Drífa segir Bjarna hafa fundið upp hugtakið „afkomubætandi ráðstafanir“

Forseti ASÍ gagn­rýnir fjár­mála­á­ætlun rík­is­stjórn­ar­innar harð­lega og segir að afkoma fólks og sam­fé­lags­legir hags­munir eigi að vera í fyrsta sæti. Hún telur fra­s­ann „afkomu­bæt­andi ráð­staf­anir“ vera nýyrði smíðað af fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra.

Bjarni Benediktsson og Drífa Snædal.
Bjarni Bene­dikts­son og Drífa Snædal. Mynd: Landsbankinn

Drífa Snædal, for­seti Alþýðu­sam­bands Íslands, gagn­rýnir harð­lega fjár­mála­á­ætlun rík­is­stjórnar Íslands fyrir árin 2022-2026 í viku­legum pistli sínum í dag, og fylgir þar með eftir umsögn sam­bands­ins um áætl­un­ina sem skilað var inn til Alþingis í vik­unni.

Drífa bendir á að fjár­mála­á­ætl­unin geri ráð fyrir fimm pró­sent atvinnu­leysi í lok tíma­bils­ins sem hún nær til. Það sé að hennar mati með öllu óásætt­an­leg fram­tíð­ar­sýn. „Markmið rík­is­fjár­mála á að vera að dempa höggið af krepp­unni með því að tryggja afkomu fólks og fulla atvinnu til fram­tíðar. Við súpum enn seyðið af því lang­tíma­at­vinnu­leysi sem mynd­að­ist í kringum hrun en eftir því sem atvinnu­leysi dregst á lang­inn, þeim mun erf­ið­ara verður að takast á við það.“

Í pistl­inum fjallar Drífa einnig um áform stjórn­valda um svo­kall­aðar „afkomu­bæt­andi ráð­staf­anir“, en það er hug­tak sem notað hefur verið um skatta­hækk­anir og/eða nið­ur­skurð á gjöldum rík­is­sjóðs. Drífa segir að um nýyrði sé að ræða sem virð­ist hafa verið fundið upp af Bjarna Bene­dikts­syni, sitj­andi fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra.

[adspot]Samkvæmt leit Kjarnans á vef­svæð­inu tima­rit.is er orðið „afkomu­bæt­andi“ ekki þar að finna. Það er heldur ekki til í beyg­ing­ar­lýs­ingu íslensks nútíma­máls hjá Árna­stofnun og virð­ist fyrst hafa verið notað í opin­berri umræðu á Íslandi í fjár­mála­á­ætlun sem lögð var fram árið 2019.

Drífa bendir á að hug­takið komi fram 114 sinnum í nýfram­lagðri fjár­mála­á­ætlun rík­is­stjórn­ar­innar. „Í stuttu máli er þarna verið að leggja til annað hvort skatta­hækk­anir eða nið­ur­skurð. Ég árétta þá afstöðu ASÍ að nið­ur­greiðsla skulda á að mæta afgangi. Afkoma fólks og sam­fé­lags­legir hags­munir eiga að vera í fyrsta sæti. Nið­ur­skurður mun gera krepp­una dýpri og skað­legri en hún þarf að vera.“

Gert ráð fyrir fleiri ferðamönnum, annars...

Í fjár­mála­á­ætl­un­inni er gengið út frá ákveð­inni grunn­s­viðs­mynd sem miðar meðal ann­ars við þær for­sendur að meg­in­þorri lands­manna og íbúa helstu við­skipta­landa verði bólu­settur fyrir mitt ár 2021. Það muni leiða til fjölg­unar ferða­manna sem drífi áfram efna­hags­bata þannig að ferða­menn sem heim­sæki Ísland verði 720 þús­und í ár og fjölgi um 80 pró­sent á næsta ári, 2022, og verði þá 1,3 millj­ónir alls. Á metár­inu 2018 voru ferða­menn sem heim­sóttu Ísland 2,3 millj­ónir og ár.

[links]Reynist efna­hags­þró­unin hins vegar lak­ari og í sam­ræmi við svart­sýnu sviðs­mynd­ina sem sett er fram í áætl­un­inni, þar sem ferða­þjón­ustan er lengur að jafna sig og áhrifa sótt­varna gætir lengur með til­heyr­andi áhrifum á atvinnu­leysi, gefa áætl­anir til kynna að und­ir­liggj­andi afkoma hins opin­bera verði um 1,9 pró­sent af vergri lands­fram­leiðslu lak­ari að jafn­aði árin 2022–2026. „Við slíka afkomu­þróun yrði nauð­syn­legt að auka afkomu­bæt­andi ráð­staf­anir um helm­ing þannig að þær yrðu um 50 ma.kr. á ári árin 2023–2025 í stað 34 ma.kr. Rýrnunin í und­ir­liggj­andi afkomu hins opin­bera stafar að mestu af tekju­lækkun sem nemur um 50 ma.kr. á ári að jafn­aði miðað við þessa sviðs­mynd. Þá aukast útgjöld hins opin­bera um 16 ma.kr. á ári að jafn­aði en kostn­aður vegna atvinnu­leysis vegur þar um helm­ing. Aukin vaxta­gjöld vegna hærri skuld­setn­ingar eru um 5 ma.kr. á ári að jafn­aði. Að teknu til­liti til auk­ins umfangs afkomu­bæt­andi ráð­staf­ana stöðvast skulda­söfnun hins opin­bera árið 2025 við um 59% af VLF. Um 0,6 pró­sentu­stig af skulda­hækk­un­inni í lok tíma­bils­ins má rekja til lægri áætl­unar um VLF í svart­sýnu sviðs­mynd­inni.“

Yfir 21 þúsund manns án atvinnu

Atvinnu­leysi er í hæstu hæðum hér­lendis um þessar mundir. Það dróst lít­il­lega saman milli febr­úar og mars en mæld­ist samt sem áður 12,1 pró­sent í lok síð­asta mán­aðar. Þar af var almennt atvinnu­leysi, sem mælir þá sem voru að öllu leyti án atvinnu, alls ell­efu pró­sent sem þýðir að 21.019 manns voru atvinnu­lausir í lok síð­asta mán­að­ar. Það minnk­aði um 0,4 pró­sentu­stig á milli mán­aða. Til við­bótar voru svo 4.186 á hluta­bótum sem bætti 1,1 pró­sentu­stigi við heild­ar­at­vinnu­leys­ið.

Alls höfðu 6.207 almennir atvinnu­leit­endur verið án atvinnu í meira en eitt ár í lok síð­asta mán­að­ar. Þeim fjölg­aði um 1.488 milli mán­aða og hefur fjölgað um 4.009 frá því í mars í fyrra.

Þegar hóp­ur­inn sem hefur verið atvinnu­laus í hálft ár eða meira er skoð­aður þá taldi hann 13.647 um síð­ustu mán­aða­mót. Alls fjölg­aði í þeim hópi um 886 milli mán­aða.

Vilja viðbrögð við kerfislægu atvinnuleysi

ASÍ gagn­rýndi í umsögn sinni um fjár­mála­á­ætlun að það skorti enn á sér­tækar aðgerðir til að mæta atvinnu­leit­endum á þeim svæðum sem verst hafa orðið úti og að atvinnu­leys­is­trygg­inga­kerfið þurfi að tryggja við­un­andi afkomu á meðan efna­hags­lífið nær sér á strik. Sam­bandið kallar eftir því að tíma­bil atvinnu­leys­is­trygg­inga verði lengt úr 30 í 36 mán­uði, að grunn­bætur atvinnu­leys­is­trygg­inga verði hækk­aðar í 95 pró­sent af dag­vinnu­tekju­trygg­ingu og að hluta­bætur verði virkt úrræði svo lengi sem þörf er á.

Þá kallar ASÍ eftir því að brugð­ist verði við kerf­is­bundnu atvinnu­leysi hér­lendis, sem hafi verið byrjað að aukast áður en að COVID-19 skall á. Skýr­ingin liggi í sam­spili margra ólíkra þátta og þá sér­stak­lega vax­andi mis­ræmis. „Íslenskur vinnu­mark­aður hefur tekið veru­legum breyt­ingum frá alda­mótum. Veruleg fækkun hefur orðið í uppi­stöðu­störfum utan höf­uð­borgar, þ.e. sjáv­ar­út­vegi og ný störf sem hafa orðið til, t.d. í ferða­þjón­ustu og tengdum greinum eru afar frá­brugðin þeim sem hurfu. Vinnu­mark­aður er orð­inn fjöl­breytt­ari, alþjóð­legri, kvik­ari, ásamt því að þjóðin eld­ist. Stjórn­völd hafa ekki tekið virkan þátt í að hafa áhrif á þessar breyt­ingar, t.d. með mótun atvinnu­stefnu, hæfn­istefnu eða stefnu í inn­flytj enda­málum.“

Hægt er að lesa umsögn ASÍ í heild sinni hér.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár