Reyna að semja um Europol

Danska rík­is­stjórnin reynir nú hvað hún getur að ná sam­komu­lagi við Evr­ópu­sam­bandið um ein­hvers konar auka aðild Dana að Evr­ópu­lög­regl­unni, Europol eftir að þátt­töku Dana í lög­reglu­sam­starf­inu lýkur 30. apríl á næsta ári. Stjórn­endur ESB eru hins­vegar tregir í taumi og lítt fúsir til samn­inga.

Samkvæmt Maastricht samn­ingnum frá árinu 1993 voru Danir und­an­þegnir fjórum ákvæðum samn­ings­ins, þar á meðal ákvæð­inu um sam­starf í dóms og lög­reglu­málum. Vegna breyt­inga á Maastricht samn­ingnum sem hefur í för með sér nán­ara sam­starf (yfir­þjóð­lega stjórn Europol) og er ætlað að styrkja sam­vinnu á sviði lög­reglu­mála höfðu Danir um tvennt að velja: segja sig frá Europol sam­starf­inu eða halda þjóð­ar­at­kvæða­greiðslu um að sleppa áður­nefndum und­an­þágum. Danska þingið ákvað að þjóð­ar­at­kvæða­greiðsla skyldi haldin og fór hún fram 3. des­em­ber í fyrra.

Hart tekist á

Lars Løkke Rasmus­sen for­sæt­is­ráð­herra, og for­maður Venstre, barð­ist hart fyrir því að Danir yrðu ekki und­an­þegnir ákvæðum ESB í dóms-og lög­reglu­málum og yrðu þannig áfram full­gildir aðilar að Europol. Danski Þjóð­ar­flokk­ur­inn (sem styður stjórn Venstre) undir for­ystu Kristian Thulesen Dahl vildi hins vegar ekki sleppa und­an­þágu­á­kvæð­unum og sögðu að Danir gætu ein­fald­lega gert eins­konar sér­samn­ing og haldið áfram Europol­sam­starf­inu. Eða, ef nauð­syn­legt reynd­ist, haldið aðra þjóð­ar­at­kvæða­greiðslu þar sem ein­göngu yrði kosið um þátt­töku Dana í Europol. Helstu rök Danska þjóð­ar­flokks­ins voru þau að með því að halda fyr­ir­vör­unum gætu Danir haft eigin stefnu í inn­flytj­enda­málum og landamæra­eft­ir­liti, óbundnir af ákvörð­unum ESB.

Nið­ur­staða þjóð­ar­at­kvæða­greiðsl­unnar varð sú að Danir vildu ekki sleppa und­an­þágu­á­kvæð­unum og þarmeð ljóst að eftir 1. maí 2017 verða þeir ekki lengur aðilar að Europol.

Og hvað svo?

Lars Løkke Rasmus­sen for­sæt­is­ráð­herra lýsti von­brigðum með úrslit þjóð­ar­at­kvæða­greiðsl­unnar, sagð­ist ótt­ast að erfitt gæti reynst að semja við Evr­ópu­sam­bandið um áfram­hald­andi aðild að Europol. „Maður getur ekki bara plokkað rús­ín­urnar úr jóla­kök­unni þótt það sé freist­andi.“ Jafn­framt sagði ráð­herr­ann að stjórnin myndi þegar í stað leita eftir við­ræðum við ESB varð­andi mögu­leika Dan­merkur um áfram­hald­andi sam­starf í dóms-og lög­reglu­málum. Sagðist þó ekki sér­lega bjart­sýnn á samn­ings­vilja Evr­ópu­sam­bands­ins.

Sérsamningur og kannski aðrar kosningar

Þingmenn Danska Þjóð­ar­flokks­ins sem börð­ust fyrir því að Danir héldu fyr­ir­vörum sínum við Maastricht samn­ing­inn (og væru þarmeð ekki lengur aðilar að Europol) lýstu ánægju með úrslit kosn­ing­anna. Þeir höfðu talað fjálg­lega um sér­samn­ing eða, ef í það færi, aðrar kosn­ingar þar sem ein­göngu yrði kosið um þátt­töku Dana í Europol. Slíkt myndi Danski Þjóð­ar­flokk­ur­inn styðja, sögðu þing­menn­irnir, með for­mann­inn, Kristian Thulesen Dahl, fremstan í flokki. Þetta margend­urtóku þing­menn­irnir í aðdrag­anda atkvæða­greiðsl­unnar 3. des­em­ber í fyrra. Miðað við úrslitin trúði stór hluti lands­manna, eða rúm­lega helm­ingur, þessum stað­hæf­ingum. Síðar kom í ljós að málið var ekki svona ein­falt.

Ólétt eða ekki ólétt, ekki pínulítið ólétt

Í höf­uð­stöðvum Evr­ópu­sam­bands­ins vöktu úrslit kosn­ing­anna í Danmörku tak­mark­aða hrifn­ingu. Þar sögðu menn þó fátt en fylgd­ust þeim mun betur með umræðum danskra stjórn­mála­manna. Í des­em­ber 2015 virt­ist 1. maí 2017 ekki rétt handan við hornið og á danska þing­inu töl­uðu sumir eins og allur heims­ins tími væri til stefnu og ekk­ert lægi á að fá nið­ur­stöðu í Europol málið,eins og það var kallað. En eins og segir í Gleði­banka­text­anum þekkta flýgur tím­inn hratt á gervi­hnatta­öld og skyndi­lega var komið haustið 2016 og ein­ungis örfáir mán­uðir fram að 1. maí á næsta ári. Fyrir nokkrum vikum varð ljóst að í höf­uð­stöðvum ESB væri mjög tak­mark­aður vilji til að semja við Dani um ein­hvers konar sér­sam­komu­lag. Frans Timmer­mann, vara­for­seti fram­kvæmda­stjórnar ESB sagði þegar hann var spurður um hugs­an­lega samn­inga við Dani að þar væri þungt fyrir fæti. „Maður er annað hvort óléttur eða ekki óléttur, ekki pínu­lítið óléttur.“ Af orðum hans að dæma er ein­hvers konar sér­sam­komu­lag því nán­ast úti­lokað. En hvað þá með hinn mögu­leik­ann, aðra þjóð­ar­at­kvæða­greiðslu í Danmörku sem ein­göngu snúi að þátt­töku Dana í Europol? Danski Þjóð­ar­flokk­ur­inn hafði, fyrir kosn­ing­arnar í des­em­ber í fyrra lýst sig fylgj­andi slíkum kosn­ingum ef ekki tæk­ist að semja um sér­sam­komu­lag.

Já verður nei

Lars Løkke Rasmus­sen for­sæt­is­ráð­herra hefur lýst yfir að hann muni ekki boða til sér­stakrar þjóð­ar­at­kvæða­greiðslu um Europol aðild Dana nema með stuðn­ingi Danska Þjóð­ar­flokks­ins, sem hafði jú sagst styðja slíkt. Nú ber hins­vegar svo við að Danski Þjóð­ar­flokk­ur­inn vill ekki lýsa stuðn­ingi við slíka atkvæða­greiðslu og ber því við að með því væri flokk­ur­inn að sam­þykkja opin landa­mæri og frjálsa för (Schengen sam­komu­lagið) en það komi ekki til greina. Semsagt: því sem Danski þjóð­ar­flokk­ur­inn lof­aði í fyrra vill hann nú ekki standa við, hefur snúið við blað­inu. Danskir fjöl­miðlar kalla þetta svikin lof­orð. Miðað við yfir­lýs­ingar for­sæt­is­ráð­herr­ans verður því ekki nein þjóð­ar­at­kvæða­greiðsla um Europol málið.

Reyna að semja um „Europol light“

Dönskum stjórn­völdum er vandi á höndum. Europol sam­starfið er mjög mik­il­vægt fyrir Dani. Ekki hvað síst varð­andi upp­lýs­inga­leit og skrán­ingu. Á síð­asta ári leit­aði danska lög­reglan rúm­lega 70 þús­und sinnum í upp­lýs­inga­kerfi Europol. Danski utan­rík­is­ráð­herr­ann, Kristian Jensen, seg­ist vona að sam­komu­lag náist um áfram­hald­andi sam­starf á þessu sviði og aðgang Dana að upp­lýs­inga­kerf­inu. „Það er skárra en ekk­ert“ sagði ráð­herr­ann en sagði jafn­framt að það væri afar óheppi­legt að vera í þess­ari stöðu. „Europol er eitt mik­il­væg­asta verk­færi okkar í bar­áttu við glæpa­menn og það væri satt að segja dap­ur­legt ef við gætum ekki lengur nýtt okkur það,“ sagði ráð­herr­ann.

Danskir fjöl­miðlar hafa gefið þessu sam­komu­lagi sem utan­rík­is­ráð­herr­ann von­ast eftir að koma í höfn nafnið „Europol light“.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár