Hökt í aðfangakeðjum hefur keðjuverkandi áhrif og veldur skorti á nauðsynjavörum

Nú eru það túrtappar, í síð­asta mán­uði var það þurr­mjólk, í fyrra voru það raf­tæki og hús­gögn. Banda­rískir neyt­endur standa reglu­lega frammi fyrir skorti á ýmsum nauð­synja­vörum og hafa gert frá því að hökta tók í aðfanga­keðjum heims­ins í far­aldr­inum.

Neytendur í Bandaríkjunum hafa ekki getað gengið að því vísu að fá allt á innkaupalistanum svo mánuðum skiptir.
Neyt­endur í Banda­ríkj­unum hafa ekki getað gengið að því vísu að fá allt á inn­kaupa­list­anum svo mán­uðum skiptir. Mynd: EPA

Mikill skortur er á túr­töppum í Banda­ríkj­unum um þessar mundir og berj­ast fram­leið­endur við að anna eft­ir­spurn­inni. Allt frá upp­hafi kór­ónu­veiru­far­ald­urs­ins hefa rask­anir í aðfanga­keðjum heims­ins haft það í för með sér að fólk skortir nauð­synja­vörur. Ekki bætir úr skák að verð­bólga hefur látið á sér kræla víða um heim og fólk hefur gripið til þess ráðs að hamstra, bæði til þess að kom­ast hjá því að fá ekki vör­una sem það þarf og til þess að reyna að verða á undan verð­bólg­unni, ef þannig mætti að orði kom­ast.

„Ég athug­aði í átta búðum! Ég end­aði á því að panta á Amazon á upp­sprengdu verði,“ segir ein reynslu­saga af Reddit um leit konu að túr­töppum. Notendur sam­fé­lags­miðla hafa deilt reynslu sinni af skort­inum und­an­farnar vikur en vanda­málið hefur verið við­var­andi í Banda­ríkj­unum í þónokkurn tíma, að því er fram kemur í umfjöllun New York Times. [adspot]

Túrtappar bæt­ast þar með á lista yfir vörur sem hörgull hefur verið á. Til að mynda var alvar­legur skortur á þurr­mjólkí Banda­ríkj­unum fyrr á þessu ári. Í upp­hafi kór­ónu­veiru­far­ald­urs­ins fór fólk að hamstra nauð­synja­vörur í stór­mörk­uðum, bæði hér heima og vest­an­hafs. Þetta átti til dæmis við um kló­sett­pappír og bök­un­ar­vörur á borð við hveiti og ger svo tíma­bund­inn skortur varð á þessum vörum.

Heita því að auka framboð

Fram­leið­endur túrtappa hafa nú heitið því að tækla þennan fram­boðs­skort í Banda­ríkj­unum. Í frétt BBC er haft eftir full­trúa Edgewell Personal Care, sem meðal ann­ars fram­leiðir o.b. túrtappa að fram­boð fyr­ir­tæk­is­ins hafi minnkað vegna mik­ils skorts á vinnu­afli í Banda­ríkj­unum og Kanada sem er til­kom­inn vegna kór­ónu­veiru­far­ald­urs­ins. Unnið sé allan sól­ar­hring­inn í verk­smiðjum fyr­ir­tæk­is­ins til þess að reyna að mæta eft­ir­spurn­inni. Þá er einnig bent á það í frétt­inni að aðföng til fram­leiðslu á hrein­læt­is­vörum hafi hækkað mikið í verði í kjöl­far inn­rásar Rússa í Úkraínu.

Vanda­málið er samt sem áður ekki nýtt af nál­inni. Líkt og áður segir er vanda­málið að stórum hluta tregða í gang­verki aðfanga­keðja heims­ins sem má að miklu leyti rekja til kór­ónu­veiru­far­ald­urs­ins. Atburða­rásin er rakin í stuttu máli í grein New York Times. Upp­sagnir fylgdu kóln­un­inni sem varð í hag­kerfum heims­ins vegna far­ald­urs­ins og þar af leið­andi minni umsvif og minni fram­leiðsla. Í kjöl­farið minnk­aði umfang frakt­flutn­inga á heims­vísu umtals­vert.

Eft­ir­spurn eftir hlífð­ar­bún­aði rauk aftur á móti upp úr öllu valdi en slíkar vörur eru að langstærstum hluta fram­leiddar í Kína. Verk­smiðjur þar í landi juku því fram­leiðslu sína á þessum vörum og þær voru fluttar út um allan heim. Þegar búið var að afferma hlífð­ar­bún­að­inn í höfnum víða um heim söfn­uð­ust gám­arnir vegna þess hve mikið útflutn­ingur hafði dreg­ist saman. Þetta olli miklum gáma­skorti í Kína enda var útflutn­ingur þaðan með mesta móti.

Hafa fyrirvara á og kaupa meira af nauðsynjum

Einka­neysla breytt­ist líka tals­vert í far­aldr­inum. Fólk varði minni pen­ingum í alls kyns neyslu vegna sam­komu­tak­mark­ana og miklu meiri tíma heima. Peningum sem ann­ars hefði verið varið í ferða­lög, á veit­inga­húsum eða börum var nú eytt í alls kyns var­an­legar neyt­enda­vörur á borð við hús­gögn, raf­tæki og bús­á­höld. Hafnir Banda­ríkj­anna hrein­lega fyllt­ust af flutn­ingagámum og kostn­aður af skipa­flutn­ingum milli Kína og Banda­ríkj­anna tífald­að­ist á skömmum tíma.

Á sama tíma áttu banda­rísk fyr­ir­tæki í erf­ið­leikum með að ráða fólk til vinnu. Ein birt­ing­ar­mynd þess vanda­máls var skortur á vöru­bíl­stjórum til þess að flytja allar þessar vörur frá höfnum Banda­ríkj­anna inn í vöru­hús og versl­anir. Þrátt fyrir að atvinnu­rek­endur hafi hækkað laun áttu fyr­ir­tækin í stök­ustu vand­ræðum með ráðn­ingar. Mikið magn af inn­fluttum varn­ing sat því hrein­lega fastur í höfn­unum.

Hefur keðjuverkandi áhrif

Skortur á einni vöru leiddi svo til þess að ekki var hægt að full­vinna aðra vöru. Til dæmis varð skortur tölvukubbum til þess að hægja veru­lega á bíla­fram­leiðslu í Banda­ríkj­unum. Kjarninn fjall­aði í vik­unni um áhrif þessa á afkomu bíla­fram­leið­enda sem ein­beittu sér að því að fram­leiða dýr­ari bíla fremur en ódýra. [links]

Öll þessi vand­ræði í aðfanga­keðjum heims­ins hafa einnig haft áhrif á neyt­enda­hegðun. Fluttar hafa verið fréttir af þessu hökti frá því í miðjum far­aldri og neyt­endur hafa sjálfir reynslu af því að fá ekki eitt­hvað út í búð sem þá vant­aði. Neyt­endur hafa því í auknum mæli tekið upp á því að panta meira magn af vörum en áður og með miklum fyr­ir­vara.

Sú breyt­ing hefur einnig aukið álag á fram­boðs­hlið neyslu­vara og er einn af lyk­il­þáttum í hækk­andi verð­bólgu, að því er fram kemur í umfjöllun New York Times, í það minnsta vest­an­hafs. Leitt er að því líkum að þetta ástand muni vara út árið 2022 hið minnsta.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár