Mannkynið er „búið að vera“ ef það skiptir ekki um kúrs í kjölfar COVID

„Við erum komin að tíma­mótum í sam­bandi okkar við nátt­úr­una,“ segir Jane Goodall sem barist hefur verið nátt­úru­vernd í sex ára­tugi. Hún segir að nú hafi opn­ast lít­ill gluggi til að gera rót­tækar breyt­ingar svo koma megi í veg fyrir frek­ari hörm­ungar.

Jane Goodall fór á þrítugsaldri inn í skóga Tansaníu og dvaldi þar lengi í hópi simpansa. Rannsóknir hennar gjörbreyttu þekkingu manna á öðrum dýrategundum.
Jane Goodall fór á þrí­tugs­aldri inn í skóga Tansaníu og dvaldi þar lengi í hópi simpansa. Rann­sóknir hennar gjör­breyttu þekk­ingu manna á öðrum dýra­teg­undum. Mynd: EPA

Ef mann­kyn­inu tekst ekki að gera rót­tækar breyt­ingar í mat­væla­fram­leiðslu í kjöl­far far­ald­urs COVID-19 og vegna lofts­lags­breyt­inga er það búið að vera, segir nátt­úru­fræð­ing­ur­inn Jane Goodall. Hún segir far­ald­ur­inn til­kom­inn vegna rányrkju nátt­úru­auð­linda þar sem skógar hafa verið ruddir, dýra­teg­undum útrýmt og vist­kerfi eyðilögð. Stór­tækur land­bún­aður nútím­ans væri jarð­vegur fyrir sjúk­dóma í dýrum sem svo smit­ast yfir í menn og valda skaða í sam­fé­lögum.

„Við höfum kallað þetta yfir okkur sjálf með algjörri van­virð­ingu við dýr og umhverfið,“ segir Goodall sem í um sex ára­tugi hefur barist fyrir verndun nátt­úr­unnar, m.a. simpansa sem hún bjó á meðal í mörg ár.

Nýja kór­ónu­veiran, SARS CoV-2, fór úr leð­ur­blökum í menn, mögu­lega með milli­hýsli, í tengslum við blaut­markað í Wuhan-borg í Kína. Á slíkum mörk­uðum eru seld bæði lif­andi og dauð dýr. „Van­virð­ing okkar við villt dýr og van­virð­ing okkar við búfénað hefur skapað aðstæður fyrir sjúk­dóma að ber­ast í mann­eskjur.“

Goodall hélt erindi á mál­þingi sam­tak­anna Compassion in World Farming sem fram fór á net­inu í vik­unni. Í máli hennar kom fram að nauð­syn­legt væri að hverfa frá stór­tækum verk­smiðju­bú­skap. Minnti hún á að sýkla­lyfja­ó­næmi, sem er stór­kost­leg heilsu­far­sógn, teng­ist verk­smiðju­bú­skap. „Ef við breytum ekki okkar háttum þá er úti um okkur. Við getum ekki haldið svona áfram mikið lengur.“

Fátækt er hættu­leg umhverf­inu því fátækt fólk í dreif­býli á sér stundum engar aðrar bjargir en að ganga á auð­lindir með ósjálf­bærum hætti, t.d. að ryðja skóga. Á þétt­býlli svæðum verður fátækt til þess að fólk neyð­ist til að kaupa ódýr­ustu mat­vöru sem til er – sama hvaða umhverf­is­spjöllum og þján­ingum fram­leiðsla hennar útheimtir. Efn­is­hyggja þeirra sem meira fé hafa svo á milli hand­anna hefur leitt til gríð­ar­legrar ofneyslu og sóunar. Goodall segir að hinir efna­meiri ættu að taka ábyrgð á eigin neyslu. „Við verðum að hætta að kaupa vör­urnar þeirra,“ sagði hún um fyr­ir­tæki sem stunda verk­smiðju­bú­skap og rányrkju.

„Við erum komin að tíma­mótum í sam­bandi okkar við nátt­úr­una,“ sagði hún og bætti við að nú gæf­ist lít­ill gluggi til að gera rót­tækar breyt­ingar svo koma megi í veg fyrir frek­ari hörm­ungar. „Ein sú lexía sem við höfum lært í þessu ástandi er sú að við verðum að breyta hegðun okkar. Vís­inda­menn hafa varað við því að til að kom­ast hjá því að hættu­á­stand skap­ist aftur í fram­tíð­inni verðum við að gera rót­tækar breyt­ingar á matar­æði okkar í átt að plöntu­ríku fæði. Vegna dýr­anna, jarð­ar­innar og heilsu barn­anna okkar.“

Rannsókn FAIRR, sam­taka alþjóð­legra fjár­festa, á tengslum stór­tæks land­bún­aðar og far­sótta, leiddi í ljós að yfir 70 pró­sent stærstu kjöt-, fisk- og mjólk­ur­fram­leið­enda í heim­inum eiga á hættu að fóstra vísa að far­öldrum fram­tíð­ar­innar. Það skýrist af slökum örygg­is­kröfum, of mik­ils þétt­leika dýra og ofnotk­unar á sýkla­lyfjum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár