Svíþjóð: Ný stjórn í fæðingu – eða nýjar kosningar

Kosið var til þings í Svíþjóð 9. sept­em­ber. Þrátt fyrir nokkrar til­raunir hefur ekki tek­ist að mynda rík­is­stjórn úr þeim nið­ur­stöðu þeirra. Af hverju er það? Hvað veldur því að Svíar geta ekki „hugsað út fyrir boxið“?

Mörgum Íslend­ingum þykir stjórn­ar­kreppan í Svíþjóð bein­línis furðu­leg. Við eigum erfitt með að skilja að sænskir stjórn­mála­menn skuli ekki bara geta „hugsað aðeins út fyrir boxið“, talað sig saman og myndað stjórn. Þótt stjórnin sem nú ræður á Íslandi hafi þótt ólík­leg fyrir kosn­ingar, er eng­inn til­tak­an­lega hneyksl­aður á því að flokk­arnir yst til hægri og vinstri hafi fundið leið til að vinna saman. Af hverju er þetta ekki alveg eins hægt í Svíþjóð? Af hverju sitja Svíar svona pikk­fastir í blokkapóli­tík­inni?

Svarið er vissu­lega að hluta til að finna í blokkapóli­tík­inni og þeirri hefð sem ríkt hefur óslitið í sex­tíu og fimm ár. Svo langur tími er nefni­lega lið­inn síðan síð­ustu sam­steypu­stjórn yfir miðj­una var slitið árið 1957. Tage Erlander var þá for­sæt­is­ráð­herra og með Sós­í­alde­mókrötum í stjórn var Bondeför­bundet undir for­ystu Gunnars Hedlund, sem klauf stjórn­ina 1957 og sama ár var nafni flokks­ins breytt í Centerpartiet eða „Mið­flokk­ur­inn“. Þeim flokki stýrir nú Annie Lööf.

Alla tíð síðan hafa póli­tísku blokk­irnar verið tvær og nokkuð skýrt afmark­aðar. Frá því er þó ein skýr und­an­tekn­ing, því á árunum 1995-1998 studdi Centerpartiet rík­is­stjórn Sós­í­alde­mókrata. Þess ber þó að geta að Centerpartiet er almennt talið hafa færst tals­vert til hægri frá þessum tíma, fyrst þegar Maud Olofsson leiddi flokk­inn inn í Alli­an­sen og síðan hefur Annie Lööf hall­ast enn frekar í sömu átt.

Erfitt að svíkja gefin loforð

Blokkapóli­tíkin er þó alls ekki eina ástæðan fyrir því hve treg­lega gengur að mynda stjórn í Svíþjóð. Þótt vel megi tína til fleiri sam­verk­andi ástæður má hik­laust full­yrða að orð­heldni stjórn­mála­leið­toga vegi hér mjög þungt. „Kúlt­úr­inn“ (hvort sem menn vilja kalla hann menn­ingu eða hefð) er tals­vert öðru­vísi þar en hér. Ráð­herrar neyð­ast vafn­inga­laust til að segja af sér eftir víxl­spor, sem hér þættu varla frétt­næm nema kannski daglangt og flokks­leið­togi sem hefur gefið yfir­lýs­ingu fyrir kosn­ingar, á afar erfitt með að víkja frá henni eftir kosn­ingar.

[adspot]Leið­togar frjáls­lyndu flokk­anna tveggja, Centerpartiet og Liberal­erna, þau Annie Lööf og Jan Björk­lund, gáfu afdrátt­ar­laust til kynna að þau myndu hvorki starfa með Sví­þjóð­ar­demókrötum né Vinstri­flokknum eftir kosn­ingar og gengu reyndar lengra, því þau aftóku líka með öllu að styðja rík­is­stjórn, sem þyrfti stuðn­ing ann­ars hvors þess­ara flokka. Ofan á allt saman kváð­ust þau heldur ekki myndu styðja stjórn undir for­sæti Sós­í­alde­mókrata.

Íslenskir flokks­for­ingjar lenda ekki í slíkri klemmu. Flokk­arnir „ganga óbundnir til kosn­inga“ segja menn hér. Það væri alger­lega óhugs­andi í Svíþjóð, þar sem bæði þykir sjálf­sagt og eðli­legt að kjós­endur hafi skýra val­kosti.

Svíþjóðardemókratar

Tilkoma Sví­þjóð­ar­demókrata gjör­breytti hinu póli­tíska lands­lagi. Rætur flokks­ins liggja m.a. í nýnas­ista­sam­tökum og hann fer ekki í felur með kyn­þátta- og þjóð­ern­is­hyggju sína. Flokk­ur­inn á sér þannig ekk­ert ósvip­aðar rætur og Dansk fol­ke­parti í Danmörku eða Fremskrids­partiet í Noregi. Þeir flokkar eru hins vegar fyrir löngu orðnir full­gildir þátt­tak­endur í stjórn­mál­unum og engum dettur í hug að úti­loka þá frá áhrifum af prinsipp­á­stæðum, eins og gert hefur verið í Svíþjóð.

Að öllum lík­indum má gera ráð fyrir að þró­unin verði á end­anum svipuð í Svíþjóð, en til þess þarf senni­lega lengri tíma en enn hefur gef­ist. Sví­þjóð­ar­demókratar náðu ekki inn á þing fyrr en 2010, en hafa síðan vaxið mjög hratt. Segja má að þeim hafi hrein­lega ekki unn­ist tími til að snurfusa og mýkja ásýnd sína á sama hátt og gerst hefur í Danmörku og Noregi og á sama hátt hefur hvorki almenn­ingi né stjórn­mála­mönnum unn­ist tími til að sætta sig við þessa bylt­ingu á stjórn­mála­svið­inu.

Hinn hraði vöxtur Sví­þjóð­ar­demókrata stafar að hluta til af vax­andi and­stöðu við straum inn­flytj­enda, ekki síst eftir flótta­manna­bylgj­una 2015. En sú and­lits­lyft­ing sem Jimmy Åkeson gerði á flokknum 2011 hafði trú­lega engu minni áhrif. Sví­þjóð­ar­demókratar skil­greina sig nú ekki sem flokk þjóð­ern­is­sinna heldur sem „íhalds­saman félags­hyggju­flokk á þjóð­legum grunni“. Hugtakið „socialconservativism“ er sótt aftur á 19. öld og felur sér við­ur­kenn­ingu íhalds­manna á skyldu sam­fé­lags­ins til að sjá öllum fyrir við­un­andi lífs­við­ur­væri.

Það er ekki síst á þessum grund­velli sem Sví­þjóð­ar­demókratar hafa sótt mik­inn fjölda kjós­enda til Sós­í­alde­mókrata og viss áhersla á vel­ferð­ar­sam­fé­lagið er nokkuð áber­andi í mál­flutn­ingi þeirra. Sé litið til kosn­inga­úr­slita virð­ist einmitt sem Sós­í­alde­mókratar hafi tapað einna mestu fylgi til þessa nýja flokks. Síðast en ekki síst ber svo að geta þess að Sví­þjóð­ar­demókratar hafa sópað til sín óánægju­fylgi fjöl­margra kjós­enda, sem ekki bera lengur traust til stjórn­mála­manna og vilja bara fá „eitt­hvað nýtt“.

En þrátt fyrir vissar félags­legar áherslur standa Sví­þjóð­ar­demókratar ákveðið hægra megin á lang­flestum sviðum. Það er helst afstaða þeirra til aldr­aðra og öryrkja sem gæti skipað þeim til vinstri og þeir leggja vel að merkja ekki áherslu á lækkun skatta. En meðan þeim er haldið alveg áhrifa­lausum reynir auð­vitað ekki á mögu­legan mun á orðum og athöfnum.

Desembersamkomulagið

Í kosn­ing­unum 2014 fengu Sví­þjóð­ar­demókratar nærri 13% atkvæða og nógu marga þing­menn til þess að hvorug blokkin hafði meiri­hluta án stuðn­ings þeirra. Enginn hinna flokk­anna tók þó í mál að starfa með þeim. Fjór­flokka­banda­lagið Alli­an­sen, sem flokk­arnir í bláu blokk­inni mynd­uðu form­lega fyrir kosn­ing­arnar 2006 og setið hafði að völdum í tvö kjör­tíma­bil, fékk nú færri þing­menn en rauð­græna blokkin og hinn nýi leið­togi Sós­í­alde­mókrata, Stefan Löfven, var kos­inn for­sæt­is­ráð­herra. Þingmenn borg­ara­flokk­anna sátu hjá við atkvæða­greiðsl­una og Sví­þjóð­ar­demókratar voru því áhrifa­lausir þótt þeir greiddu atkvæði á móti.

En í des­em­ber hitn­aði í kol­unum. Alli­ans­flokk­arnir lögðu fram sam­eig­in­legt fjár­laga­frum­varp gegn frum­varpi stjórn­ar­innar og fengu það sam­þykkt með til­styrk Sví­þjóð­ar­demókrata. Stefan Löfven hugð­ist taf­ar­laust boða til nýrra kosn­inga, en úr því varð ekki, heldur var gert sam­komu­lag, sem átti að tryggja áhrifa­leysi Sví­þjóð­ar­demókrata. Sú blokk, sem hafði fleiri þing­menn, skyldi fá kjör­inn for­sæt­is­ráð­herra og hlut­leysi í atkvæða­greiðslu um fjár­laga­frum­varp sitt. Þessu sam­komu­lagi var ætlað að standa til kosn­inga 2022 eða í tvö kjör­tíma­bil.

Sam­komu­lagið varð ekki lang­líft. Flokks­þing Krist­demokra­terna hafn­aði því í októ­ber 2015 og Anna Kinberg Batra, nýr leið­togi Modera­terna, gekk skref­inu lengra og gaf þeirri hug­mynd undir fót­inn síðla árs 2016 að vinna með Sví­þjóð­ar­demókrötum í þeim málum, þar sem flokk­arnir ættu sam­leið, ásamt því að fella stjórn Löfvens með stuðn­ingi Sví­þjóð­ar­demókrata. Svo langt voru flokks­fé­lagar hennar ekki til­búnir að ganga og haustið 2017 sagði Kinberg Batra af sér for­mennsku og Ulf Kristers­son tók við.

Des­em­ber­sam­komu­lagið var engu að síður virt út kjör­tíma­bilið og frjáls­lyndu flokk­arnir, C og L, höfn­uðu því aldrei form­lega. Það gerðu rauð­grænu flokk­arnir ekki heldur og þess vegna má gera ráð fyrir að Stefan Löfven hefði vikið kurt­eis­lega fyrir nýrri Alli­ans­stjórn og veitt henni sam­svar­andi hlut­leysi, ef bláa blokkin hefði orðið stærri en sú rauða.

Lok lok og læs

Þessi til­gáta getur líka skýrt yfir­lýs­inga­gleði flokks­leið­toga C og L fyrir kosn­ingar. Fylgi Sóí­alde­mókrata í kosn­ing­unum í sept­em­ber kom nokkuð á óvart og varð tals­vert meira en kann­anir höfðu sýnt. Þegar upp var staðið fékk sitj­andi stjórn einu þing­sæti meira en Alli­ans­flokk­arnir. Um leið sátu Annie Lööf og Jan Björk­lund pikk­föst í þeim læs­ingum sem hingað til hafa alveg komið í veg fyrir myndun nýrrar stjórnar.

[adspot]Ulf Kristers­son hefur stigið gæti­lega til jarðar afstöð­unni til Sví­þjóða­demókrata. Hann hefur aldrei bein­línis ljáð máls á beinu sam­starfi, en á hinn bóg­inn ekki heldur afneitað stuðn­ingi þeirra. Í þessu efni hefur Ebba Busch Thor, sem tók við for­ystu Krist­demokra­terna 2015, verið honum alveg sam­stiga. Þau tvö úti­lok­uðu aldrei ótví­rætt í kosn­inga­bar­átt­unni að þiggja stuðn­ing Sví­þjóð­ar­demókrata í ein­hverju formi, þótt þau héldu sig við þá afstöðu að beint sam­starf kæmi ekki til greina. Hvorugt þeirra var í for­manns­stöðu 2014 og það kann að hafa auð­veldað þeim að mýkja afstöð­una að þessu leyti.

Um Centerpartiet og Liberal­erna gildir allt öðru máli. Annie Lööf og Jan Björk­lund voru bæði for­menn flokka sinna fyrir síð­ustu kosn­ingar og til við­bótar eru kjós­endur þess­ara flokka stórum mun and­snún­ari Sví­þjóð­ar­demókrötum en kjós­endur hinna Alli­ans­flokk­anna tveggja. Lööf og Björk­lund hvik­uðu aldrei frá því í kosn­inga­bar­átt­unni að úti­loka alger­lega allt sam­starf við Sví­þjóð­ar­demókrata, þar með talið að sætta sig við stuðn­ing þeirra. Þetta hefur í reynd úti­lokað nýja Alli­ans­stjórn og til vinstri hafa Lööf og Björk­lund neitað að sætta sig við Löfven sem for­sæt­is­ráð­herra.

Tíminn vinnur gegn læsingum

Nú hefur þing­for­set­inn, Andreas Norlén, lýst því yfir að hann muni leggja fram form­lega til­lögu um Stefan Löfven sem for­sæt­is­ráð­herra mánu­dag­inn 3. des­em­ber og að kosið verði 5. des­em­ber, nema Löfven biðji um frest. Í raun jafn­gildir þetta því að fela Löfven stjórn­ar­mynd­un­ar­um­boð í annað sinn, en þó með nokkru strang­ari tíma­mörkum.

Mögu­leik­inn á slíkri stjórn­ar­myndun er aðeins einn, sem sé sam­steypu­stjórn Sós­í­alde­mókrata og C-L-flokk­anna með þát­töku eða stuðn­ingi Umhverf­is­flokks­ins (MP). Það er ekki alveg óhugs­andi að þessi langi frestur sé til vitnis um að slíkar þreif­ingar séu þegar byrj­aðar. Bæði Lööf og Björk­lund hafa forð­ast fjöl­miðla eftir þessa nýju yfir­lýs­ingu þing­for­set­ans og það bendir ákveðið til að slík stjórn sé nú í kort­unum.

Alli­ans­banda­lagið er klofið í herðar niður eftir til­raun Ulfs Kristers­son til að mynda minni­hluta­stjórn með KD og stuðn­ingi hinna Alli­ans­flokk­anna tveggja og ein­hvers konar „óvirkum“ stuðn­ingi Sví­þjóð­ar­demókrata. Annie Lööf og Jan Björk­lund hafa þess vegna örlítið frjáls­ari hendur en áður. Að auki eru tveir og hálfur mán­uður frá kosn­ingum og óþol­in­mæði almenn­ings fer vax­andi og svo langur tími auð­veldar þeim að opna glufu yfir miðj­una.

Ekki sopið kálið

Bæði Lööf og Björk­lund þurfa að kalla saman flokks­ráð og fá sam­þykki fyrir slíkri kúvend­ingu. Annie Lööf er alger­lega óum­deildur leið­togi í sínum flokki og sænskir frétta­skýrendur eru á einu máli um að flokks­menn fylgi henni hik­laust. Um Jan Björk­lund gildir öðru máli. Staða hans þykir bein­línis veik og fari svo að flokks­ráðið hafni sam­starfi til vinstri, gerir það Annie Lööf mjög erfitt fyrir. Sam­starfið yfir miðj­una bygg­ist að stórum hluta á því að flokk­arnir tveir standi saman.

Það er einmitt flokkur Björk­lunds hefur einna mest að ótt­ast ef boðað verður til nýrra kosn­inga og gæti jafn­vel þurrkast út af þingi sam­kvæmt nýj­ustu könn­unum. En reyndar hefur eng­inn áhuga á nýjum kosn­ingum, nema helst Sví­þjóð­ar­demókratar, sem trú­lega myndu enn bæta við sig. Í borg­ara­flokk­unum fjórum dregur það enn úr kosn­inga­á­hug­anum að kann­anir benda til að rauð­græna blokkin fái nú tals­vert meira fylgi en sú bláa.

[adspot]En jafn­vel þótt báðir þessir flokkar reyn­ist til í tuskið, er málið ekki þar með afgreitt. Stefan Löfven hefur vissu­lega biðlað til þeirra allt frá kosn­ing­unum 2014, en í samn­inga­við­ræðum þarf að gefa eftir. Bæði Centerpartiet og Liberal­erna eru tals­vert hægra megin við miðj­una og Sós­í­alde­mókratar kynnu að þurfa að fall­ast á skatta­lækk­anir, lög­fest­ingu lægri launa við nýráðn­ingar ásamt því að leyfa ótak­mark­aðar arð­greiðslur einka­fyr­ir­tækja í grunn­þjón­ustu. Hið síð­ast­talda er mikið hita­mál og trú­lega óger­legt fyrir Löfven að gefa það alveg eftir.

Þess má líka geta að flokk­arnir þurfa að semja um stefnu í inn­flytj­enda­málum. Þar eru það Sós­í­alde­mókratar sem tóku upp upp harð­ari stefnu vegna mik­ils atkvæða­flótta til SD, en hinir þrír flokk­arnir sem nú gætu verið á leið í stjórn­ar­mynd­una­við­ræður (MP, C og L) vilja hins vegar afnema tak­mark­anir, sem settar voru 2016. Það er líka langt milli flokk­anna á fleiri sviðum og fjarri því að hægt sé að gefa sér að samn­ingar náist. Takist það ekki eru nýjar kosn­ingar vænt­an­lega óum­flýj­an­legar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár