Sigmundur Davíð: Góð staða getur hratt breyst til hins verra

Formaður Mið­flokks­ins segir að Íslend­ingar gangi nú í gegnum mjög krítíska tíma. „Ákvarð­anir skipta alltaf máli en þær skipta óvenju­lega miklu máli núna.“

Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, formaður Miðflokksins.
Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son, for­maður Mið­flokks­ins. Mynd: Bára Huld Beck

Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son, for­maður Mið­flokks­ins, seg­ist vera mjög bjart­sýnn á fram­tíð íslensks sam­fé­lags og miklu bjart­sýnni en hann var fyrir ekki svo löngu. „Ég hafði veru­legar áhyggjur af því hvert stefndi fyrir nokkrum vikum síðan. Nú er ég miklu bjart­sýnni en allt veltur á því að ákvarð­ana­takan verði í lagi því að ég hef tekið eftir því, þrátt fyrir allt þetta í sam­bandi við kerfið og að aðrir stjórni en stjórn­mála­menn, að þegar stjórn­mála­menn koma með stefnu og fylgja henni eftir þá er hægt að gera mjög stórar breyt­ingar sem skipta máli. Þess vegna er nið­ur­staðan hjá mér í bili að ef við fylgjum skyn­sam­legri stefnu hér sé fram­tíðin mjög björt á Íslandi.“

[links]Þetta kemur fram í ítar­legu við­tali Kjarnans við Sigmund Davíð sem birt­ist um helg­ina en rætt var við alla for­menn stjórn­ar­and­stöðu­flokk­anna um hvernig þeir sæju fyrir sér fram­tíð íslensks sam­fé­lags og efna­hags­lífs.

Hann segir jafn­framt að auð­vitað verði alltaf gerð ein­hver mis­tök en ef menn gera of mörg mis­tök við stjórn lands­ins eða eft­ir­láta ein­hverjum öðrum en almenn­ingi að stjórna þá geti hlut­irnir farið mjög illa og góð staða hratt breyst til hins verra.

Þannig séu Íslend­ingar á mjög krítískum tíma. „Ákvarð­anir skipta alltaf máli en þær skipta óvenju­lega miklu máli núna.“

[adspot]

Kjósandi þarf að geta valið milli ólíkra stefna

Sig­mundur Davíð endar á því að segja að hann sé mik­ill lýð­ræð­is­sinni. „Ef maður trúir því raun­veru­lega að almenn­ingur sé best til þess fall­inn að taka ákvarð­anir um eigin fram­tíð og hvernig land­inu sé stjórnað þá þarf að vera beint sam­band þarna á milli. Þú þarft, í kosn­ingum, að finna að það skipti ein­hverju máli hvernig atkvæði þínu er varið og þú þarft að hafa val um ólíka stefnu en ekki ein­hverja ólíka karakt­era sem kom­ast í gegnum kjör­tíma­bilið án þess að verða of umdeildir,“ segir hann.

„Þá lendir þú í því að við þarna hinum megin,“ segir hann og bendir á Alþing­is­húsið, „séum stöðugt með skít­kast út í hvort annað í stað­inn fyrir að deila um grund­vall­ar­at­riði og kjós­endur geti síðan valið á milli.“

Hægt er að lesa við­talið í heild sinni hér.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár