Þrumarinn vinsælasti kvöldmaturinn

Borgþór Arn­gríms­son kynnti sér ræki­lega hvað Danir borða frá degi til dags. Margt kemur á óvart, en annað ekki.

Danir eru miklir áhuga­menn um mat. Þeir hafa gaman af að borða, tala mikið um mat, skoða mat og elda. Dag­blöðin birta mat­ar­upp­skriftir, við­töl við áhuga­fólk um mat­ar­gerð og umfjöllun um nýj­ungar á sviði mat­reiðslu. Fyrir skömmu voru kunn­gerðar nið­ur­stöður yfir­grips­mik­illar könn­unar á mat­ar­venjum Dana, sem eru íhalds­menn þegar matur er ann­ars vegar.

Áhuga­fólk getur margoft í viku lesið, í dag­blöð­unum, um alls kyns til­boð og álit sér­fræð­inga á mis­mun­andi vín­teg­undum, ostum, lifr­ar­kæfu, smur­brauði o.s.frv. Flestar mat­vöru­versl­anir, ekki allar þó, verja miklum fjár­munum í að útbúa viku­lega og dreifa í hús bæk­lingum sem sýna til­boðin og úrvalið. Slíkir bæk­lingar eru auð­vitað líka á net­inu og þeim fjölgar stöðugt sem nýta sér að gera inn­kaupin í heim­il­is­tölv­unni og fá svo vör­urnar sendar heim að dyrum. Kannanir sýna að umræður um mat og mat­ar­gerð er sígilt umræðu­efni í boðum, þar er bæði talað um mat­inn sem á borðum er þá stund­ina eða mat sem ein­hver bragð­aði í gær. Í viku­blöð­unum, sem eru fjöl­mörg, eru ótal mat­ar­upp­skriftir og fyrir þá sem vilja frekar sjá en lesa bjóða sjón­varps­stöðv­arnar uppá margs konar þætti um mat­ar­til­bún­ing. Þar er mat­ar­gerðin ætíð sögð leikur einn og verkið heima í eld­húsi nán­ast hálfnað þegar maður hefur hengt á sig svunt­una. Rétt er að taka fram að þessi mikli mat­ar­á­hugi Dana bein­ist ekki að fisk­meti, steikt rauð­spretta er háborgin í þeim efnum í huga margra. Danir borða mjög lít­inn fisk og það yrði ekki sleg­ist um orðið í veislum þar sem ræða ætti um sjáv­ar­fang.

Pizza, Pasta, Sushi og allt hitt

Sú gríð­ar­lega breyt­ing, og aukn­ing, sem orðið hefur á fram­boði alls kyns mat­vöru á allra síð­ustu árum hefur ekki farið fram hjá Dönum. Pizza, pasta, sushi, fala­fel, kebab og mörg fleiri orð voru fyrir til­tölu­lega fáum árum fram­andi í hugum flestra Dana en þannig er það ekki lengur. Þessar nýj­ungar eiga rætur sínar utan danskra land­steina, sumar sunnar úr álf­unni, aðrar komnar mun lengra að. Það sem þarna var nefnt, og margt annað, flokk­ast undir svo­kall­aðan skyndi­bita en neysla á slíkum mat hefur marg­fald­ast á síð­ustu árum. Asi og hraði nútím­ans kallar iðu­lega á skyndi­lausnir, það á ekki hvað síst við um mat­ar­til­bún­ing þegar heim er komið. Þá þarf iðu­lega að hafa hrað­ann á til að ljúka öllum þeim verk­efnum sem kalla. Skyndi­biti eða annað það sem þarfn­ast ekki flók­ins und­ir­bún­ings er því iðu­lega lausnin. Hægsuða er ekki til umræðu.

Matarvenjukönnunin mikla

Danska Umhverfis-og mat­væla­ráðu­neytið gekkst á síð­asta ári fyrir mik­illi rann­sókn á mat­ar­venjum dönsku þjóð­ar­innar. Tvö þús­und og fimm hund­ruð danskar fjöl­skyldur tóku þátt í þessu verk­efni ráðu­neyt­is­ins, héldu nákvæmt bók­hald yfir mál­tíð­irnar, hvað borðað var á hverjum degi í sex mán­uði. Til að fá sem gleggsta mynd af mat­ar­venj­unum náði bók­haldið bæði til vetrar-og sum­ar­mán­aða.

Úrvalið kallar fram valkvíða

Þegar pistla­skrif­ari var að alast upp hafði orðið val­kvíði ekki verið fundið upp. Mar­melaði var app­el­sínu­mar­melaði, smjör­líki var ann­að­hvort Flór­usmjör­líki eða Silf­ur­skeifan, hveitið var Pills­burys og kexið frá Frón. Kart­öfl­urnar Gullauga eða Rauðar, kaffið Braga eða Rio frá Kaaber. Þannig er þetta ekki lengur, núna eru að minnsta kosti tutt­ugu teg­undir af mar­melaði, annað eins af smjör­líki, fjórtán teg­undir af hveiti taldi pistla­skrif­ari í stór­mark­aðnum í hverf­inu og níu mis­mun­andi afbrigði af jarð­eplum. Í kaffi­deild­inni var um að velja tutt­ugu og eina teg­und, fyrir utan skyndi­kaffi, annað eftir þessu. Þegar komið var í álegg­skæl­inn vand­að­ist málið fyrir alvöru, þar voru næstum fimm­tíu mis­mun­andi gerðir af nið­ur­sneyddu brauð­á­leggi og ekki var úrvalið í osta­hill­unum minna. Ekki ein teg­und af camembert, nei ell­efu og annað eftir því. Úrvalið ein­skorð­ast ekki við mat­vörur, þegar komið er að þvotta­efn­is­hill­unum tekur ekki betra við. Þar er ekki spurn­ingin hvort kaupa skuli Vex, C 11 eða Spar! Ó nei, tutt­ugu og átta teg­undir um að velja og eina kunn­ug­lega nafnið Omo!

Hér hefur ekki verið minnst á kjöt­úr­valið, við laus­lega ágiskun virt­ist kjöt­borðið, borðin rétt­ara sagt, vera um þrjá­tíu metra löng og úrvalið eftir því. Ekki heldur á allar þær teg­undir og afbrigði hrís­grjóna sem blöstu við í hill­unum og þeir sem halda að ekki séu til önnur hafra­grjón en Ota sól­grjón eiga ýmis­legt ólært.

Af fram­an­sögðu má ljóst vera að það þarf sterkar taugar og ein­beittan vilja til að kom­ast í gegnum slíkt „ferli” sem ein ferð í búð­ina getur verið.

Og hvað borða svo Danir

Danir eru fast­heldnir og íhalds­samir, það gildir ekki bara um afstöðu þeirra til kon­ungs­fjöl­skyld­unnar.

Í stórri könnun á neyslu­venjum Dana sem gerð var fyrir fyrir rúmum þrjá­tíu árum, fyrir daga skyndirétt­anna, nefndu flestir Danir súpu, steik (naut eða svín) og ís þegar spurt var um eft­ir­læt­is­rétti og hvað oft­ast væri á kvöld­verð­ar­borðum, án þess að greint væri á milli viku­daga.

Umsjón­ar­menn nýju könn­un­ar­innar, sem minnst var á í upp­hafi þessa pistils sögð­ust í við­tölum vera mjög spenntir að sjá útkom­una. Langt væri síðan fyrri könnun var gerð og margt benti til að nið­ur­stöð­urnar nú yrðu með allt öðrum hætti en þá. Í könn­un­inni nú er greint á milli viku­daga varð­andi neysl­una.

Helgarsteikin

Steikin, oft­ast nauta- eða svína­steik, ásamt við­bót­inni steiktum kjúklingi, er enn í efsta sæti þegar spurt er um helg­ar­mat­inn, þrátt fyrir allar nýj­ung­arnar. Súpa og ís eru hins­vegar ekki lengur fastur fylgi­fiskur helg­ar­steik­ar­innar, það að borða þrí­réttað á laug­ar­dags­kvöldi heyrir semsé sög­unni til.

Rúgbrauðið vinsælast

Í ljósi þess að Danir eru iðu­lega, og ekki að ástæðu­lausu, kall­aðir rúg­brauðs­þjóð hefðu flestir lík­lega talið að rúg­brauð með áleggi myndi blanda sér í „topp tíu slag­inn”. En að rúg­brauðið skuli vera vin­sæl­asti kvöld­verður dönsku þjóð­ar­innar kom sann­ar­lega á óvart. Fyr­ir­fram töldu flestir að ítölsku flat­bök­urnar, pizzurnar, myndu hreppa þann titil. En nei, rúg­brauðið er númer eitt, pizzan númer tvö, súpa er í þriðja sæti kvöld­verð­ar­vin­sælda­list­ans, kjúklingur með kart­öflum og græn­meti er númer fimm, kótel­ettur og snit­sel númer sex. Pott­réttur er í sjö­unda sæti, pasta­réttur í því átt­unda, kjöt­bollan má sætta sig við níunda sætið og kálfa- eða nauta­steik númer tíu.

Rúmlega helm­ingur lands­manna útbýr sjálfur kvöld­mat­inn, það að kaupa rúg­brauð og smyrja heima fellur í þennan flokk. Eldra fólk útbýr frekar mat heima en það yngra, en könn­unin sýnir að hlut­fall kvenna og karla sem búa ein og elda fyrir sig er mjög svipað. Hjá hjónum er það mun oftar konan sem stendur við elda­vél­ina.

Rúgbrauðsfrumskógurinn

Í mat­ar­venjukönn­un­inni var spurt hvort svar­endur keyptu yfir­leitt sömu teg­undir, t.d. sama kaffið, sama ost­inn o.s.frv. Margir svör­uðu því til að það færi eftir til­boðum hverju sinni hvað keypt væri. Þarna var þó rúg­brauðið sér á parti, lang­flestir sögð­ust alltaf kaupa sömu teg­und­ina, til­boð breyttu þar litlu. Ekki kom fram hvernig svar­endur hefðu fundið hið eina sanna rúg­brauð en í hverf­is­stór­mark­aði pistla­skrif­ara reynd­ust rúg­brauðs­teg­undir við nýlega taln­ingu vera tutt­ugu og ein.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár