Staðfest smit á Íslandi komin yfir 800

Staðfest smit af kór­ónu­veirunni eru nú orðin 802 hér á landi. Síðustu daga hefur tek­ist að rekja upp­runa margra smita sem áður voru óþekkt. Nú eru aðeins níu­tíu smit af heild­ar­fjöld­anum af ókunnum upp­runa.

Nóg er af sýnatökupinnum á landinu í augnablikinu.
Nóg er af sýna­tökupinnum á land­inu í augna­blik­inu. Mynd: EPA

Staðfest smit af kór­ónu­veirunni eru nú orðin 802 hér á landi. Í gær voru þau 737 og hefur þeim því fjölgað um 65 á einum sól­ar­hring. Í dag eru 9.889 manns í sótt­kví en í gær var fjöld­inn 9.013.

Tæplega 2.500 manns hafa lokið sótt­kví.

Nú liggja fimmtán á sjúkra­húsi vegna COVID-19 sjúk­dóms­ins, þar af tveir á gjör­gæslu Á síð­unni Covid.is kemur fram að 68 manns hafi náð sér af sjúk­dómnum.

Í dag hafa 12.615 sýni verið tekin frá upp­hafi far­ald­urs­ins. Síðasta sól­ar­hring­inn voru 888 sýni tekin, 427 hjá Íslenskri erfða­grein­ingu og 461 hjá sýkla- og veiru­fræði­deild Land­spít­al­ans.

Þess skal getið að mis­munur getur verið á tölum um sýna­tökur ann­ars vegar og fjölfa smita hins vegar sem birtar eru á hverjum degi á Covid.is. Skýr­ingin er sú að birt­ing upp­lýs­inga um smit taka mið af því hvenær sýnið var tekið en ekki hvenær það var greint.

[adspot]

Færri sýni voru um helg­ina og í upp­hafi vik­unnar en dag­ana þar á undan er stefndi í skort á sýna­tökupinnum sem nauð­syn­legir eru til rann­sókn­anna. Í gær komu hins vegar um 2.000 sýna­tökupinnar til lands­ins og í dag fund­ust svo um 6.000 pinnar á veiru­fræði­deild Land­spít­al­ans til við­bótar.

Síðustu daga hefur tek­ist að rekja upp­runa margra smita sem áður voru óþekkt. Nú er upp­runi níu­tíu smita af heild­ar­fjöld­anum ókunnur. Inn­an­lands­smit eru lang­flest eða 459 en smit sem rekja má beint til dvalar erlendis eru 253.

Þrír á tíræðisaldri smitaðir

Enn hafa lang­flest smitin greinst hjá fólki á aldr­inum 40-49 ára eða 191. Þrír á tíræð­is­aldri hafa nú greinst með sjúk­dóm­inn og sextán börn yngri en sextán ára.

Þórólfur Guðnason sótt­varna­læknir hefur ítrekað sagt að tölur um smit muni sveifl­ast milli daga og að það sé eðli­legt í fámenn­inu. Á upp­lýs­inga­fundi almanna­varna í gær greindi hann frá því að um 60 pró­sent allra nýrra smita þann dag­inn hefðu greinst hjá fólki sem var þegar í sótt­kví. Í heild­ina hefur helm­ingur allra smita greinst hjá fólki í sótt­kví.

[links]Samkvæmt spá sem birt var í gær og byggð á þeim gögnum sem þá lágu fyrir er gert ráð fyrir því að á meðan far­ald­ur­inn gengur yfir muni rúm­lega 1.500 manns á Íslandi verða greindir með COVID-19, en talan gæti náð nær 2.300 manns sam­kvæmt svart­sýn­ustu spá.

Gert er ráð fyrir að fjöldi greindra ein­stak­linga með virkan sjúk­dóm nái hámarki í fyrstu viku apríl og verði senni­lega um 1.200 manns, en gæti náð 1.600 manns sam­kvæmt svart­sýn­ustu spá.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

kórónuveiran

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár