Játning Þórólfs: Er á „nippinu“ að herða aðgerðir

„Ég játa að ég er alveg á nipp­inu [að herða aðgerðir] og er búinn að vera þar lengi,“ segir Þórólfur Guðnason sótt­varna­læknir, „og það þarf ekki mikið út af að bregða svo ég taki upp blaðið.“

Þórólfur Guðnason sóttvarnalæknir.
Þórólfur Guðnason sótt­varna­læknir. Mynd: Lögreglan

„Álagið hefur auk­ist mjög harka­lega síð­ustu tíu daga um svipað leyti og við erum að sjá far­ald­ur­inn blossa upp í meira mæli en fólk von­að­ist til,“ sagði Páll Matth­í­as­son, for­stjóri Land­spít­al­ans, á upp­lýs­inga­fundi almanna­varna í dag. Róðurinn hefði þyngst nokkuð hratt og taka þyrfti í brems­una. Þrettán liggja nú á Land­spít­ala vegna COVID-19, þar af tveir á gjör­gæslu­deild. Tveir hafa því lagst inn á síð­ustu klukku­stundum „svo þetta er ákveðin hol­skefla“.

Þórólfur Guðnason sótt­varna­læknir sagði frá því á fundi dags­ins að hann hefði beðið stjórn­endur Land­spít­al­ans að svara þeirri spurn­ingu hvort að sjúkra­húsið gæti sinnt öllum COVID-sjúkum miðað við svört­ustu spár. Hann greindi ekki frá því hver sú spá væri en benti á að vís­inda­fólk við Háskóla Íslands, sem gerir spálíkanið sem stuðst er við, muni fljót­lega birta sviðs­myndir um það álag sem gæti orðið á sjúkra­húsum.

Páll rakti styrk­leika spít­al­ans og sagði þá fjöl­marga. Þar væri komið á gott verk­lag, til staðar væri gríð­ar­lega öfl­ugt starfs­fólk sem byggi yfir nýrri og vax­andi þekk­ingu á því hvernig best er að sinna fólki með COVID-veik­indi. Hlífð­ar­bún­aður, lyf og önd­un­ar­vélar væru til staðar. En hins vegar væru áskor­anir það einnig. „Til að Land­spít­al­inn geti sinnt sínum sér­hæfðu verk­efnum þarf hann að geta útskrifað fólk sem ekki þarf lengur á þjón­ustu hans að halda hratt og vel,“ sagði Páll.

Í vetur hafi viljað svo vel til að nýtt hjúkr­un­ar­heim­ili var opnað áður en hol­skefla inn­lagna vegna COVID skall á. „Um slíkt er ekki að ræða nú,“ sagði hann. Unnið er nú að því með „miklum hraði“ að leysa þennan frá­flæð­is­vanda undir stjórn heil­brigð­is­ráðu­neyt­is­ins og með ráð­gjöf land­lækn­is­emb­ætt­is­ins. Páll hefur fulla trú á að það tak­ist.

„Hin áskor­unin fellst í mönnun,“ sagði for­stjór­inn og tók sér­stak­lega fram mönnun á COVID-göngu­deild­inni og á gjör­gæslu. „Ég vil koma með ákall til heil­brigð­is­starfs­fólks: Mál hafa þró­ast mjög hratt. Bylgjan núna er ekki minni en í vetur. Við þurfum alla á dekk.“

Ekki tímabært að herða

Um 560 eru nú með COVID-19 hér á landi og hefur veiran náð að stinga sér niður víða um landið. Þórólfur sagði það þó sitt mat að ekki væri tíma­bært að svo stöddu að herða aðgerðir. Til­hneig­ingin væri í þá átt að nýgrein­ingum væri að fækka þó að það gengi ekki eins hratt og von­ast var til. Hvort herða beri aðgerðir eður ei er í sífelldri end­ur­skoðun að hans sögn og dag­lega ræðir hann við margt fólk um stöð­una og að sitt sýnd­ist hverjum. Hann liti ekki endi­lega svo á að verið væri að beita hann þrýst­ingi en hann hlust­aði á margar raddir og gerði svo upp hug sinn. Það er tvennt sem hann horfir helst til þegar meta á hvort herða skuli aðgerðir: Hver þróun far­ald­urs­ins er og hvernig heil­brigð­is­kerfið sé í stakk búið að takast á við álagið.

[links] „Far­ald­ur­inn hefur verið stöð­ugur og í hægri nið­ur­sveiflu ef eitt­hvað er,“ sagði hann. „Hann er ekki veld­is­vexti og á meðan svo er er ekki ástæða til harð­ari sam­fé­lags­legra aðgerða.“

Ýmsar afleið­ingar, bæði heilsu­fars­legar og félags­legar, gætu fylgt hörðum aðgerðum. „Þetta snýst ekki bara um veiruna sjálfa,“ sagði hann. „Erum við að gera rétt eða rangt? Það verður bara að koma í ljós.“

Mallaði en tók svo á rás

Þórólfur hefur oft­sinnis sagt að það taki tvær vikur að sjá árangur af hert­ari aðgerðum. Á fundi dags­ins sagði hann svo að það væri alls ekk­ert víst að sam­bæri­legar aðgerðir og gripið var til í vetur myndu skila sama árangri og náð­ist þá. Bylgj­urnar væru um margt ólíkar, t.d. að veiran hefði fyrst mallað í ein­hvern tíma en væri núna búin að taka á rás. Þó væri far­ald­ur­inn ekki í veld­is­vexti.

En hins vegar þarf að mati sótt­varna­læknis að skoða málin gaum­gæfi­lega og ef kúrfan fer „í ranga átt“ þarf að end­ur­skoða málin með stjórn­völdum og þá hvort að grípa beri til harð­ari aðgerða. Það væri hins vegar erfitt fyrir alla – allt sam­fé­lagið. „Það er lík­legt að við munum þurfa að við­hafa þessar aðgerðir næstu mán­uði því það er ljóst að þessi veira er ekk­ert að fara.“

Hópsmit eða bylgjur væru fram­tíðin sem við stæðum frammi fyrir. „Við eigum eftir að fá fleiri bylgjur, alveg örugg­lega, þangað til við fáum bólu­efni eða eitt­hvað annað ger­ist sem mun hægja á og virki­lega slökkva á þess­ari veiru. Ætlum við að gera það í hvert skipti sem við fáum ein­hvern topp að slökkva á öllu hérna inn­an­lands,“ spurði hann og hélt svo áfram: „Ég játa það að ég er alveg á nipp­inu [að grípa til harð­ari aðgerða] og er búinn að vera þar lengi og það þarf ekki mikið út af að bregða svo ég taki upp blaðið og sendi það áfram.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár