Mikil óvissa í ríkisfjármálum: Bóluefni fljótlega eða annar veiruskellur?

Óvissa um hvernig heims­far­ald­ur­inn mun þró­ast setur svip sinn á alla áætl­ana­gerð. Í rík­is­fjár­mála­á­ætlun til árs­ins 2025 eru svart­sýnar og bjart­sýnar sviðs­myndir um þróun heims­far­ald­urs­ins dregnar upp.

Afkoma ríkisins á næstu árum er sveipuð óvissu, sem felst meðal annars í því hvort og hvenær öruggt bóluefni gegn COVID-19 kemst í dreifingu.
Afkoma rík­is­ins á næstu árum er sveipuð óvissu, sem felst meðal ann­ars í því hvort og hvenær öruggt bólu­efni gegn COVID-19 kemst í dreif­ingu. Mynd: Birgir Þór Harðarson

Rík­is­stjórnin kynnti í gær fjár­mála­á­ætlun rík­is­ins fram til árs­ins 2025. Við þá áætlun er stuðst við ákveðna grunn­spá um fram­vindu efna­hags­mála, en sú fram­vinda er í grund­vall­ar­at­riðum háð þróun far­ald­urs­ins bæði hér á landi og erlendis.

Enginn veit fyrir víst hvernig far­ald­ur­inn mun þró­ast og því er óvissan gríð­ar­leg, ekki síst hvað ferða­þjón­ust­una varðar. Raunar er óvissan svo mikil að í umfjöllun um óviss­una segir að hefð­bundið mat á hag­sveiflu­leið­réttri afkomu rík­is­sjóðs, sem jafnan birt­ist í fjár­mála­á­ætlun, sé svo mik­illi óvissu háð að gagn­semi þess sé hverf­andi.[links]

Í fjár­mála­ætl­un­inni eru teikn­aðar upp bæði bjart­sýnar og svart­sýnar frá­viks­sviðs­myndir við grunn­spána. Bjart­sýna sviðs­myndin gengur út frá því að vel gangi að útrýma far­aldr­inum strax á næstu miss­erum og ferða­mönnum fjölgi hratt á Íslandi. Sú svart­sýna gerir hins vegar ráð fyrir því að stór bylgja COVID-19 komi upp aftur snemma á næsta ári bæði hér á landi og erlendis með hörðum sótt­varn­ar­að­gerðum og hafi í för með sér meiri áhrif á vænt­ingar og áhættu­sækni einka­geirans en sú bylgja sem gekk yfir í vor.

Tekið skal fram að í umfjöllun fjár­mála­ráðu­neyt­is­ins segir að þessar tvær sviðs­myndir fangi ekki alla þá óvissu sem ríkir um þróun ytri aðstæðna á næstu árum, en að í þeim sé fjallað um tvo af mik­il­væg­ustu óvissu­þátt­unum; þróun far­ald­urs­ins og þróun í ferða­þjón­ustu.

Svartsýnin: Þungur skellur í upphafi næsta árs

Svart­sýna sviðs­myndin sem horft er til gerir ráð fyrir því að stór bylgja far­ald­urs COVID-19 komi upp bæði hér á landi og erlendis snemma á næsta ári. Gert er ráð fyrir að ráð­ist verði aftur í harðar sótt­varn­ar­að­gerðir og að bæði útflutt og inn­flutt ferða­þjón­usta verði 40 pró­sent minni en í grunn­spá Hag­stof­unnar.

Með öðrum orðum er gert ráð fyrir end­ur­teknu áfalli vegna kór­ónu­veirunnar, sem yrði af svip­aðri stærð­argráðu og það sem gekk yfir á vor­mán­uðum. Þótt sam­fé­lagið búi nú að reynsl­unni frá fyrstu bylgj­unni er ekki gert ráð fyrir því í þess­ari svart­sýnu sviðs­mynd að sú reynsla hjálpi til við að milda efna­hags­leg áhrif nýrrar bylgju. Þvert á móti er sú for­senda gefin í sviðs­mynd­inni að ítrekað áfall í formi stórrar bylgju far­ald­urs­ins hafi meiri áhrif á vænt­ingar og áhættu­sækni einka­geirans en sú bylgja far­ald­urs­ins sem gekk yfir í vor.

Í þess­ari dökku sviðs­mynd er gert ráð fyrir að verg lands­fram­leiðsla verði 2 pró­sentum lægri en í grunn­spá Hag­stof­unnar fyrir árið 2021. Munurinn muni svo aukast eftir því sem líður á spá­tím­ann og verði 3 pró­sent árið 2026.

Við lok spá­tím­ans verði lands­fram­leiðsla því 100 millj­örðum krónum lægri en í grunn­spánni og skuldir hins opin­bera 71 pró­sent af lands­fram­leiðslu en ekki 65 pró­sent eins og gert er ráð fyrir í grunn­s­viðs­mynd fjár­mála­á­ætl­unar.

Bjartsýnin: Tvær milljónir ferðamanna árið 2023

Í bjart­sýnu sviðs­mynd­inni er gert frá því að fjöldi ferða­manna á Íslandi vaxi umtals­vert hraðar en segir í grunn­spá Hag­stof­unnar, ferða­menn verði aftur orðnir yfir 2 millj­ónir strax árið 2023, en ekki árið 2026 eins og gert er ráð fyrir í grunn­spánni.

Hér gæti því verið um að ræða sviðs­mynd þar sem vel gengur að útrýma far­aldr­inum strax á næstu miss­erum, til dæmis með áhrifa­ríku bólu­efni sem fengi hraða dreif­ingu, og eft­ir­spurn eftir ferða­lögum brjót­ist fram af krafti í kjöl­farið.

Þessi sviðs­mynd gerir ráð fyrir að verg lands­fram­leiðsla verði um 1 pró­sentu­stigi hærri á næstu árum en í grunn­spá Hagstofu, en að mun­ur­inn á milli bjart­sýnu sviðs­mynd­ar­innar og grunn­spár­innar auk­ist þegar líði á spá­tím­ann og verði orð­inn 2 pró­sentu­stig árið 2026. Lands­fram­leiðslan yrði því um það bil 60 millj­örðum hærri á núvirði við lok spá­tím­ans en í grunn­spánni.

Atvinnu­leysi lækkar einnig hraðar í bjart­sýnu sviðs­mynd­inni en í grunn­spánni og er orðið svipað við lok spá­tím­ans og það var árið 2019. Skulda­staða rík­is­sjóðs yrði einnig betri en gert er ráð fyrir sam­kvæmt grunn­spánni, skuld­irnar yrðu þannig um 60 pró­sent af vergri lands­fram­leiðslu árið 2025 en ekki 65 pró­sent, eins og grunn­s­viðs­myndin í fjár­mála­á­ætl­un­inni gerir ráð fyrir.

Loftslagsbreytingar stór óvissuþáttur til lengri tíma

Í hag­spám er alltaf óvissa, en vegna far­ald­urs­ins er þessi óvissa meiri og í raun algjör á ákveðnum sviðum eins og í ferða­þjón­ust­unni. Í fjár­mála­á­ætl­un­inni er þó farið yfir að fleiri óvissu­þættir séu til staðar til skamms tíma, til dæmis þróun bæði alþjóða­við­skipta og orku­verðs, auk þeirra áhrifa sem fel­ast í útgöngu Breta úr Evr­ópu­sam­band­inu.

Til lít­il­lega lengri tíma munu tækni­breyt­ingar og geta hag­kerf­is­ins til að takast á við þær og lofts­lags­breyt­ingar svo vafa­lítið hafa mikil áhrif á þróun efna­hags­mála, sam­kvæmt mati ráðu­neyt­is­ins.

„Efna­hags­leg áhrif og kostn­aður af lofts­lags­breyt­ingum getur verið veru­legur. Kostn­að­ur­inn er þó mik­illi óvissu háður enda geta áhrifin verið ófyr­ir­séð, gerst snögg­lega og haft keðju­verk­andi áhrif,“ segir í fjár­mála­á­ætl­un­inni. Því er bætt við að efna­hags­legir hvatar og reglu­setn­ing á tíma­bil­inu fram til 2025 geti þó haft mikið að segja um þessi lang­tíma­á­hrif.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár