Hlutfall kvenna í stjórnum fyrirtækja stendur enn í stað

Þrátt fyrir lög um kynja­kvóta stendur hlut­fall kvenna í stjórnum fyr­ir­tækja á Íslandi enn og aftur í stað milli ára.

Hlutfall kvenna í stjórnum fyrirtækja hefur verið um 26% síðustu þrjú ár.
Hlutfall kvenna í stjórnum fyr­ir­tækja hefur verið um 26% síð­ustu þrjú ár. Mynd: Samsett

Í lok árs 2017 voru konur 26,1 pró­sent stjórn­ar­manna fyr­ir­tækja sem greiða laun og skráð eru í hluta­fé­laga­skrá. Hlutfall kvenna í stjórnum fyr­ir­tækja var á bil­inu 21,3 pró­sent til 22,3 pró­sent á árunum 1999 til 2006, hækk­aði svo í 25,5 pró­sent árið 2014 og hefur verið um 26 pró­sent síð­ustu þrjú ár.

[links]Þetta kemur fram í frétt Hag­stof­unnar í dag.

Árið 2017 voru konur 32,6 pró­sent stjórn­ar­manna í fyr­ir­tækjum með 50 laun­þega eða fleiri, líkt og árin tvö þar á undan. Til sam­an­burðar var hlut­fall þeirra í stjórnum stórra fyr­ir­tækja 12,7 pró­sent árið 2007 og 9,5 pró­sent árið 1999, segir í frétt­inni.

Karlar stýra fjármagni á Íslandi

Í úttekt Kjarnans frá febr­úar síð­ast­liðnum kemur fram að karlar sitji nán­ast einir að stýr­ingu fjár­magns á Íslandi.

Af 90 æðstu stjórn­endum við­skipta­banka, spari­sjóða, líf­eyr­is­sjóða, skráðra félaga, óskráðra trygg­inga­fé­laga, lána­fyr­ir­tækja, verð­bréfa­fyr­ir­tækja og -miðl­ana, fram­taks­sjóða, orku­fyr­ir­tækja, greiðslu­stofn­ana, Kaup­hallar og lána­sjóða eru 81 karlar og níu konur. Ofan­greindur hópur stýrir þús­undum millj­arða króna.

[adspot]

Lögin hafa ekki skilað tilteknum árangri

Lög um kynja­kvóta í stjórnum fyr­ir­tækja tóku að fullu gildi hér á landi í sept­­em­ber 2013 og sam­­kvæmt þeim ber fyr­ir­tækjum með 50 eða fleiri starfs­­menn að tryggja að hlut­­fall hvors kyns í stjórn sé ekki undir 40 pró­­sent­­um. Árið eftir það náði hlut­­fall kvenna í stjórnum fyr­ir­tækja af þess­­ari stærð hámarki, fór upp í 33,2 pró­­sent, en hefur síðan farið lækk­­andi aft­­ur. Í árs­lok 2016 var hlut­fallið til að mynda 32,3 pró­sent.

Það er því ljóst að setn­ing þeirra laga hefur ekki skilað þeim árangri sem vænst var. Og úttekt Kjarnans sýnir svart á hvítu að fjölgun kvenna í stjórnum stærri fyr­ir­tækja hefur ekki skipt neinu máli varð­andi fjölgun í lyk­il­stöður í fjár­mála­geir­anum.

Hlutfall kvenna í stjórnum fyr­ir­tækja með færri en 50 laun­þega stendur nán­ast í stað milli ára í 25,7 pró­sentum, sam­kvæmt Hag­stof­unni.

Hlutfall kvenna í stöðu fram­kvæmda­stjóra stendur jafn­framt í stað milli ára, eða í 22,1 pró­sentum, en sam­kvæmt Hag­stof­unni frá 1999 varð hæg­fara aukn­ing fram til árs­ins 2016. Hlutfall kvenna í stöðu stjórn­ar­for­manna var 23,9 pró­sent í lok árs 2017, sem er það sama og árið 2016.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár