Færri bílar seldir en hagnaður í hæstu hæðum

Skortur á nauð­syn­legum íhlutum í bíla hefur leitt til breyt­inga á stefnum ýmissa bíla­fram­leið­enda, sem ein­beita sér nú að því að koma þeim tölvukubbum sem eru til skipt­anna í dýr­ari gerðir bíla. Hagnaður stærstu bíla­fram­leið­enda er í hæstu hæðum.

Bílarnir sem rúllað hafa út úr verksmiðjum og til neytenda á síðustu misserum hafa verið dýrari en fyrir faraldurinn.
Bílarnir sem rúllað hafa út úr verk­smiðjum og til neyt­enda á síð­ustu miss­erum hafa verið dýr­ari en fyrir far­ald­ur­inn. Mynd: EPA

Margir bíla­fram­leið­endur hafa á und­an­förnum miss­erum breytt áherslum sínum all­nokkuð og ein­beita sér að því að fram­leiða dýr­ari bíla, fremur en ódýr­ari öku­tæki.

Þessar áherslu­breyt­ingar eru ekki komnar til af góðu, en skortur hefur verið á hálf­leið­urum eða tölvukubbum (e. semiconductors) í heim­inum vegna trufl­ana í fram­leiðslu­keðjum vegna kór­ónu­veiru­far­ald­urs­ins. Stríðið í Úkraínu og áfram­hald­andi veiru­lok­anir í Kína hafa enn ýtt undir hall­ærið.

Það hefur því ein­ungis hægt að fram­leiða tak­mark­aðan fjölda bíla vegna skorts á tölvukubbum og öðrum nauð­syn­legum íhlutum.

Fram­leið­endur ná vart að sinna eft­ir­spurn eftir nýjum bílum vegna allra þess­ara trufl­ana og hafa margir hverjir ein­beitt nú sem áður segir sér að því að nota íhlut­ina sem skortur er á í dýr­ari gerðir öku­tækja.

[adspot]

Þetta sést glögg­lega í afkomu­tölum bíla­fram­leið­end­anna, en í sam­an­tekt sem end­ur­skoð­unar- og ráð­gjafa­fyr­ir­tækið EY vann fyrr á árinu mátti sjá að á síð­asta ári juku 16 stærstu bíla­fram­leið­endur heims sam­an­lagðan hagnað sinn um 168 pró­sent frá árinu 2020 – og nam hann 134 millj­örðum evra.

Hagn­að­ur­inn jókst þetta mikið þrátt fyrir að sala nýrra bíla hafi ein­ungis vaxið um 1,2 pró­sent frá árinu 2020, sem var sögu­lega slappt ár í sölu nýrra bíla.

11 prósent samdráttur í sölu – 19 prósentum meiri hagnaður

Á fyrsta árs­fjórð­ungi þessa árs jókst sam­an­lagður hagn­aður þess­ara sextán stærstu bíla­fram­leið­enda svo enn frekar, eða um 19 pró­sent frá sama tíma­bili í fyrra, þrátt fyrir að fjöldi nýrra seldra bíla hafi dreg­ist saman um heil 11 pró­sent, sam­kvæmt úttekt EY sem birt var í lok maí.

Hagn­að­ur­inn nam 34 millj­örðum evra og er árs­fjórð­ung­ur­inn í því til­liti sá besti í sög­unni hjá bíla­fram­leið­endum.

Í grein­ingu EY á afkomu­tölum fyr­ir­tækj­anna kemur fram að staðan sé mjög góð hjá þeim fram­leið­endum sem gera öðru fremur út á lúx­us­bíla. Volkswagen hagn­að­ist mest allra fram­leið­enda á fyrsta árs­fjórð­ungi og var einnig ofar­lega hvað fram­legð varðar, en fram­legðin var 13,3 pró­sent sam­kvæmt sam­an­tekt EY. Raf­bíla­fram­leið­and­inn Tesla var hins vegar með mesta fram­legð allra fram­leið­enda, eða 19,2 pró­sent.

Komið til að vera?

Nokkrir bíla­fram­leið­endur hafa bein­línis sagt að þeir ætli nú að vinna áfram eftir þeirri sömu stefnu sem skort­ur­inn á tölvukubbum hefur þvingað þá í á und­an­förnum miss­erum. Stefnan er sett á fram­legð fremur en mark­aðs­hlut­deild hjá fyr­ir­tækjum á borð við Mercedes Benz og Volkswagen.

Mercedes Benz til­kynnti í maí að fyr­ir­tækið ætl­aði að breyta vöru­fram­boði sínu nokkuð og leggja aukna áherslu á að fram­leiða lúx­us­bíla. Fram­leiðslu sumra ódýr­ari gerða Benz-bif­reiða verður í stað­inn hætt.

Volkswagen jók hagnað sinn um 75 pró­sent í fyrra, þrátt fyrir að selja um 600 þús­undum færri öku­tæki en árið 2020. Þýski ris­inn, sem hefur um ára­bil verið í slag við Toyota um mestu mark­aðs­hlut­deild fram­leið­enda, ætlar að halda áfram á þess­ari braut og hefur lagt áherslu á að nýta íhlut­ina sem hægt er að fá í lúx­us­bíla sem seldir eru undir merkjum Porsche og Audi fremur en að dæla sömu tak­mörk­uðu íhlutum í ódýr­ari bíla undir merkjum Volkswagen eða fram­leiðslu bíla frá Seat eða Skoda.

Í nýlegri hlað­varpsum­fjöllun Financial Times um þessar svipt­ingar hjá Volkswagen sagði Joe Miller, frétta­rit­ari mið­ils­ins í Frank­furt, að ódýrir bílar væru margir hverjir á leið­inni út af mark­aði á næstu árum.

„Loka­nið­ur­staðan gæti orðið sú, þvert á upp­haf­leg mark­mið Volkswagen um að koma bílum til allra heim­ila, að við gætum séð þessa þróun snú­ast við og að bílar verði á ný lúx­usvara,“ sagði Miller.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár