Ferðamenn verða látnir greiða fyrir dvöl og fæði í sóttvarnahúsum

Ferða­menn verða rukk­aðir um 10 þús­und krónur fyrir nótt­ina í sótt­varna­húsum yfir­valda frá og með 11. apríl. Rík­is­stjórnin hefur einnig ákveðið að bólu­settir og þeir sem hafa áður fengið COVID-19 þurfi að fara í eina landamæra­skimun.

Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra.
Svandís Svav­ars­dóttir heil­brigð­is­ráð­herra. Mynd: Bára Huld Beck

Rík­is­stjórnin hefur ákveðið að frá og með 11. apríl þurfi þeir ferða­menn sem skikk­aðir verði til að dvelja í sótt­varn­ar­húsi eftir kom­una hingað til lands að greiða 10.000 krónur fyrir her­bergið á nótt. Fæði verður inni­falið og verður her­berg­is­gjaldið hið sama óháð því hversu margir eru að ferð­ast saman og dvelj­ast í her­berg­inu.

Þetta kemur fram í til­kynn­ingu frá heil­brigð­is­ráðu­neyt­inu, en á rík­is­stjórn­ar­fundi í dag var farið yfir þær breyttu reglur sem taka gildi á landa­mærum varð­andi sótt­kví og sýna­töku á fimmtu­dag, 1. apríl.[links]

Eins og áður hefur komið fram munu far­þegar sem koma frá þeim ríkjum sem eru „dökk­rauð“ á korti sótt­varna­stofn­unar Evrópu að dvelja í sótt­varn­ar­húsum við kom­una til lands­ins, á milli landamæra­skim­ana.

Þetta mun eiga við um ferða­menn frá t.d. Belgíu, Frakk­landi, Hollandi, Ítalíu, Noregi, Póllandi, Spáni, Svíþjóð, Tékk­landi og Ung­verja­landi, miðað við núver­andi stöðu far­ald­urs­ins í þessum löndum og fleirum, en 14 daga nýgengi smita í þessum ríkjum er yfir 500 smit á hverja 100.000 íbúa.

Að auki verða börn fædd 2005 og síðar skylduð í sýna­töku á landa­mærum frá og með 1. apríl.

Bólusettir og þeir sem eru með vottorð um fyrri sýkingu fara í eina skimun

Rík­is­stjórnin hefur einnig ákveðið að þeir far­þegar sem koma hingað til lands með bólu­setn­ing­ar­vott­orð eða vott­orð um fyrri sýk­ingu fari í eina sýna­töku við kom­una til lands­ins.

Þetta lagði Þórólfur Guðnason sótt­varna­læknir til að yrði gert, en í minn­is­blaði hans til heil­brigð­is­ráð­herra fyrr í mán­uð­inum sagði að þetta væri lagt til sökum þess að nýlega greind­ist bólu­settur far­þegi sem kom hingað til lands með kór­ónu­veiruna í nef­koki.

[adspot]

Ekki hafi verið sýnt fram á það með óyggj­andi hætti til þessa að bólu­settir og þeir sem sýkst hafi af COVID-19 beri ekki með sér veiruna, þó að það sé talið ólík­legt.

Ferðamönnum gert að forskrá brottfarardag

Stjórn­völd hafa líka ákveðið að grípa til sér­stakra var­úð­ar­ráð­staf­ana á landa­mærum og eru þær tví­þættar, sam­kvæmt til­kynn­ingu ráðu­neyt­is­ins.

Í fyrsta lagi verða gerðar ráð­staf­anir vegna fals­aðra vott­orða. Ef minnsti grunur vaknar um að ein­stak­lingur hafi fram­vísað fölsuðu vott­orði til þess að koma sér hjá sótt­varna­ráð­stöf­unum hér­lendis verður hann skyld­aður í tvö­falda sýna­töku og sótt­kví í sótt­varn­ar­húsi á milli skim­ana.

Í annan stað verður byrjað að fylgj­ast sér­stak­lega með þeim sem ætla að dvelja í stuttan tíma á Íslandi. Ferða­mönnum verður gert skylt að for­skrá brott­far­ar­dag frá Íslandi ef hann liggur fyrir og ef dval­ar­tím­inn er skemmri en sem nemur áskildum tíma í sótt­kví verður það „kannað sér­stak­lega“.

Stjórn­völd telja „enda hætt við að við­kom­andi muni ekki fylgja reglum um sótt­kví.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár