Sjálfstæðisflokkur og Píratar bæta vel við sig en Vinstri græn tapa umtalsverðu fylgi

Stjórn­ar­flokk­arnir mæl­ast með minna sam­eig­in­legt fylgi en þeir fengu í kosn­ing­unum í fyrra­haust. Tveir mæl­ast í kjör­fylgi en einn, Vinstri græn, langt undir því. Tveir stjórn­ar­and­stöðu­flokkar hafa bætt við sig sam­tals 7,3 pró­sentu­stigum síðan í haust.

Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn bætir við sig 2,6 pró­sentu­stigum milli mán­aða og mælist langstærsti flokkur lands­ins sam­kvæmt nýrri könnun Maskínu með 24,5 pró­sent fylgi. Píratar eru hins vegar sá flokkur sem bætir mest við sig milli mán­aða og fara úr 10,3 í 13,7 pró­sent, sem er fylg­is­aukn­ing upp á 3,4 pró­sentu­stig frá því í febr­úar.

Þá bætir Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn við sig 0,3 pró­sentu­stigum og mælist með 17,2 pró­sent fylgi og Mið­flokk­ur­inn fer úr 3,9 í 4,3 pró­sent, sem myndi senni­leg­ast ekki nægja honum til að ná inn manni.

Aðrir flokkar dala milli mán­aða. Mest hrynur af fylgi Vinstri grænna, flokks Katrínar Jak­obs­dóttur for­sæt­is­ráð­herra, en það lækkar um 3,6 pró­sentu­stig niður í 9,3 pró­sent. Það þýðir að Vinstri græn hafa tapað um 28 pró­sent af fylgi sínu á einum mán­uði og flokk­ur­inn mælist sem stendur fimmti stærsti flokkur lands­ins. Sam­fylk­ingin fer úr 13,4 í 12,1 pró­sent og tapar 1,3 pró­sentu­stigi milli kann­ana.

[adspot]Viðreisn dalar líka milli mán­aða, alls um 1,2 pró­sentu­stig, niður í 8,5 pró­sent. Flokkur fólks­ins yrði minnsti flokk­ur­inn á þingi ef kosið yrði í dag, og nið­ur­stöð­urnar yrðu í takt við könnun Maskínu, með 7,1 pró­sent fylgi sem er aðeins minna en flokk­ur­inn mæld­ist með í febr­úar. Sós­í­alista­flokk­ur­inn stendur svo nán­ast í stað og mælist með 3,4 pró­sent fylgi en var með 3,5 pró­sent fyrir mán­uði síðan.

Sameiginlegt fylgi stjórnarandstöðuflokka eykst

Stjórn­ar­flokk­arnir þrír voru með 51,7 pró­sent sam­an­lagt fylgi í febr­úar en fengu 54,3 pró­sent atkvæða í kosn­ing­unum í fyrra­haust. Nú mælist fylgið hins vegar 51 pró­sent og lækkar því milli mán­aða.

Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn er eini stjórn­ar­flokk­ur­inn sem mælist yfir kjör­fylgi, en ein­ungis um 0,1 pró­sentu­stig. Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn mælist með 0,1 pró­sentu­stigi minna fylgi en hann fékk í kosn­inga­sigri sínum í haust en Vinstri græn mæl­ast 3,3 pró­sentu­stigum undir kjör­fylgi.

Stjórn­ar­and­stöðu­flokk­arnir fimm mæl­ast með 45,7 pró­sent fylgi. Píratar hafa bætt mest við sig það sem af er kjör­tíma­bili eða 5,1 pró­sentu­stigi. Það þýðir að fylgi Pírata mælist nú 59 pró­sent meira en það var þegar síð­ast var kosið.

Þrír stærstu stjórn­ar­and­stöðu­flokk­arnir sam­kvæmt könnun Maskínu: Píratar, Sam­fylk­ing og Viðreisn, mæl­ast sam­an­lagt með 34,3 pró­sent fylgi en fengu 26,8 pró­sent í kosn­ing­unum í sept­em­ber. Þeir hafa því bætt við sig 28 pró­sent fylgi á rúmum fimm mán­uðum.

Píratar stórir í Reykjavík

Sveit­ar­stjórn­ar­kosn­ingar fara fram í maí næst­kom­andi. Í könnun Maskínu er fylgi flokka brotið niður eftir búsetu. Þar kemur fram að Í höf­uð­borg­inni Reykja­vík, þar sem stefnir í harða bar­áttu um borg­ar­stjórn­ar­meiri­hluta, mælist Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn stærstur með 20,6 pró­sent fylgi. Píratar mæl­ast hins vegar nán­ast jafn stórir, en 19,9 pró­sent borg­ar­búa segj­ast styðja þá. Sam­fylk­ingin nýtur stuðn­ings 17,5 pró­sent íbúa Reykja­víkur, Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn 10,4 pró­sent, Vinstri græn 9,3 pró­sent og Viðreisn 8,9 pró­sent. Þá segj­ast 4,5 pró­sent borg­ar­búa að þeir myndu kjósa Sós­í­alista­flokk­inn ef kosið yrði til þings í dag en 3,1 pró­sent Mið­flokk­inn.

Vert er að taka fram að könnun Maskínu var um afstöðu fólks til fram­boðs stjórn­mála­flokka til Alþingis, ekki borg­ar­stjórnar.

Könnunin fór fram dag­ana 17. febr­úar ti l9. mars 2022 og voru 2.333 svar­endur sem tóku afstöðu til flokks.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

kosningar2021

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár