Formaður Samfylkingar segir Vinstri græn og Framsókn ná meiri árangri í minnihlutastjórn

Logi Ein­ars­son segir að fleiri mynstur séu í stöð­unni en áfram­hald­andi rík­is­stjórn. Vel sé hægt að styrkja hug­mynd um myndun minni­hluta­stjórnar sem studd sé af Pírötum með aðkomu fleiri flokka.

Logi Einarsson er formaður Samfylkingarinnar.
Logi Ein­ars­son er for­maður Sam­fylk­ing­ar­innar. Mynd: Bára Huld Beck

Logi Ein­ars­son, for­maður Sam­fylk­ing­ar­innar, segir það vera nokkuð ljóst að Vinstri græn og Fram­sókn­ar­flokkur, sem hafi keyrt kosn­inga­bar­áttu sína á áþekkum málum og Sam­fylk­ingin, ættu að íhuga það alvar­lega í hvers konar rík­is­stjórn þeir eru lík­leg­astir að ná árangri með þau mál sem flokk­arnir segj­ast brenna fyrir. „Ég tel það nokkuð ljóst að þau nái fram fleirum af sínum hjart­ans málum í öðru sam­starfi en nú er á teikni­borð­inu.“

Þetta kemur fram í stöðu­upp­færslu á Facebook sem Logi birti í gær.

Þar segir Logi að nú væru sagðar fréttir af því að rík­is­stjórn gæti verið í burð­ar­liðnum, en að gert sé ráð fyrir að rík­is­stjórn­ar­mynd­un­ar­við­ræður taki nokkrar vikur. „Vænt­an­lega stafar það af því að him­inn og haf skilur flokk­ana að í veiga­miklum málum.“

Ljóst sé að mati Loga að fleiri mynstur séu í stöð­unni en áfram­hald­andi sam­starf Vinstri grænna, Fram­sókn­ar­flokks og Sjálf­stæð­is­flokks og vísar þar í orð Þór­hildar Sunnu Ævars­dóttur, þing­manns Pírata, í Silfrinu um helg­ina um að sá flokkur sé til­bú­inn að styðja minni­hluta­stjórn Fram­sóknar, Vinstri-grænna og Sam­fylk­ingar. Hann segir vel mögu­legt að styrkja þá hug­mynd enn frekar með aðkomu fleiri flokka. „Meðal þeirra eru verk­efnin sem að ég tel mik­il­væg­ustu verk­efnið framundan; Að auka jöfnuð í sam­fé­lag­inu, styrkja opin­bera heil­brigð­is­þjón­ustu ásamt því að blása til djarfrar sóknar í lofts­lags­málum.“

Reynt að setja aðra hugmynd á borðið

Sam­an­lagt eru Fram­sókn­ar­flokkur, Vinstri græn og Sam­fylk­ingin með 27 þing­menn en ef sex þing­menn Pírata bæt­ast við þá yrðu 33 þing­menn á bak­við slíka rík­is­stjórn gegn 30 sem myndu standa gegn henni. Heim­ildir Kjarn­ans herma að þessi hug­mynd hafi verið rædd umtals­vert innan Sam­fylk­ingar og Pírata sem sá val­kostur sem Fram­sókn­ar­flokki og Vinstri grænum standi til boða kjósi flokk­arnir ekki að end­ur­nýja stjórn­ar­sam­starf­ið.

[adspot]Til greina kemur að reyna að fá Flokk fólks­ins til að styðja einnig við minni­hluta­stjórn­ina gegn því að ná saman við hann um helsta kosn­inga­mál hans, bætta grunn­fram­færslu við­kvæmra og jað­ar­settra hópa á Íslandi. Þá myndi fjöldi þeirra þing­manna sem styddi minni­hluta­stjórn­ina fara í 39.

Innan bæði Fram­sókn­ar­flokks og Vinstri grænna hefur verið fyr­ir­vari á stjórn­ar­sam­starfi við Pírata af ýmsum ástæðum og með þess­ari lausn er hægt að kom­ast fram­hjá því skil­yrði Pírata að þátt­taka í rík­is­stjórn­ar­sam­starfi velti á því að ný stjórn­ar­skrá verði inn­leidd á næsta kjör­tíma­bil­i.

Með 33 þing­menn á bakvið minni­hluta­stjórn

Fram­­sókn, Vinstri græn, Sam­­fylk­ing og Pírat­­ar, ræddu saman um myndun rík­is­stjórnar eftir kosn­ing­arnar 2017. Þá höfðu flokk­arnir saman 32 þing­menn en hafa nú, líkt og áður sagði, 33 þing­menn á bak­við sig.

Árið 2017 sleit Sig­­urður Ingi Jóhanns­son, for­maður Fram­sókn­ar­flokks­ins, við­ræð­unum eftir að hann taldi meiri­hlut­ann of tæp­­an.

Fátt bendir til ann­ars sem stendur en að sitj­andi rík­is­stjórn Vinstri grænna, Fram­sókn­ar­flokks og Sjálf­stæð­is­flokks end­ur­nýi sam­starf sitt. Óform­legar við­ræður um helstu mál­efna­á­hersl­ur, helstu deilu­mál og verka­skipt­ingu hafa staðið yfir frá því í byrjun lið­innar viku. Heim­ildir Kjarn­ans herma að til skoð­unar sé að fjölga ráðu­neytum og færa mál­efni á milli þeirra. Þar er helst horft til þess að búa til nýtt inn­við­a­ráðu­neyti með því að færa meðal ann­ars hús­næð­is­mál inn í sam­göngu- og sveit­ar­stjórn­ar­ráðu­neytið og að skipta sjáv­ar­út­vegs- og land­bún­að­ar­ráðu­neyt­inu upp í tvennt á ný.

Fram­sókn sæk­ist eftir frek­ari áhrifum

Gengið er út frá því í við­ræð­unum að Katrín Jak­obs­dóttir verði áfram for­sæt­is­ráð­herra.

[links]Sig­­urður Ingi sæk­ist sam­­kvæmt heim­ildum Kjarn­ans eftir því að fá fjár­­­mála­ráðu­­neytið á grund­velli auk­ins styrks Fram­­sókn­­ar­­flokks­ins eftir kosn­­ing­­ar, en þing­­mönnum flokks­ins fjölg­aði um fimm og eru nú 13, eða þremur færri en sá fjöldi sem Sjálf­­stæð­is­­flokk­­ur­inn hef­­ur. Það þykir næst valda­­mesta ráðu­­neytið og þaðan er hægt að stýra fjár­­­magni í þau stóru verk­efni sem Fram­­sókn­­ar­­flokk­­ur­inn lof­aði að ráð­­ast í í aðdrag­anda kosn­­ing­anna, til að mynda kerf­is­breyt­inga í fram­­færslu­­kerfum eldri borg­­ara og öryrkja.

Við­­mæl­endur Kjarn­ans hafa sagt að Bjarni Bene­dikts­son, for­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins, sé ekki afhuga þess­­ari nið­­ur­­stöðu fái Sjálf­­stæð­is­­flokk­­ur­inn fleiri ráðu­­neyti í sinn hlut í stað­inn. Sjálfur myndi hann þá senn­i­­leg­­ast setj­­­ast í stól utan­­­rík­­is­ráð­herra. Ef Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn heldur fjár­mála­ráðu­neyt­inu er ekki öruggt að Bjarni setj­ist þar, enda búinn að vera í því frá 2013, að und­an­skildum nokkrum mán­uðum árið 2017 þegar hann var for­sæt­is­ráð­herra. Annar ráð­herra úr hans flokki gæti því tekið við lyklunum að „veski rík­is­sjóðs“.

Ef Fram­sókn­ar­flokkur og Vinstri græn myndu ákveða að fara í minni­hluta­stjórn með Sam­fylk­ingu, sem tap­aði fylgi og þing­manni í liðnum kosn­ing­um, myndu flokk­arnir fá mun meiri áhrif og fleiri ráðu­neyti til að stýra. Engin hefð er fyrir myndun minni­hluta­stjórna sem varðar eru falli af flokkum sem standa utan form­legs stjórn­ar­sam­starfs hér­lend­is. Það er fyr­ir­komu­lag sem tíðkast víða á Norð­­ur­lönd­unum en minn­i­hluta­­stjórnir eru við stjórn­­völ­inn í Nor­egi, Sví­­þjóð og Dan­­mörku sem stend­­ur. Í Finn­landi er meiri­hluta­stjórn fimm flokka.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

kosningar2021

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár