Legókubbarnir verða grænni

Danski leik­fanga­fram­leið­and­inn Lego Group, sem fram­leiðir hina geysi­vin­sælu legókubba, seg­ist hafa stigið eitt skref til að því mark­miði sínu að fram­leiða allar vörur sínar úr sjálf­bærum efnum fyrir árið 2030.

Hægt er að nota plast úr eins lítra flösku til að búa til tíu legókubba.
Hægt er að nota plast úr eins lítra flösku til að búa til tíu legókubba. Mynd: Lego Group

Loksins hefur danski leik­fanga­fram­leið­and­inn Lego Group afhjúpað legókubb sem margir hafa lengi beðið eftir: Kubb úr end­urunnu plasti. Í til­kynn­ingu frá fyr­ir­tæk­inu segir að plastið sé búið til úr plast­flöskum og að það stand­ist gæða- og örygg­is­kröfur fyr­ir­tæk­is­ins. Eins lítra plast­flaska undan gos­drykk eða öðrum drykkjum, nægir til að búa til 10 legókubba (2 x 4).

Aðeins er um frum­út­gáfu að ræða og ein­hver bið verður á því að legó úr end­urunnu plasti komi almennt á markað. Skýr­ingin á bið­inni löngu segir fyr­ir­tækið m.a. þá að það vilji aðeins nota efni sem hafa hlotið vottun lyfja­stofn­anna beggja vegna Atl­ants­hafs­ins. Þá segir fyr­ir­tækið áskorun fel­ast í því að búa til ný efni sem stand­ist álags­próf, end­ingu og gæða­við­mið og upp­fylli þar með kröfur neyt­enda. Enn á eftir að gera frek­ari próf­anir og ef þær ganga vel er stefnt að til­rauna­fram­leiðslu eftir í fyrsta lagi ár.

Lego Group hefur sett sér það mark­mið að allar fram­leiðslu­vörur fyr­ir­tæk­is­ins verði úr „sjálf­bærum“ efnum fyrir árið 2030. Nýi legókubbur­inn er sagður áfangi á þeirri veg­ferð. Í fyrra ákvað fyr­ir­tækið að hætta að pakka vörum sínum í einnota plast heldur nota pappír utan um þær.

Legókubbar ganga oft á milli barna (og full­orð­inna) í fleiri ár. En slit­þolið er líka ástæða þess að kom­ist þeir út í nátt­úr­una og að lokum ofan í sjó geta þeir velkst þar um í jafn­vel 1.300 ár, að því er fram kom í rann­sókn sem gerð var við Plymouth-háskóla í fyrra. Vís­inda­menn­irnir rann­sök­uðu hversu langan tíma það tekur þessi vin­sælu leik­föng að brotna niður í haf­inu. Og þetta var nið­ur­staðan.

Til rann­sókn­ar­innar not­uðu þeir m.a. legókubba sem rekið höfðu á fjörur í suð­vest­ur­hluta Englands. Á ára­tug hafa nátt­úru­vernd­ar­sam­tök í Cornwall tínt rusl úr fjör­unum og flokkað, m.a. legókubba. Þessir veðr­uðu kubbar voru m.a. vigtaðir og greindir með ýmsum tækjum og tólum og bornir saman við ónot­aða kubba frá átt­unda og níunda ára­tugnum. Með þeim hætti og fleiri aðferðum komust vís­inda­menn­irnir að því að legókubbur getur þvælst um heims­ins höf í 100-1.300 ár áður en hann brotnar niður.

„Legó er eitt vin­sælasta leik­fang heims og hluti af vin­sæld­unum felst í end­ing­unni,“ segir Andrew Turner, pró­fessor í umhverf­is­fræði, sem leiddi rann­sókn­ina. „Legókubbar eru sér­stak­lega hann­aðir til að þola mikið álag í leik svo það ætti ekki að koma sér­stak­lega á óvart að þótt þeir séu í sjónum í ára­tugi veðrist þeir ekki mikið.“

Hann segir það engu að síður hafa komið á óvart hversu lítið sjái á kubbum eftir ár og ára­tugi í söltu vatn­inu. „Þetta minnir okkur enn og aftur á mik­il­vægi þess að fólk losi sig við not­aða hluti með við­eig­andi hætti til að tryggja að þeir valdi ekki vanda í umhverf­inu.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár