Síldarvinnslan hagnaðist um 5,3 milljarða í fyrra og er metin á næstum 100 milljarða

Síld­ar­vinnslan verður skráð á markað í næsta mán­uði. Hún er metin á allt að 99 millj­arða króna og hlut­hafar sem munu selja fá allt að 29 millj­arða króna. Stærstu eig­endur hennar, Samherji og Kjálka­nes, eru taldir lík­leg­astir til að selja.

Gunnþór Ingvarsson er forstjóri Síldarvinnslunnar.
Gunnþór Ingv­ars­son er for­stjóri Síld­ar­vinnsl­unnar. Mynd: Síldarvinnslan

Síld­ar­vinnslan hf. hagn­að­ist um 5,3 millj­arða króna á síð­asta ári. Tekjur hennar 2020 voru 24,9 millj­arðar króna og eigið fé sam­stæð­unnar í árs­lok var 49,1 millj­arðar króna. Eig­in­fjár­hlut­fall Síld­ar­vinnsl­unnar, sem er á leið á markað, var 68 pró­sent um síð­ustu ára­mót.

Þetta kemur fram í upp­lýs­ingum úr árs­reikn­ingi Síld­ar­vinnsl­unnar sem birtar voru fyrr í þessum mán­uði. Árs­reikn­ingnum sjálfum hefur þó ekki verið skilað inn til árs­reikn­inga­skráar.

Verð­mætasta bók­færða eign félags­ins eru veið­i­­heim­ild­ir, aðal­lega í upp­sjáv­ar­teg­und­um, sem voru sagðar 228,3 millj­­ónir dala í lok árs 2019. Á gengi dags­ins í dag gera það um 30 millj­­arðar króna. Raun­veru­legt virði þeirra heim­ilda er mun meira, lík­lega nær 80 millj­örðum króna. Sá loðnu­kvóti hefur var úthlutað í ár mun bæta afkomu Síld­ar­vinnsl­unnar á yfir­stand­andi ári.

Samherji og Kjálkanes langstærstu eigendurnir

Stærsti ein­staki eig­andi sam­stæð­unnar er Samherji með 44,64 pró­sent eign­ar­hlut. Næst stærsti eig­and­inn er svo Kjálka­nes með 34,23 pró­sent hlut, en á helstu eig­endur þess félags eru Björgólfur Jóhanns­son, fyrr­ver­andi for­stjóri Samherja, og fólk sem teng­ist honum fjöl­skyldu­böndum. Þá á eign­ar­halds­fé­lagið Snæfugl 5,3 pró­sent hlut, en Samherji á 15 pró­sent hlut í því og Björgólfur á fimm pró­sent. Þessi blokk á því sam­an­lagt yfir 84 pró­sent hlut í Síld­ar­vinnsl­unni.

Fyrir utan hana er stærsti eig­and­inn er Sam­vinnu­fé­lag útgerð­ar­manna í Nes­kaup­stað sem á tæp­lega ell­efu pró­sent hlut. Það var stofnað árið 1932 og starfar sem eign­ar­halds­fé­lag auk þess sem það rekur versl­anir og umboðs­starf­semi. Það hefur meðal ann­ars nýtt arð­inn af eign sinni í Síld­ar­vinnsl­unni til þess að styrkja menn­ingar- og félags­mál í heima­byggð.

Hluturinn í Sjóvá færður út

Síld­ar­vinnslan hefur ekki ein­ungis verið að veiða og vinna afla á und­an­förnum árum. Hún átti líka SVN eigna­fé­lag ehf., fjár­fest­inga­fé­lag sem á 14,55 pró­sent hlut í trygg­inga­fé­lag­inu Sjóvá. SVN er stærsti eig­andi Sjóvár og Björgólfur Jóhanns­son er stjórn­ar­for­maður félags­ins í krati þess eign­ar­hlutar.

Fyrir dyrum er skrán­ing Síld­ar­vinnsl­unnar á hluta­bréfa­markað. Almennt hluta­fjár­út­boð í félag­inu mun fara fram dag­anna 10. til 12. maí næst­kom­andi og þar stendur til að selja 26 til 29 pró­sent hlut í félag­inu, sam­kvæmt því sem fram kemur í Mark­aðnum, fylgi­riti Frétta­blaðs­ins um efna­hags­mál og við­skipti, í dag.

Stjórn Síld­ar­vinnsl­unnar, þar sem Þor­steinn Már Bald­vins­son fer með for­mennsku, ákváðu að færa SVN eigna­fé­lag til hlut­hafa áður en af skrán­ingu yrði. Sá til­flutn­ingur hefur þegar farið fram. Virði eign­ar­hlut­ar­ins í Sjóvá er, miðað við núver­andi gengi félags­ins, er um 6,4 millj­arðar króna. SVN eigna­fé­lag er því sem næst skuld­laust miðað við síð­asta birta árs­reikn­ing.

Þeir sem selja geta fengið nálægt 29 milljarða

Þrátt fyrir þessa útgreiðslu verður útboðs­gengi Síld­ar­vinnsl­unnar miðað við að heild­ar­virði Síld­ar­vinnsl­unnar sé á bil­inu 93,5 til 99 millj­arðar króna, sam­kvæmt upp­lýs­ingum sem Kjarninn hefur fengið hjá aðilum sem hafa séð kynn­ingar á útboð­inu.

Kjarninn greindi frá því í frétta­skýr­ingu í febr­úar að búast mætti við því að mark­aðsvirði Síld­ar­vinnsl­unnar yrði í kringum 100 millj­arða króna.

Þetta verður ekki í fyrsta sinn sem Síld­ar­vinnslan er skráð á mark­aði. Hún var skráð í Kauphöll um ára­tuga­skeið frá 1994 til 2004. En félagið er tölu­vert öðru­vísi, og mun stærra, nú en það var þá.

Ef útboðs­gengið mun á end­anum verða í efri mörkum, og miða við að heild­ar­virði Síld­ar­vinnsl­unnar sé 99 millj­arðar króna, eru þeir hlut­hafar sem selja hluti að fara að fá 28,7 millj­arða króna í sinn hlut fyrir það hlutafé sem þeir selja.

Búist er við að Samherji og Kjálka­nes muni selja mest af því sem selt verður, jafn­vel allt. Líf­eyr­is­sjóðir eru taldir lík­leg­astir til að kaupa stærstan hluta þess sem selt verður.

Félag Samherja selur vörur Síldarvinnslunnar

Kjarninn greindi frá því í frétta­skýr­ingu í byrjun apríl að Sam­keppn­is­eft­ir­litið sé þeirrar skoð­unar að veru­leg tengsl séu milli stærstu hlut­hafa í Síld­ar­vinnsl­unni, Samherja og Kjálka­nes.

[links]Þrír af fimm stjórn­ar­mönnum sam­stæð­unnar eru skip­aðir af þessum tveimur félögum eða eru tengdir eig­endum þeirra. Að mati Sam­keppn­is­eft­ir­lits­ins eru því vís­bend­ingar um yfir­ráð Samherja yfir Síld­ar­vinnsl­unni.

Verð­mætasta bók­færða eign félags­ins voru veið­i­­heim­ild­ir, aðal­lega í upp­sjáv­ar­teg­und­um, sem voru sagðar 228,3 millj­­ónir dala í lok árs 2019. Á gengi dags­ins í dag gera það um 30 millj­­arðar króna. Raun­veru­legt virði þeirra heim­ilda er mun meira, lík­lega nær 80 millj­örðum króna. Sá loðnu­kvóti sem nú hefur verið úthlutað mun bæta afkomu Síld­ar­vinnsl­unnar á yfir­stand­andi ári.

Auk fram­an­greinds hafi umræddir aðilar, í sumum til­vikum ásamt öðrum sjáv­ar­út­vegs­fyr­ir­tækjum, átt með sér sam­starf við nýsmíði skipa erlendis, fryst­ingu sjáv­ar­afla og löndun mak­rílafla sem veiddur var utan fisk­veiði­lög­sögu Íslands og Ice-Fresh Seafood ehf., dótt­ur­fé­lag Samherja, hefur haft milli­göngu í sölu­málum fyrir Síld­ar­vinnsl­una.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

kauphöll

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár