Mynd: Bára Huld Beck

Flestar efnahagsaðgerðir ríkisstjórnarinnar geiguðu

Hluta­bóta­leiðin hefur skilað til­ætl­uðum árangri og lands­menn hafa tekið út mun meira af sér­eign­ar­sparn­aði sínum en stjórn­völd ætl­uðu. En flestar aðgerðir sem rík­is­stjórnin boð­aði vegna efna­hags­á­hrifa COVID-19 far­ald­urs­ins.

Þegar rík­is­stjórn Katrínar Jak­obs­dóttur kynnti fyrsta aðgerð­ar­pakka sinn vegna efna­hags­legra áhrifa kór­ónu­veiru­far­ald­urs­ins þann 21. mars var því haldið fram að pakk­inn væri met­inn á 230 millj­arða króna. Þar af áttu um 60 millj­arðar króna að vera bein inn­spýt­ing úr rík­is­sjóði.

„Þetta eru stærstu ein­stöku efna­hags­að­gerðir sög­unnar,“ sagði Bjarni Bene­dikts­son, fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra, á blaða­manna­fundi í Hörpu sem hald­inn var vegna þessa.

Um var að ræða tíu aðgerðir sem áttu að tryggja varnir, vernd og við­spyrnu. Hluti þeirra var þess eðlis að langur tími mun líða þangað til að hægt verður að mæla árangur aðgerð­anna. Það á til dæmis við 20 millj­arða kóna fjár­fest­inga­á­tak og aðgerðir til að greiða fyrir inn­flutn­ingi með nið­ur­fell­ingu toll­af­greiðslu­gjalda og frestun á greiðslu á aðflutn­ings­gjöldum. En aðrar aðgerðir áttu að hafa mikil mæl­an­leg áhrif fljótt.

Mánuði síðar, 21., apríl, voru tíu aðgerðir í við­bótar kynntar til leiks. Heild­ar­kostn­aður við þann aðgerð­ar­pakka átti að vera um 60 millj­arðar króna. Þar skiptu mestu máli aðgerðir fyrir lítil fyr­ir­tæki, bón­us­greiðslur til fram­línu­starfs­manna og sér­tækur styrkur til fjöl­miðla. Auk þess voru í pakk­anum aðgerðir sem er erfitt að mæla eins og er, líkt og jöfnun tekju­skatts, sér­tækur stuðn­ingur við sveit­ar­fé­lög og ýmis­konar fram­lög til meðal ann­ars geð­heil­brigð­is­mála og fjar­þjón­ustu.

Viku síðar var þriðji pakk­inn kynntur, en hann sner­ist að meg­in­stefnu um að greiða hluta launa starfs­fólks sem yrði sagt upp úr opin­berum sjóðum.

Nú, fimm mán­uðum síðar, liggja fyrir upp­lýs­ingar um hversu vel aðgerð­irnar sem áttu að telja strax hittu í mark. Árang­ur­inn af því er mjög mis­mun­andi. Sumar hafa staðið undir þeim vænt­ingum sem til þeirra, en aðrar hafa geigað.

Fyrsti pakkinn:

Hlutabótaleiðin: Átti að vera 22 milljarðar en er 18 milljarðar

Í kynn­ingu stjórn­valda í mars var gert ráð fyrir að hluta­bóta­leiðin myndi kalla á 22 millj­arða króna við­bót­ar­þörf fyrir atvinnu­leys­is­trygg­inga­sjóð. Í henni fólst að fyr­ir­tæki gátu fengið, að ákveðnum skil­yrðum upp­fylltum, greiðslur úr opin­berum sjóðum til að standa straum af launa­kostn­aði starfs­manna. Fyrst voru hámarks­greiðslur allt að 75 pró­sent af launum upp að ákveðnu þaki, en það var síðar lækkað niður í 50 pró­sent. Samhliða þeirri lækkun var tekið fyrir að fyr­ir­tæki sem ætl­uðu að greiða arð, kaupa eigin bréf, greiða óum­s­anda bónusa eða borga helstu stjórn­endum yfir þrjár millj­ónir króna á mán­uði gætu nýtt sér leið­ina.

Það var gert vegna þess að mörg stöndug fyr­ir­tæki höfðu gert slíkt. Gagnrýni vegna þess leiddi af sér að 61 fyr­ir­tæki til­kynnti að það ætl­aði sér að end­ur­greiða hluta­bætur upp á 306 millj­ónir króna. Af þeim hafa 44 fyr­ir­tæki nú þegar end­ur­greitt 210 millj­ónir króna.

Ásmundur Einar Daðason, félags- og barnamálaráðherra, hefur hlutabótaleiðina á sinni könnu.
Ásmundur Einar Daðason, félags- og barna­mála­ráð­herra, hefur hluta­bóta­leið­ina á sinni könnu.

Þegar mest var nýttu 33.637 manns hluta­bóta­leið­ina. Í júlí var sú tala komin niður í 3.862 sem leiddi af sér 300 millj­óna króna kostnað, sam­kvæmt minn­is­blaði fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra dag­sett 14. ágúst sem lagt var fyrir rík­is­stjórn fyrr í mán­uð­inum. Þar segir að búast megi við því að tæp­lega helm­ingur þeirra sem nýttu úrræðið í júlí hafi gert það í ágúst.

Hluta­bóta­leiðin átti að renna út um kom­andi mán­aða­mót. Hún hefur hingað til kostað 18 millj­arða króna og við­búið er að kostn­aður í ágúst verði undir 150 millj­ónum króna. Því var raun­nýt­ing á leið­inni um 83 pró­sent af þeirri upp­hæð sem lagt var upp með að eyða.

Ákveðið var að fram­lengja leið­ina í vik­unni út októ­ber­mánuð. Í grein­ar­gerð frum­varps­ þess efnis kemur fram að áætl­aður kostn­aður sé um tveir millj­arðar króna.

Brúarlán til atvinnulífsins: Átti að vera 80 milljarðar en er 1,2 milljarðar

Ein helsta aðgerðin sem rík­is­stjórnin kynnti til leiks í mars var að veita fyr­ir­greiðslu til að auð­velda við­bót­ar­lán lána­stofn­ana til fyr­ir­tækja. Þetta átti að gera þannig að ríkið semdi við Seðla­banka Íslands um að færa lána­stofn­unum aukin úrræði til að veita við­bót­ar­fyr­ir­greiðslu til fyr­ir­tækja, í formi brú­ar­lána, sem orðið hefðu fyrir veru­legu tekju­tapi vegna yfir­stand­andi aðstæðna. Seðla­bank­inn myndi þannig veita ábyrgðir til lána­stofn­ana sem þær nýta til að veita við­bót­ar­lán upp að um 70 millj­arða króna.

Aðal­við­skipta­bankar fyr­ir­tækja áttu að veita þessa fyr­ir­greiðslu og aðgerðin var í heild metin á um 80 millj­arða króna að teknu til­liti til auk­innar útlána­getu banka vegna lækk­unar á banka­skatti, sem átti að aukast um tæp­lega 11 millj­arða króna.

Í dag hefur eitt brú­ar­lán verið veitt. Það lán fékk Icelandair hótel frá Arion banka og lánið var 1,2 millj­arðar króna. Vextir þess voru svim­andi háir, en bank­inn tók 25 pró­sent vexti af sínum hluta láns­ins.

Frestun skattgreiðslna: Átti að vera 92 milljarðar en er 19 milljarðar

Ein af fyrstu aðgerð­unum sem íslensk stjórn­völd gripu til vegna efna­hags­legra afleið­inga af kór­ónu­veiru­far­ald­inum var að veita fyr­ir­tækjum í land­inu frest á greiðslu á helm­ingi trygg­ing­ar­gjalds og stað­greiðslu opin­berra gjalda sem voru á gjald­daga í mars. Þetta var ákveðið 12. mars, fjórum dögum áður en að eindagi þeirra gjalda átti að vera. Þeim eindaga var frestað um mánuð upp­haf­lega, og síðar þangað til í jan­úar á næsta ári. Gert var ráð fyrir að þetta myndi seinka tekjum til rík­is­sjóðs upp á 22 millj­arða króna.

Þegar rík­is­stjórnin kynnti svo fyrsta efna­hag­s­pakka sinn 21. mars var ein dýrasta aðgerðin þar sú að fresta mætti þremur gjald­dögum stað­greiðslu og trygg­ing­ar­gjalds á tíma­bil­inu 1. apríl til 1. des­em­ber til við­bótar ef fyr­ir­tæki gæti mætt ákveðnum skil­yrð­um. Áætluð áhrif þess voru tæpir 70 millj­arðar króna.

Þessar for­sendur gengu ekki eft­ir. Umfang frestaðra greiðslna hefur þvert á móti verið 19 millj­arðar króna frá mars­mán­uði og út júlí.

Laun í sóttkví: Átti að vera tveir milljarðar en er 191 milljón

Rík­­is­­stjórn­­in, Sam­tök atvinn­u­lífs­ins og Alþýð­u­­sam­­band Íslands komust að sam­komu­lagi um hvernig staðið verði að launa­greiðslum til fólks sem þarf að vera í sótt­­­kví vegna COVID-19 5. mars síð­ast­lið­inn, þegar kór­ónu­veiru­far­ald­ur­inn var farin að láta veru­lega á sér kræla hér­lend­is.

Þeir sem þurft hafa að dvelja í sóttkví hafa ekki sótt greiðslur í ríkissjóð í þeim mæli sem búist var við. Líklegast er að margir hafi getað unnið að heiman í sóttkvínni.
Þeir sem þurft hafa að dvelja í sótt­kví hafa ekki sótt greiðslur í rík­is­sjóð í þeim mæli sem búist var við. Lík­leg­ast er að margir hafi getað unnið að heiman í sótt­kvínni.

Í fyrsta efna­hag­s­pakka rík­is­stjórn­ar­innar var gert ráð fyrir að kostn­aður rík­is­sjóðs vegna launa­greiðslna í sótt­kví yrði um tveir millj­arðar króna.

Í minn­is­blaði Bjarna Bene­dikts­son­ar, fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra, sem inni­heldur yfir­lit yfir stöðu stærstu efna­hags­að­gerða stjórn­valda vegna COVID-19, og var lagt fyrir rík­is­stjórn fyrr í þessum mán­uði, kemur fram að alls hafi verið greiddar út 191 milljón króna vegna launa fólks sem þurft hefur að fara í sótt­kví. Hægt var að sækja um slíkar greiðslur til 1. júlí síð­ast­lið­ins. Ákveðið var að fram­lengja þetta úrræði í lið­inni viku.

Barnabótaauki: Átti að kosta 3,1 milljarð

Greiða átti út sér­stakan barna­bóta­auka upp á 40 þús­und krónur fyrir hvert barn sem for­eldri eða for­eldrar sem eru með undir 11,1 milljón krónur í sam­eig­in­legar tekjur, og 20 þús­und krónur til þeirra sem eru með tekjur yfir þeim mörkum. Þetta átti að gera vegna „rask­ana af völdum far­ald­urs­ins“.

Í áætlun stjórn­valda var gert ráð fyrir því að stuðn­ing­ur­inn myndi nema 3,1 millj­arði króna og ekk­ert hefur verið birt opin­ber­lega sem gefur annað til kynna. Í ljósi þess að um bein fjár­út­lán úr rík­is­sjóði er að ræða, og að nokkur ein­falt ætti að vera að reikna út hvað hvert for­eldri ætti að fá út frá skatt­skýrslum þeirra, þá verður að ætla að þessi kostn­að­ar­á­ætlun hafi stað­ist.

Úttekt séreignarsparnaðar: Átti að vera tíu milljarðar en verður 20 milljarðar

Líkt og eftir hrunið ákváðu stjórn­völd að heim­ila lands­mönnum að nýta eigin sér­eign­ar­sparnað til að takast á við yfir­stand­andi efna­hags­þreng­ingar.

Heim­ildin felur í sér að ein­stak­lingum er gert kleift að ganga á eigin sparn­að, en þeir þurfa hins vegar að greiða skatt af honum við útgreiðslu líkt og ef þeir tækju hann út á efri árum. Aðgerðin er því tekju­öfl­un­ar­að­gerð fyrir rík­is­sjóð. Margir lands­menn nýta nú þegar sér­eign­ar­sparnað sinn til að greiða niður hús­næð­is­lán, en ef sú leið er valin nýtur útgreiðslan skatt­frels­is.

Í upp­hafi var reiknað með að umfang þessa úrræðis yrði tíu millj­arðar króna á 24 mán­aða tíma­bili. Alls hafa hins vegar tæp­lega sjö þús­und lands­menn tekið úr 14,5 millj­arða króna af sér­eign­ar­sparn­aði sínum eftir að það var heim­ilað og fram til næstu ára­móta er búist við að útgreiðslur verði 18 millj­arðar króna. Í heild­ina eru áætl­aðar útgreiðslur sem nema 19,8 millj­örðum króna sem dreifast fram í mars 2022.

Því stefnir í að úttekt á sér­eign­ar­sparn­aði verði tvisvar sinnum það sem búist var við.

Styrking ferðaþjónustu: Ferðagjöfin átti að vera 1,5 milljarður en hefur kostað undir 500 milljónum

Alls átti styrk­ing ferða­þjón­ustu að kosta á fimmta millj­arð króna, sam­kvæmt kynn­ingu ráða­manna í Hörpu í mars. Sá hluti þessa pakka sem vakti mesta athygli var það sem síðar fékk nafnið Ferða­gjöfin. Í henni fólst að gefa Íslend­ingum eldri en 18 ára sam­tals 1,5 millj­arð króna til að örva vilja þeirra til inn­lendrar neyslu og ferða­laga.

Samkvæmt síð­ustu birtu tölum hefur þjóðin sam­tals eytt 437 millj­ónum króna af ferða­gjöf­un­um, eða tæp­lega þriðj­ungi af þeirri upp­hæð sem stjórn­völd kynntu að aðgerðin ætti að kosta.

Rúmur helm­ingur þeirra um 280 þús­und Íslend­inga sem áttu rétt á fimm þús­und króna ferða­gjöf stjórn­valda hafa sótt hana og af þeim hefur rúm­lega helm­ingur þegar notað hana nú þegar sum­ar­leyf­is­tíma­bili Íslend­inga fer að ljúka.

Ferða­gjöfin gildir út árið 2020 og því verða þeir sem ekki nýta hana fyrir þann tíma af henn­i. Að með­al­tali hafa um tvö þús­und ferða­gjafir verið nýttar á dag.

Auk þess átti að fella niður gistin­átta­gjald sem átti að kosta rík­is­sjóð 1,6 millj­arða króna á tveimur árum. Sú tala er þó fengin úr for­tíð­inni þegar Ísland tók við um og yfir tveimur millj­ónum ferða­manna árlega. Fyrir liggur að gríð­ar­leg fækkun hefði orðið á fjölda ferða­manna sem hingað mun koma í ár hvort sem gjaldið hefði verið fellt niður eða ekki, en það er 300 krónur á hverja gistinótt. Því til stuðn­ings voru ferða­menn í júní aðeins þrjú pró­sent af fjöld­anum í fyrra.

Forsætisráðherra kynnti ætlað umfang annars aðgerðarpakka ríkisstjórnar sinnar 21. apríl 2020.
For­sæt­is­ráð­herra kynnti ætlað umfang ann­ars aðgerð­ar­pakka rík­is­stjórnar sinnar 21. apríl 2020.

Þá átti að eyða 1,5 millj­örðum króna í alþjóð­legt mark­aðsá­tak fyrir Ísland sem áfanga­stað. Það verk­efni verður lík­lega sett á ís á meðan landið er nán­ast lokað fyrir komu erlendra ferða­manna.

Útvíkkun á „Allir vinna“: Átti að vera átta milljarðar en eru um hálfur milljarður

Meðal þeirra ráð­staf­ana sem stjórn­völd hafa gripið til í kjöl­far kór­ónu­veiru­far­ald­urs­ins er að hækka end­ur­greiðslu virð­is­auka­skatts tíma­bundið úr 60 pró­sentum upp í 100 pró­sent vegna end­ur­bóta á íbúð­ar­hús­næði sem og að útvíkka end­ur­greiðslu­heim­ild­irn­ar.

Nú fæst til dæmis virð­is­auka­skattur sem greiddur hefur verið vegna vinnu við bíla­við­gerðir og heim­il­is­hjálp og -þrif að fullu end­ur­greidd­ur.

Áætluð áhrif aðgerð­ar­innar voru metin á átta millj­arða króna.

Kjarninn greindi frá því í síð­ustu viku að búið væri að afgreiða 1.631 umsóknir vegna bíla­við­gerða upp 25 millj­ónir króna, en alls hafa rúm­lega 5.200 umsóknir borist.

Vegna end­ur­bóta og við­halds á hús­næði hafði Skatt­ur­inn greitt út um 470 millj­ónir króna vegna 3.434 afgreiddra umsókna, en alls höfðu borist um átta þús­und umsóknir frá 1. maí.

Annar pakkinn:

Lokunarstyrkir: Átti að vera 2,5 milljarðar en eru 197 milljónir

Þegar stjórn­völd kynntu annan aðgerða­pakka sinn vegna efna­hags­á­hrifa heims­far­ald­urs kór­ónu­veiru var kynntur til leiks sér­stakur pakki fyrir lítil fyr­ir­tæki.

Í honum voru meðal ann­ars svo­kall­aðir lok­un­ar­styrkir sem áttu að greið­ast til fyr­ir­tækja eða ein­yrkja sem þurftu að loka starf­semi sinni vegna lög­boðs stjórn­valda í tengslum við sótt­varn­ar­að­gerðir vegna útbreiðslu veirunnar sem veldur COVID-19 sjúk­dómn­um.

Styrkirnir voru í boði fyrir þau fyr­ir­tæki sem gátu sýnt fram á að minnsta kosti 40 pró­sent tekju­fall og að þau væru með opin­ber gjöld í skil­um. Hver aðili myndi geta fengið allt að 800 þús­und krónur fyrir hvern starfs­mann en 2,4 millj­óna króna styrk að hámarki. Áætlað var að styrkirnir myndu geta náð til allt að tvö þús­und fyr­ir­tækja og að þeir myndu kosta 2,5 millj­arða króna.

28. ágúst höfðu 170 umsóknir borist með reikn­uðum styrk upp á 196,5 millj­ónir króna. Af þeim hafa 125 umsóknir verið sam­þykktar og útgreiðslur nema 137 millj­ónum króna.

Stuðningslán: Áttu að vera 28 milljarðar en er 3,1 milljarður

Hitt megin úrræðið í aðgerð­ar­pakka stjórn­valda fyrir lítil fyr­ir­tæki voru svokölluð stuðn­ings­lán, einnig kölluð sér­stök lán til lít­illa fyr­ir­tækja. Til að telj­ast til slíkra fyr­ir­tækja þurfti að vera með tekjur undir 500 millj­ónum króna á ári. Lán­in, sem njóta 100 pró­sent rík­is­á­byrgð­ar, standa ein­ungis fyr­ir­tækjum sem hafa orðið fyrir að minnsta kosti 40 pró­sent tekju­falli til boða, sem er sama skil­yrði og gildir fyrir hin svoköll­uðu brú­ar­lán til stærri fyr­ir­tækja sem kynnt voru til leiks mán­uði áður.

Lánin til fyr­ir­tækj­anna átti að verða hægt að sækja um með ein­földum hætti á Island.is en þau nema að hámarki sex millj­ónir krónur á hvert fyr­ir­tæki. Heild­ar­um­fang lán­anna átti að geta orðið allt að 28 millj­arðar króna í heild, að mati stjórn­valda.

Þann 28. ágúst höfðu alls 714 umsóknir um stuðn­ings­lán borist og heild­ar­fjár­hæð umsókna var 6,2 millj­arður króna. Búið var að afgreiða 430 umsóknir og greiða út alls 3,1 millj­arð króna í stuðn­ings­lán.

Styrkir til fjölmiðla: Átti að vera 350 milljónir en eru 400 milljónir

Ákveðið var að salta frum­varp um að koma upp árlegum styrkja­greiðslum til einka­rek­inna fjöl­miðla og búa þess í stað til ein­skipt­is­að­gerð undir hatti neyð­ar­að­gerða vegna COVID-19. Upp­haf­lega átti að greiða 350 millj­ónir króna til þeirra sem upp­fylltu sett skil­yrði en sú upp­hæð var síðar hækkuð upp í 400 millj­ónir króna.

Lilja D. Alfreðsdóttir, mennta- og menningarmála, ákvað í reglugerð sinni að auka verulega á styrktargreiðslur til þriggja stærstu einkareknu fjölmiðla landsins, sem mun skerða greiðslur til minni fjölmiðla.
Lilja D. Alfreðs­dóttir, mennta- og menn­ing­ar­mála, ákvað í reglu­gerð sinni að auka veru­lega á styrkt­ar­greiðslur til þriggja stærstu einka­reknu fjöl­miðla lands­ins, sem mun skerða greiðslur til minni fjöl­miðla.

Stuðn­ing­ur­inn verður að hámarki 25 pró­sent af stuðn­ings­hæfum rekstr­ar­kostn­aði umsækj­enda en stuðn­ingur til hvers umsækj­enda getur ekki orðið hærri en sem nemur 25 pró­sent af þeirri fjár­veit­ingu sem Alþingi hefur úthlutað til sér­staks rekstr­ar­stuðn­ings, eða 100 millj­ónir króna. Umsóknir áttu að afgreið­ast fyrir 1. sept­em­ber 2020.

Alls sóttu 25 aðilar um styrki og sam­kvæmt heim­ildum Kjarnans er heild­ar­upp­hæð umsókna hærri en sú upp­hæð sem er til útdeil­ingar. Því mun greiðsla til hvers fjöl­mið­ils verða lægri en sem nemur 25 pró­sentum af stuðn­ings­hæfum rekstr­ar­kostn­aði en þó liggur fyrir að uppi­staðan af upp­hæð­inni mun fara til þriggja stærstu einka­reknu fjöl­miðla­fyr­ir­tækja lands­ins: Árvakurs, Torgs og Sýnar.

Þótt 1. sept­em­ber sé á þriðju­dag þá hafa fjöl­miðlar sem upp­fylla sett skil­yrði enn ekki fengið upp­lýs­ingar um hversu háan styrk þeir fá, né hvenær hann muni ber­ast.

Þriðji pakkinn:

Uppsagnarstyrkir: Átti að vera 27 milljarðar en eru 3,9 milljarðar

Þann 28. apr­íl var til­­kynnt um að rík­­is­­stjórnin ætl­­aði að veita ákveðnum fyr­ir­tækj­um, sem hefðu orðið fyrir umfangs­­miklu tekju­tapi, eða að minnsta kosti 75 pró­sent, styrki til að eyða ráðn­­ing­­ar­­sam­­böndum þeirra við starfs­­fólk sitt.

Þegar frum­varp um upp­sagn­ar­styrki var lagt fram um miðjan maí var gert ráð fyrir því að bein útgjöld rík­is­sjóðs vegna úrræð­is­ins yrðu 27 millj­arðar króna. Enn sem komið hefur því um 14 pró­sent af áætl­uðum kostn­aði vegna upp­sagn­ar­styrkja fallið til.

Bjarni Benediktsson, fjármála- og efnahagsráðherra, lagði fram frumvarp um uppsagnarstyrkina.
Bjarni Bene­dikts­son, fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra, lagði fram frum­varp um upp­sagn­ar­styrk­ina.

Þann 7. ágúst síð­ast­lið­inn höfðu alls 332 umsóknir borist um svo­kall­aða upp­sagn­ar­styrki úr rík­is­sjóði, en um slíka geta fyr­ir­tæki sem orðið hafa fyrir veru­legu tekju­falli sótt um til að standa straum af 85 pró­sent af kostn­að­inum við að segja upp fólki.

Þegar er búið að afgreiða 265 umsóknir vegna 158 rekstr­ar­að­ila og af þeim umsóknum sem afgreiddar hafa verið nemur greiddur stuðn­ingur um 3,7 millj­örðum króna vegna launa og 160 millj­ónir króna vegna orlofs.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið undanfarið ár