Heimild til að skylda ferðamenn í sóttvarnarhús samþykkt á Alþingi

Einn þing­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins greiddi atkvæði gegn frum­varpi um heim­ild til að skikka fólk sem hingað kemur frá útlöndum í sótt­varna­hús. Tveir ráð­herrar rík­is­stjórn­ar­innar voru fjar­ver­andi atkvæða­greiðsl­una sem fór fram á fimmta tím­anum í nótt.

22 þingmenn sátu hjá og ellefu voru fjarverandi atkvæðagreiðsluna í nótt.
22 þing­menn sátu hjá og ell­efu voru fjar­ver­andi atkvæða­greiðsl­una í nótt. Mynd: Birgir Þór Harðarson

Lög sem heim­ila heil­brigð­is­ráð­herra með reglu­gerð, að feng­inni til­lögu sótt­varna­læknis, að skylda ferða­mann sem kemur frá háá­hættu­svæði kór­ónu­veirunnar um að dvelja í sótt­kví eða ein­angrun í sótt­varna­húsi voru sam­þykkt á Alþingi á fimmta tím­anum í nótt með 28 atkvæðum. Einn þing­maður greiddi atkvæði gegn frum­varp­inu, Sigríður Á. Andersen, þing­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins. 23 þing­menn greiddu ekki atkvæði.

[links]Í þeim hópi var Birgir Ármanns­son, þing­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins. Ellefu þing­menn voru fjar­ver­andi atkvæða­greiðsl­una, m.a. tveir ráð­herrar, þau Þórdís Kolbrún Gylfa­dóttir Reyk­fjörð, ráð­herra ferða­mála, og Guð­laugur Þór Þórð­ar­son, utan­rík­is­ráð­herra. Full­trúar minni­hlut­ans lögðu fram breyt­inga­til­lögur sem allar voru felldar í atkvæða­greiðslu. Fundur vel­ferð­ar­nefndar vegna máls­ins dróst mjög á lang­inn í gær. Til stóð að hefja aðra umræðu kl. 21.30 en af því varð ekki og hófst hún ekki fyrr en hálf þrjú í nótt. Sú þriðja og síð­asta hófst svo 4.18 og lauk með atkvæða­greiðslu um klukkan hálf fimm í morgun.

Samkvæmt lög­unum er sótt­varna­lækni heim­ilt að veita und­an­þágu frá því að skylda ferða­mann í sótt­kví sýni hann með full­nægj­andi hætti fram á að hann muni upp­fylla öll skil­yrði sótt­kvíar eða ein­angr­unar í hús­næði á eigin vegum.

[adspot]

Að feng­inni til­lögu sótt­varna­læknis skal ráð­herra í reglu­gerð skil­greina háá­hættu­svæði og við skil­grein­ing­una er m.a. heim­ilt að líta til for­sendna um nýgengi smita á til­teknu svæði og til útbreiðslu mis­mun­andi afbrigða kórór­un­veirunnar. Einnig er heim­ilt að skil­greina til­tekið land sem háá­hættu­svæði enda þótt ein­ungis afmark­aður hluti þess upp­fylli skil­greind skil­yrði í reglu­gerð.

Þá er dóms­mála­ráð­herra heim­ilt með reglu­gerð með að feng­inni til­lögu sótt­varna­læknis, að kveða á um að útlend­ingum sem koma frá eða dvalið hafa á háá­hættu­svæði, eða svæði sem full­nægj­andi upp­lýs­ingar liggja ekki fyrir um, sé óheim­ilt að koma til lands­ins þrátt fyrir að þeir upp­fylli almenn komu­skil­yrði lag­anna og reglu­gerðar um för yfir landa­mæri. Í reglu­gerð­inni er heim­ilt að kveða á um und­an­þágur frá banni við komu til lands­ins, m.a. vegna búsetu hér á landi og brýnna erinda­gjörða.

Báðar laga­breyt­ing­arnar eru til bráða­birgða og gilda frá deg­inum í dag og til 30. júní.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár