Farþegar frá „eldrauðum“ svæðum þurfa að dvelja í sóttvarnahúsum

Ríkið ætlar að tryggja sér meira hús­næði undir sótt­varna­hús. Farþegar sem koma frá þeim svæðum Evrópu þar sem nýgengi smita er hæst munu þurfa að dvelja þar á milli landamæra­skim­ana. Sótt­varna­læknir lagði til að flestir eða allir færu í sótt­varna­hús.

Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra.
Svandís Svav­ars­dóttir heil­brigð­is­ráð­herra. Mynd: Bára Huld Beck

Farþegar sem koma frá þeim eða dvalið hafa á þeim svæðum í Evrópu þar sem 14 daga nýgengi COVID-19 smita er yfir 500 á hverja 100.000 íbúa þurfa að fara í sótt­varn­ar­hús og dvelja þar á milli fyrstu og ann­arrar skimunar á landa­mærum, nema þeir hafi vott­orð um bólu­setn­ingu eða fyrra smit. Reglu­gerð um þetta á að taka gildi 1. apríl, sam­kvæmt því sem fram kemur á vef stjórn­ar­ráðs­ins.

Þetta sagði Svandís Svav­ars­dóttir heil­brigð­is­ráð­herra við bæði Rík­is­út­varpið og Bylgjuna eftir rík­is­stjórn­ar­fund í dag. Á rík­is­stjórn­ar­fundi dags­ins var einnig sam­þykkt að fara að ráðum sótt­varna­læknis um að byrja að taka sýni úr börnum fæddum eftir árið 2005 á landa­mærum, en það hefur ekki verið gert til þessa.

Breyt­ing­arnar á landa­mær­unum lúta að þeim svæðum eða ríkjum í Evrópu þar sem far­ald­ur­inn er í hvað hæstum hæðum, en þau svæði eru merkt eldrauð á korti Sótt­varna­stofn­unar Evrópu, ECDC.

Einnig munu þessar breyt­ingar eiga við um grá svæði á kort­inu, þar sem upp­lýs­ingar um nýgengi skortir.

Stórir hlutar Evrópu eru dimm- eða eldrauðir að lit á nýjasta korti ECDC, sem sjá má hér að ofan. Meðal ann­ars eru það stórir hlutar Sví­þjóðar, Póllands, Ung­verja­lands, Tékk­lands og Ítalíu og sömu­leiðis svæði í Norður-Frakk­landi umhverfis París.

Sóttvarnalæknir lagði til að flestir eða allir færu í sóttvarnahús

Þórólfur Guðnason sótt­varna­læknir lagði til í minn­is­blaði sínu að víð­tækt sam­ráð yrði haft við landamæra­verði, lög­reglu, almanna­varnir, Sjúkra­trygg­ingar og Rauða kross­inn um hvort hægt væri að skylda flesta eða alla þá sem hingað ferð­ast til að dvelja í sér­stöku hús­næði á meðan sótt­kví eða ein­angrun stæði.

[adspot]

„Í þessu hús­næði yrði komið á öfl­ugu eft­ir­liti með að allir haldi þær leið­bein­ingar sem í gildi eru. Ástæðan fyrir þess­ari til­lögu er sú að í ljós hefur komið að í mörgum til­fellum er með­ferð­ar­heldni í sótt­kví hjá þeim sem hingað koma ábóta­vant. Þetta hefur leitt til frek­ari smita og jafn­vel til lít­illa hóp­sýk­inga sem auð­veld­lega hefðu getað þró­ast í stærri far­aldra,“ segir í minn­is­blaði Þórólfs.

Leið­rétt­ing: Þegar fréttin fór fyrst í loftið sagði að Bretland væri grátt svæði á kort­inu og allir þaðan yrðu skikk­aðir í sótt­varna­hús. Bretland er vissu­lega grátt, en er þó ekki í þeim gráa flokki þar sem upp­lýs­ingar um nýgengi skortir.

Hvað Bretland varðar er enn ferða­bann í gildi þar til 26. mars, en þá verður að óbreyttu opnað á að bólu­settir Bretar geti ferð­ast til Íslands.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár