Fáir liggja límdir yfir stjórnmálafréttum klukkustundum saman

Langstærstur hluti almenn­ings seg­ist hafa varið innan við klukku­stund á dag í að fylgj­ast með fréttum og frétta­tengdu efni um inn­lend stjórn­mál á und­an­förnum vikum.

Samkvæmt niðurstöðum ÍSKOS sem birtar eru í samráði við Félagsvísindastofnun HÍ eru fáir sem segjast fylgjast með stjórnmálafréttum eða tengdu efni í meira en klukkustund á dag.
Samkvæmt nið­ur­stöðum ÍSKOS sem birtar eru í sam­ráði við Félags­vís­inda­stofnun HÍ eru fáir sem segj­ast fylgj­ast með stjórn­mála­fréttum eða tengdu efni í meira en klukku­stund á dag. Mynd: Birgir Þór Harðarson

Lang­flestir Íslend­ingar virð­ast verja innan við klukku­tíma á dag í að fylgj­ast með fréttum eða frétta­tengdu efni um íslensk stjórn­mál, þrátt fyrir að kosn­inga­bar­áttan sé nú í hámæli og kosn­ingar til Alþingis fari fram eftir 10 daga.

Samkvæmtnið­ur­stöðum úr yfir­stand­andi net­könnun á vegum Íslensku kosn­inga­rann­sókn­ar­innar (ÍSKOS) sem birt­ast á vef Félags­vís­inda­stofn­unar Háskóla Íslands segj­ast tæp 80 pró­sent lands­manna varið innan við klukku­tíma í að fylgj­ast með fréttum eða frétta­tengdu efni um inn­lend stjórn­mál sól­ar­hring­inn áður en þau voru spurð.

Síðustu 14 daga segj­ast 8,5 pró­sent ekki hafa varið svo mikið sem einni mín­útu í að fylgj­ast með stjórn­mál­unum í fréttum, 40 pró­sent segj­ast hafa varið minna en 30 mín­útum í að fylgj­ast með og 30,2 segja að minna en klukku­tími af þeirra degi hafi farið í frétta­neysl­una.

Rúmlega 21 pró­sent svar­enda segj­ast síðan hafa varið yfir klukku­stund í að fylgj­ast með fréttum eða frétta­tengdu efni um stjórn­mála­bar­átt­una sem nú stendur yfir, en óhætt er að segja að fram­boðið af fréttum og frétta­tengdum þáttum í sjón­varpi, vef­varpi, útvarpi og jafn­vel hlað­varpi hafi verið mikið und­an­farnar vikur.

Yngsta fólkið og það elsta líklegast til að fylgjast mest með

Samkvæmt nið­ur­stöðum könn­un­ar­innar er það yngsta fólkið, í ald­urs­hópnum 18-29 ára, og elsta fólkið, 60 ára og eldri, sem er lík­leg­ast til þess að verja yfir klukku­stund af tíma sínum í að fylgj­ast með fréttum eða frétta­tengdu efni af stjórn­mál­unum.

[adspot]

Í ald­urs­hópnum 18-29 ára seg­ist rúmur fjórð­ungur, eða 26,3 pró­sent, verja meira en einni klukku­stund í að fylgj­ast með og tæpur fjórð­ungur, eða 24,2 pró­sent þeirra sem eru komin yfir sex­tugs, segj­ast gera slíkt hið sama.

Hjá þeim sem eru á bil­inu 30-44 ára mælist þetta sama hlut­fall 16,9 pró­sent og 17,2 pró­sent hjá þeim sem eru 45-59 ára.

Hátt í 13 prósent höfðu rætt pólítík á netinu daginn áður

Í könnun ÍSKOS er einnig spurt út í það hvort fólk hafi tekið þátt í umræðum um inn­lend stjórn­mál á sam­fé­lags­miðlum und­an­far­inn sól­ar­hring, til dæmis með því að skrifa ummæli við færslur eða með því að deila fréttum sem snúa að stjórn­málum.

Í ljós kemur að það segj­ast fáir hafa gert, eða ein­ungis 12,6 pró­sent, en 87,4 pró­sent segj­ast ekki hafa tekið þátt í stjórn­mála­um­ræðu á net­inu und­an­far­inn sól­ar­hring.[links]

Nokkuð mik­ill munur er á körlum og konum hvað þetta varðar, en 16,1 pró­sent karla segj­ast hafa tekið þátt í umræðum á net­inu und­an­far­inn sól­ar­hring og 8,8 pró­sent kvenna.

Tekið skal fram að þegar rýnt er í nið­ur­stöð­urnar eftir ald­urs­hópum eru svörin stundum fá, eða færri en 250, í hverjum hópi og því skal ef til vill var­ast að lesa of mikið í nið­ur­stöð­urnar.

Yfirstandandi könnun

Félags­vís­inda­stofnun Háskóla Íslands birti í gær nýja síðu með nið­ur­stöðum úr Íslensku kosn­inga­rann­sókn­inni um kosn­inga­ætlan almenn­ings, auk nið­ur­staðna um svörin við spurn­ing­unum sem er fjallað um hér að ofan og afstöðu til þess hver helstu stefnu­málin eru í hugum kjós­enda. Nið­ur­stöð­urnar um kosn­inga­ætlan í kom­andi kosn­ingum eru þegar byrj­aðar að vigta inn í kosn­inga­spá Kjarnans og Baldurs Héð­ins­sonar.

Þessi könnun er ólík öðrum sem eru í gangi núna fyrir kosn­ingar að því leyti að hún upp­fær­ist dag­lega, en á hverjum ein­asta degi er könn­unin send á 184 ein­stak­linga sem svara því hvað þeir myndu kjósa ef gengið væri til kosn­inga í dag.

Fylgi flokka og sömu­leiðis svörin við þeim spurn­ingum sem fjallað er um hér að ofan hnikast því lít­il­lega til á hverjum degi og hægt er að merkja hvernig þró­unin er, sam­kvæmt mæl­ing­unum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

kosningar2021

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár