt umfram þær vaxta­bætur sem setj­ast á höf­uð­stól verð­tryggðra lána, og með því skapað vax­andi eign fyrir hús­næð­is­eig­endur.

Í þriðja lagi hefur lána­val­kostum fjölgað umtals­vert, sér­stak­lega frá haustinu 2015, hreyf­an­leiki milli lán­veit­enda hefur verið auk­inn með því að fjar­lægja hindr­anir á borð við há upp­greiðslu- eða lán­töku­gjöld og lána­kjör hafa sömu­leiðis batnað mikið. Vextir á óverð­tryggðum lánum nú eru til að mynda, í hag­stæð­ustu til­fell­unum, lægri en verð­tryggðir vextir voru fyrir banka­hrun. Lægstu verð­tryggðu vextir eru nú vel undir tveimur pró­sentu­stigum.

Þrátt fyrir minnk­andi umræðu um þessi mál í sam­fé­lag­inu þá röt­uðu verð­trygg­ing­ar­mál inn í stjórn­ar­sátt­mála rík­is­stjórn­ar­ Katrínar Jak­obs­dóttur, sem mynduð var 30. nóv­em­ber 2017. Þar segir að rík­is­stjórnin muni taka mark­viss skref á kjör­tíma­bil­inu til afnáms verð­trygg­ingar á lánum en sam­hliða þeim verði ráð­ist í mót­væg­is­að­gerðir til að standa vörð um mögu­leika ungs fólks og tekju­lágra til að eign­ast hús­næði. Heim­ildir Kjarnans herma að það hafi verið að kröfu Fram­sókn­ar­flokks­ins, sem þó lýtur allt annarri for­ystu nú en hann gerði árið 2013. Sig­mundur Davíð er enda horf­inn á braut yfir í Mið­flokk­inn og með honum margir af nán­ustu sam­starfs­menn hans frá Fram­sókn­ar­ár­unum.

Krafist afnáms í kjarasamningaviðræðum

Í byrjun árs stóðu yfir harðar kjara­deilur þar sem gíf­ur­yrði flugu á báða bóga og um tíma var mjög erfitt að sjá að saman myndi nást milli deilu­að­ila. Í kjöl­far þess að WOW air fór í gjald­þrot þann 28. mars liðk­að­ist fyrir samn­ings­gerð og hinir svoköll­uðu Lífs­kjara­samn­ingar fyrir um helm­ing íslensks vinnu­mark­aðar voru und­ir­rit­aðir 3. apríl.

Á síð­ustu metrum þeirrar vinnu komu, sam­kvæmt heim­ildum Kjarnans, inn kröfur frá hluta verka­lýðs­hreyf­ing­ar­innar, um sem fælu í sér bann við verð­trygg­ingu. Sú krafa kom meðal ann­ars fram frá Vil­hjálmi Birg­is­syni, sem í dag er einn vara­for­seta Alþýðu­sam­bands Íslands og lék lyk­il­hlut­verk í kjara­samn­ings­gerð­inni í sam­floti við tvö stærstu stétt­ar­fé­lög lands­ins, VR og Eflingu.

Ljóst var að stjórn­völd þurftu að leggja fram nokkuð gildan lof­orða­pakka til að hægt yrði að klára kjara­samn­ings­gerð­ina. Á meðal þess sem þau skuld­bundu sig til á end­anum, vegna ofan­greindrar kröfu, var að banna 40 ára verð­tryggð jafn­greiðslu­lán frá byrjun næsta árs. Þá ætti að grund­valla verð­trygg­ingu við vísi­tölu neyslu­verðs án hús­næð­isliðar frá og með árinu 2020. Með fylgdi vil­yrði um að það yrði skoðað hvort að verð­tryggð hús­næð­is­lán yrðu alfarið bönnum fyrr lok árs 2020.

Aðstæður mikið breyttar á áratug

Til að sinna þessum málum var ákveðið að leggja frum­varp fram til sam­ráðs sem myndi tak­marka mögu­leika lands­manna á töku 40 ára verð­tryggðra jafn­greiðslu­lána fram í sam­ráðs­gátt stjórn­valda og óska eftir umsögnum um það. Samhliða var skipuð nefnd um „aðferð­ar­fræði við útreikn­ing vísi­tölu neyslu­verðs“. Sú nefnd á aðal­lega að skoða hvort að hús­næð­isliður eigi að vera inni í þeirri vísi­tölu sem mælir verð­bólgu. Eins og staðan er í dag er verð­bólga með hús­næð­isliðnum 3,2 pró­sent en án hans mælist hún 3,1 pró­sent. Raun­virði hús­næðis hefur verið að lækka á höf­uð­borg­ar­svæð­inu þannig að mögu­legt er að hús­næð­islið­ur­inn muni draga úr verð­bólgu í nán­ustu fram­tíð, frekar en öfugt.

Til að leiða þennan hóp var skip­aður Benedikt Árnason, skrif­stofu­stjóri í for­sæt­is­ráðu­neyt­inu. Benedikt þekkir vel til verð­trygg­ing­ar­mála vegna þess að hann sat starf­aði með starfs­hópnum sem skil­aði nið­ur­stöðu í jan­úar 2014, en hann var þá efna­hags­ráð­gjafi þáver­andi for­sæt­is­ráð­herra og ráð­herra­nefnda rík­is­stjórn­ar­innar.

Hentar tekjulágum og ungu fólki

Íslands­lánin svoköll­uðu, verð­tryggð jafn­greiðslu­lán til 40 ára, eru fyrst og síð­ast tekin af fólki sem ræður við lægstu afborg­an­irnar. Þ.e. tekju­lágum hópum og ungu fólki. Kost­ur­inn við lánin er sá að afborg­anir af því eru lágar, og mun lægri á mán­uði en sami hópur þyrfti að greiða í leigu fyrir sam­bæri­legt hús­næði á leigu­mark­aði. Löst­ur­inn er sá að það getur tekið langan tíma að mynda eign með slíku láni. Lítill hluti hverrar afborg­unar á fyrstu árum láns­tím­ans fer í að greiða niður höf­uð­stól. Ef það kemur til að mynda verð­bólgu­skot þá getur höf­uð­stóll Íslands­láns­ins hækkað hratt, og jafn­vel farið, að minnsta kosti tíma­bundið, yfir mark­aðsvirði eignar. Þetta gerð­ist síð­ast í og eftir banka­hrunið, fyrir rúmum ára­tug en raun­verð fast­eigna lækkað sömu­leiðis um 35 pró­sent á þeim tíma til að ýkja enn afleið­ing­arnar.

Samkvæmt frumvarpinu verður einungis afmarkaður hópur landsmanna sem má ekki taka hin svokölluðu Íslandslán. Sá hópur er einna ólíklegastur til að taka þau.
Samkvæmt frum­varp­inu verður ein­ungis afmark­aður hópur lands­manna sem má ekki taka hin svoköll­uðu Íslands­lán. Sá hópur er einna ólík­leg­astur til að taka þau.

Í frum­varp­inu sem nú liggur í sam­ráðs­gátt stjórn­valda er lagt til að hámarks láns­tími verð­tryggðra jafn­greiðslu­lána verði 25 ár. Síðan er til­tekið að það bann við slíkum lán­tökum sé háð allskyns und­an­tekn­ingum. Raunar er það svo að tak­mörkun á því að taka verð­tryggð jafn­greiðslu­lán til 40 ára, verði frum­varpið óbreytt að lögum, mun ein­ungis ná til um fimm pró­sent lán­tak­enda. Og sá hópur lán­tak­enda er mjög lík­lega hópur sem síst myndi taka lán sem þessi.

Útiloka hópa sem taka síst Íslandslánin

Í umsögn Þórólfs Matth­í­as­sonar, pró­fess­ors í hag­fræði við Háskóla Íslands, kemur fram að sá hópur sem fengi ekki að taka lánin myndi „sam­an­standa af ein­stak­lingum eða sam­býl­is­fólki sem er yfir 40 ára gam­alt með tekjur umfram 4,2 millj­ónir (ein­stak­lingur) eða 7,2 millj­ónir (sam­býl­is­fólk) á næst­liðnu ári og af fólki sem sækt­ist efir verð­setn­ingu milli 50 og 70% af verð­mæti hús­næðis.“ Afar ólík­legt verður að telj­ast að þessi hópur, fólk um fer­tugt með til­tölu­lega góðar tekjur og á 30 til 50 pró­sent af því sem þarf til að kaupa hús­næðið sem það ætlar sér að kaupa, taki hin svoköll­uðu Íslands­lán. Auk þess er afar ólík­legt að fólk sem fellur inn í þennan hóp séu skjól­stæð­ingar þeirra verka­lýðs­fé­laga sem stóðu að Lífs­kjara­samn­ingnum, og mun lík­legra að þeir til­heyri Banda­lagi háskóla­manna, sem hefur enn ekki lokið við gerð sinna kjara­samn­inga.

„Spyrja má hvort eðli­legt sé að þrengja kjör svo fámenns og sér­tæks hóps með almennri laga­setn­ingu án þess að vitna megi til almanna­heilla,“ segir Þórólfur í umsögn sinni.

Telja frumvarpið fara gegn markmiði sínu

Samtök fjár­mála­fyr­ir­tækja skil­uðu einnig inn umsögn og bentu á að umrætt lána­form væri algeng­asta lána­form á Íslandi. Það að stytta hámarks­láns­tíma niður í 25 ár hefði umtals­verð áhrif á greiðslu­byrði jafn­greiðslu­lána. Hún myndi raunar hækka um 29 pró­sent. „Að öðru óbreyttu myndi slík breyt­ing hafa veru­lega nei­kvæð áhrif á getu almenn­ings til að fjár­magna íbúð­ar­kaup, sér­stak­lega ungs fólk og tekju­lægri hópa.“

Samtökin segja þó að und­an­þág­urnar sem getið er hér að ofan dragi veru­lega úr nei­kvæðum áhrifum frum­varps­ins. Þau benda hins vegar á ýmsar nei­kvæðar afleið­ingar þrátt fyrir und­an­þág­urnar. Til að mynda geti bannið lokað suma inni í lánum vegna þess að það hindri mögu­leika þeirra á að end­ur­fjár­magna á hag­stæð­ari kjörum þar sem þeir stand­ist ekki greiðslu­mat fyrir styttra láni. Þá sé svokölluð blönduð leið hús­næð­is­lána, þar sem fólk tekur til hluta lána sinna verð­tryggt en hluta óverð­tryggt, afar vin­sæl og þá sé verð­tryggði hlut­inn oft tek­inn sem 40 ára jafn­greiðslu­lán til að tryggja sem lægstar afborg­anir en óverð­tryggði hlut­inn tek­inn til færri ára með hærri greiðslu­byrði til að tryggja að sem mest af greiðslum vegna hans rati inn á höf­uð­stól láns­ins. Samtök fjár­mála­fyr­ir­tækja ótt­ast þau ruðn­ings­á­hrif af frum­varp­inu að það gæti „ leitt til þess að vægi óverð­tryggðra lána verði minna þvert á fyr­ir­ætl­anir.“ Þ.e. að vægi óverð­tryggðra lána í blönd­uðum lánum myndi lækka.

Þá telja sam­tökin frum­varpið ein­fald­lega vera í and­stöðu við þá rök­semd­ar­færslu sem það byggir á, að koma í veg fyrir hæga eign­ar­myndun og draga úr líkum á því að fólk geti setið uppi með nei­kvætt eigið fé eftir verð­bólgu­skot. Und­an­þág­urnar und­an­skilji áfram þá hópa sem séu við­kvæm­astir fyrir þessum áhrifum, ungt fólk og tekju­lága. „Tak­mörk­unin virð­ist þannig í raun ein­göngu ná til þeirra neyt­enda sem lík­legt er að hafi aldur og reynslu til þess að þekkja áhrif verð­tryggðra jafn­greiðslu­lána og nægi­legar tekjur/eignir til þess að ráða við áhrifin. Þetta er í reynd sá hópur sem er fyr­ir­fram ólík­legri til þess að óska eftir slíkum lánum.“

Að lokum velta sam­tökin því fyrir sér hvort að tak­mörk­unin sem leiðir af frum­varp­inu sam­ræm­ist jafn­ræð­is­reglu 65. greinar stjórn­ar­skrár­innar.

Lands­bank­inn tekur í svip­aðan streng í sinni umsögn og í nið­ur­lagi hennar segir að ekki verði séð „að til­lög­urnar séu til þess fallnar að leiða til ábata eða hag­ræðis, hvorki fyrir neyt­endur né lán­veit­endur. Þvert á móti má búast við að þær breyt­ingar sem lagðar eru til myndu leiða til auk­ins kostn­aðar, flækju­stigs og ógagn­sæis.“

Vilja undanþágur burt

Hags­muna­sam­tök heim­il­anna skil­uðu einnig umsögn og að þeirra mati er alls ekki gegnið nógu langt í frum­varp­inu. Þau vilja for­taks­laust afnám verð­trygg­ingar að fullu og segja frum­varps­drögin sem birt­ust í sam­ráðs­gátt­inni hálf­köruð.

Alþýðu­sam­band Íslands er sömu­leiðis ósátt við frum­varp fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra og telur að und­an­þág­urnar séu í því séu allt of víðar. Því séu stjórn­völd ekki að upp­fylla lof­orð um að stíga alvöru skref í átt að afnámi verð­trygg­ingar.

Í umsögn sam­bands­ins segir að „í tengslum við und­ir­ritun Lífs­kjara­samn­ings­ins í apríl síð­ast­liðnum gáfu stjórn­völd út yfir­lýs­ingar um stuðn­ing við samn­ing­ana. Ljóst er að samn­ing­arnir hefðu ekki náðst nema vegna þess­ara yfir­lýs­inga og ein þeirra for­senda sem samn­ing­arnir frá því í apríl og þeir sem und­ir­rit­aðir voru í kjöl­farið hvíla á er efndir yfir­lýs­inga stjórn­valda.“

Vegna áherslu verka­lýðs­hreyf­ing­ar­innar á að taka mark­viss skref til afnáms verð­trygg­ingar hafi yfir­lýs­ing þess efnis verið und­ir­rituð sér­stak­lega en þung­inn í þeirri yfir­lýs­ingu var að vinda ofan af Íslands­lánum og þrengja að verð­tryggðum neyt­enda­lánum í hinn end­ann einnig þannig að þau væru skil­yrt við að minnsta kostið tíu ára láns­tíma. „Það frum­varp sem kynnt er í sam­ráðs­gátt­inni um breyt­ingu á lögum um vexti og verð­trygg­ingu og lögum um vísi­tölu neyslu­verðs er ætlað að vera skref í átt að því að upp­fylla lof­orð stjórn­valda í tengslum við kjara­samn­inga en að mati Alþýðu­sam­bands­ins eru und­an­þág­urnar of rúmar til að breyt­ingin hafi til­ætluð áhrif.“

Alþýðu­sam­bandið krefst þess að und­an­þág­urnar verði allar felldar á brott sem lúta að hús­næðis- og neyt­enda­lánum til ein­stak­linga svo hægt verði að segja að stjórn­völd hafi staðið við sinn hluta Lífs­kjara­samn­ings­ins.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið undanfarið ár