Eltihrellir blaðamanns, lúsmý, kröfur flugmanna og svindl á hlutabótaleiðinni

Árið 2020 varð á end­anum allt öðru­vísi en flestir bjugg­ust við þegar það hófst. Mest lesnu frétta­skýr­ingar árs­ins af inn­lendum vett­vangi á Kjarn­anum end­ur­spegla það.

5. Talin hafa breytt launaseðlum til að ná hærri greiðslum úr ríkissjóði vegna hlutabótaleiðar

Alls 160 launa­greið­endur ósk­uðu eftir því að fá að breyta áður til­greindum launa­greiðslum til hækk­unar áður en þeir sóttu um að setja starfs­menn á hluta­bóta­leið­ina. Af þeim ósk­uðu 99 eftir breyt­ingum á launa­greiðslur fyrir jan­úar og febr­úar 2020. Eftir breyt­ing­arnar hækk­uðu upp­gefin laun hóps­ins um alls 114 millj­ónir króna frá því sem áður var. Sam­hliða hækk­uðu greiðslur vegna hluta­bóta­leið­ar­innar til hans um sam­bæri­lega tölu.

Í skýrslu Rík­is­end­ur­skoð­unar um hluta­bóta­leið­ina sagði að leiða mætti líkum „að því að meiri­hluti umræddra breyt­inga byggi á hæpnum grunni og til­gang­ur­inn sé að ná hærri greiðslum úr rík­is­sjóði. Rík­is­end­ur­skoðun telur að svo miklar breyt­ingar veki upp spurn­ingar um ástæður umræddra breyt­inga og að kanna þurfi rétt­mæti þeirra.“

Lesið frétta­skýr­ing­una í heild sinni hér.

4. Enginn hefur sýnt annan eins forkastanlegan ásetning

Í byrjun mars var verið að takast hart á um fyr­ir­hug­aða Haga­vatns­virkjun.

Forseti Ferða­fé­lags Íslands sagði það „hreina ósvífni“ og til marks um „fúsk og fag­legt sið­leysi“ að Íslensk vatns­orka ehf. reyndi að „svindla sér fram hjá fag­legri skoðun“ með því að leggja fram til­lögu að Haga­vatns­virkjun rétt undir þeim stærð­ar­mörkum sem kall­aði á með­ferð í ramma­á­ætlun um vernd og orku­nýt­ingu land­svæða. Á sama tíma væri boðað að aðeins væri um fyrsta áfanga að ræða. Til stæði að stækka virkj­un­ina með því að nýta vatna­svið Jarl­hettu­kvíslar sem væri á milli Lang­jök­uls og móbergs­hryggj­ar­ins Jarl­hetta.

[adspot]Það væri til marks um „fúsk“ að Íslensk vatns­orka ehf., sem áform­aði virkjun við Hagavatn, reyndi að „svindla sér fram hjá“ ramma­á­ætlun.

Lesið frétta­skýr­ing­una í heild sinni hér.

3. Flugmenn vildu að fólk með yfir milljón á mánuði fengi fullar atvinnuleysisbætur

Í mars­mán­uði var verið að sam­þykkja allskyns úrræði til að hjálpa fólki og fyr­ir­tækjum vegna kór­ónu­veiru­far­ald­urs­ins. Ljóst var að rík­is­sjóður yrði að taka á sig miklar byrðar. Eitt þeirra úrræða sem kynnt var til leiks var hin svo­kall­aða hluta­bóta­leið. Félag íslenskra atvinnu­flug­manna skil­aði umsögn um hana þar sem kom fram að það teldi það sann­gjarnt að fólk sem haldi launum frá atvinnu­rek­enda sem yrðu yfir milljón krónur á mán­uði myndu samt fullar atvinnu­leys­is­bætur úr rík­is­sjóði. Ástæðan væri meðal ann­ars sú að hóp­ur­inn hafi greitt svo mikið í skatt.

Lesið frétta­skýr­ing­una í heild sinni hér.

2. Tíu staðreyndir um lúsmý

Mikill vargur hefur herjað á lands­menn síð­ast­liðin sumur en hann leggst einkum á fólk í svefni, sækir inn um opna glugga á kvöldin og nótt­unni á ákveðnum stöðum á suð­vest­ur­horni lands­ins.

Um er að ræða lúsmý og Kjarninn fór yfir þetta fyr­ir­bæri í tíu stað­reyndum þegar ónot vegna þess stóðu sem hæst í sumar.

Lesið frétta­skýr­ing­una í heild sinni hér.

1. Starfsmaður Samherja áreitti Helga Selja mánuðum saman

Starfs­maður Samherja og fyrr­ver­andi rann­sókn­ar­lög­reglu­maður, Jón Óttar Ólafsson, var, allt frá því umfjöllun Kveiks og Stund­ar­innar birt­ist þann 12. nóv­em­ber á síð­asta ári og fram til ágúst­loka 2020, tíður gestur á Kaffi­fé­lag­inu, kaffi­húsi í miðbæ Reykja­víkur, einatt til að hitta á og ná tali af Helga Seljan blaða­manni á RÚV – en þar hitt­ist hópur fólks iðu­lega á morgn­ana til að spjalla um dag­inn og veg­inn. Jón Óttar sendi enn fremur ítrekað skila­boð til Helga, bæði í gegnum SMS og Facebook-reikn­ing eig­in­konu sinnar.

Kjarninn fjall­aði um málið í frétta­skýr­ingu sem birt­ist 27. ágúst. Þar sagð­ist Helgi telja að til­gang­ur­inn væri lík­leg­ast sá að hræða hann eða ógna að ein­hverju leyti.

Lesið frétta­skýr­ing­una í heild sinni hér.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

árið2020

Pistill

Sandra B. Franks

Far­ald­ur­inn yfir­skyggði allt

Á við­burða­ríku ári sem nú er liðið yfir­skyggði Covid-19 far­ald­ur­inn allt annað. Hann reyndi veru­lega á starfs­þrek heil­brigð­is­starfs­manna og ekki síst okkur sjúkra­liða. Mörg okkar voru í fram­lín­unni. Aðrir sjúkra­liðar stóðu vakt­ina í störfum sem ekki voru síður mik­il­væg. Ég er mjög stolt af því hve frá­bær­lega sjúkra­liða­stéttin hefur staðið sig í Covid far­aldr­inum. Hann hefur svo sann­ar­lega beint athygl­inni...

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár