Laun hækkað um 11,3 prósent og kaupmáttur aukist um 10 prósent

Á und­an­förnu ári hafa laun hækkað að með­al­tali um 11,3 pró­sent. Launa­vísi­talan í júlí 2016 var 581,9 stig og hækk­aði um 0,1 pró­sent frá fyrri mán­uði, sam­kvæmt tölum sem Hagstofa Íslands birti í dag. Síð­ast­liðna tólf mán­uði hefur launa­vísi­talan hækkað um 11,3 pró­sent.

Kaup­máttur launa heldur áfram að aukast, og mælist hann nú um 10 pró­sent, horft til síð­ustu tólf mán­aða. Almennt eykst kaup­máttur launa þegar laun hækka umfram verð­lag en minnkar þegar verð­bólga er meiri en launa­hækk­anir.

Lyk­il­at­riði við að auka kaup­mátt og styrkja þannig fjár­hags­lega stöðu fólks og heim­ila í land­inu, hefur verið að halda verð­bólgu í skefjum. Hún mælist nú 1,1 pró­sent og hefur hald­ist undir 2,5 pró­sent verð­bólgu­mark­miði Seðla­banka Íslands í meira en tvö ár.

Meg­in­vextir Seðla­banka Íslands eru nú 5,75 pró­sent en Pen­inga­stefnu­nefnd Seðla­banka Íslands til­kynnir um vaxta­á­kvörðun á morgun, og benda flestar spár til þess að vöxtum verði áfram haldið óbreyttum, þrátt fyrir að raun­vaxta­stig sé í hæstu hæðum í alþjóð­legum sam­an­burði. Þá hefur verð­bólgu­spá Seðla­banka Íslands engan veg­inn gengið eftir, og verð­bólga minnkað en ekki auk­ist mikið, eins og bank­inn spáði.

Launa­vísi­tala er verð­vísi­tala sem byggir á gögnum úr launa­rann­sókn Hagstofu Íslands og sýnir breyt­ingar á verði vinnu­stundar fyrir fasta sam­setn­ingu vinnu­tíma. Vísi­talan tekur mið af breyt­ingum reglu­legra launa sem greidd eru fyrir umsam­inn vinnu­tíma hvort sem um er að ræða dag­vinnu eða vakta­vinnu. Tekið er til­lit til hvers konar álags-, bónus- og kostn­að­ar­greiðslna sem gerðar eru upp á hverju útborg­un­ar­tíma­bili. Hvorki er tekið til­lit til til­fallandi yfir­vinnu né óreglu­legra greiðslna enda er í lögum um launa­vísi­tölu ætl­ast til að breyt­ingar á vinnu­tíma og sam­setn­ingu hans hafi ekki áhrif á vísi­töl­una, að því er segir á vef Hagstofu Íslands.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár