Bjarni kynnir brátt nýja eigendastefnu um fjármálafyrirtæki

Fjár­mála­ráð­herra kynnir brátt drög að end­ur­skoð­aðri eig­enda­stefnu rík­is­ins um fjár­mála­fyr­ir­tæki. Hann kynnti málið fyrir rík­is­stjórn­inni í morgun. Stefnt er að því að herða á kröfum við sölu á eignum.

End­ur­skoðuð eig­enda­stefna rík­is­ins um fjár­mála­fyr­ir­tæki verður að öllum lík­indum kynnt opin­ber­lega á næstu vikum. Núver­andi eig­enda­stefna er frá árinu 2009 og kynnti Bjarni Bene­dikts­son, fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra, drög að end­ur­skoð­aðri stefnu fyrir rík­is­stjórn í morgun.

Herða á kröfum við sölu á eignum

Bjarni sendi bréf til Banka­sýslu rík­is­ins 11. febr­úar síð­ast­lið­inn, vegna sölu Lands­bank­ans á hlut sínum í Borgun, þar sem fram kom að gert sé ráð fyrir að hert verði á kröfum við sölu á eignum þeirra fjár­mála­fyr­ir­tækja sem stefnan nær til.

Ein ástæða end­ur­skoð­un­ar­innar er breytt umgjörð fjár­málaum­hverfi í land­inu og hinar miklu breyt­ingar á eign­ar­haldi rík­is­ins á fjár­mála­stofn­unum. Samkvæmt heim­ildum Kjarnans er til­greint í stefn­unni að munur geti verið á áherslum eftir eigna­hlut, það er að segja hvort ríkið eigi 98 pró­sent í banka, eða 13 pró­sent eins og í til­viki Arion banka. Ekki er búist við því að stefnan í heild verði end­ur­skoðuð, enda margt þar sem enn eigi vel við. Bjarni mun kynna end­ur­skoð­aða stefnu fyrir þing­inu en það liggur ekki enn fyrir með hvaða hætti; hvort það verði með skýrslu eða sér­stakri umræðu eða með öðrum hætti. Leitað verður almennra umsagna varð­andi breyt­ing­arnar.

Eigendastefnan tilgreind í nýjum lögum

Í nýjum lögum um opin­ber fjár­mál segir að í eig­enda­stefnu skuli gera grein fyrir mark­miðum rík­is­ins með eign­ar­hald­inu, ásamt þeim grunn­gildum sem skulu gilda um sam­skipti og upp­lýs­inga­gjöf milli eig­enda og félags. Þá sé heim­ilt fyrir ráð­herra að að setja sér­staka stefnu fyrir ein­stök félög eða starf­semi á afmörk­uðum sviðum.

Í lög­unum segir einnig að ráð­herra eða rík­is­að­ili sem fari með fyr­ir­svar eign­ar­hluta rík­is­ins í félagi, skuli hafa eft­ir­lit með að eig­anda­stefnu sé fram­fylgt í starf­semi félaga í eigu rík­is­ins. Ef félag er í eigu fleiri aðila en rík­is­ins skulu þeir sem kjörnir eru í stjórn þess fyrir hönd rík­is­ins taka mið af þeim meg­in­sjón­ar­miðum sem fram koma í þeirri eig­anda­stefnu sem sett hefur verið fyrir við­kom­andi svið eða félag.

Þá segir einnig í lög­unum að ráð­herra til­nefni í stjórnir félaga sem ríkið á eign­ar­hlut í á grund­velli hæfni og mennt­unar eða reynslu. Ráðherra setur reglur um almenn og hlut­læg skil­yrði fyrir vali til setu í slíkum stjórnum og birtir þær opin­ber­lega sem hluta af eig­anda­stefnu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár