Þórólfur leggur til að bólusettir verði skimaðir við komuna

Þórólfur Guðnason sótt­varna­læknir leggur til að bólu­settir verði skimaðir einu sinni við kom­una til lands­ins. Ekki hefur verið tekin afstaða til þess­arar til­lögu í rík­is­stjórn­inni.

Þórólfur Guðnason sóttvarnalæknir.
Þórólfur Guðnason sótt­varna­læknir. Mynd: Almannavarnir

Sótt­varna­læknir hefur lagt til við heil­brigð­is­ráð­herra að ein­stak­lingar sem fram­vísa vott­orðum á landa­mærum, um ýmist bólu­setn­ingu eða fyrri sýk­ingu COVID-19, verði látnir und­ir­gang­ast eina skimun gegn COVID-19 er þeir koma til lands­ins.

Ekki er búið að taka afstöðu til þess hvort farið verði að ráðum sótt­varna­læknis hvað þetta varðar, en sam­kvæmt því sem fram kemur í til­kynn­ingu frá heil­brigð­is­ráðu­neyt­inu verður fjallað um þessa til­lögu í ráð­herra­nefnd og rík­is­stjórn í vik­unni.[links]

Í minn­is­blaði Þórólfs til ráð­herra segir að þetta sé lagt til sökum þess að fyrir nokkrum dögum hafi bólu­settur far­þegi greinst með kór­ónu­veiruna í nef­koki. Ekki hafi verið sýnt fram á það með óyggj­andi hætti til þessa að bólu­settir og þeir sem sýkst hafi af COVID-19 beri ekki með sér veiruna, þó að það sé talið ólík­legt.

„Þetta fyr­ir­komu­lag mun hjálpa við að skera úr um þetta atriði og á sama tíma lámarka áhætt­una á að veiran ber­ist hingað til lands. Þetta er sér­stak­lega mik­il­vægt á þess­ari stundu þar sem að far­ald­ur­inn er í miklum vexti víð­ast hvar og ný afbrigði veirunnar eru að koma fram. Á þess­ari stundu er óljóst hvort þessi nýju afbrigði sleppi undan vörnum núver­andi bólu­efna eða fyrri sýk­inga,“ segir í minn­is­blaði Þórólfs.

Ekki öll vottorð utan verði viðurkennd

Sótt­varna­læknir lagði einnig til í minn­is­blaði sínu að tíma­bundið verði ein­ungis tekin gild vott­orð um fyrri sýk­ingu eða bólu­setn­ing­ar­vott­orð frá löndum innan Evrópska efna­hags­svæð­is­ins (EES), Banda­ríkj­unum, Bret­landi og Kanada.

[adspot]

Ekki er heldur búið að taka afstöðu til þess­arar til­lögu af hálfu rík­is­stjórn­ar­innar. Hún verður rædd í ráð­herra­nefnd og rík­is­stjórn síðar í vik­unni, rétt eins og til­laga Þórólfs um skima bólu­setta og þá sem hafa áður fengið COVID-19 einu sinni við kom­una til lands­ins.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár