„Fjandsamleg yfirtaka“ en ekki framfaraskref

Þrír fyrr­ver­andi for­stöðu­menn rík­is­stofn­ana setja fram marg­vís­lega gagn­rýni á áform um sam­ein­ingu stofn­ana sem heyra undir umhverfis-, orku- og lofts­lags­ráðu­neytið. Þeir tala um „frá­leit“ áform sem gætu haft „skelfi­legar afleið­ingar“ í för með sér.

Ráðherrann
Ráð­herr­ann Guð­laugur Þór Þórð­ar­son vill að tíu stofn­anir umhverfis-, orku- og lofts­lags­ráðu­neytis hans verði sam­ein­aðar í þrjár. Mynd: Heimildin / Davíð Þór

Guð­laugur Þór Þórð­ar­son, umhverfis-, orku- og lofts­lags­ráð­herra hefur kynnt áform um að sam­eina tíu stofn­anir sem heyra undir ráðu­neyti hans í þrjár. Til­gang­ur­inn er „að bæta þjón­ustu, auka skil­virkni og auð­velda staf­ræna þróun rík­is­ins“.

Vatna­jök­uls­þjóð­garður, Þjóð­garð­ur­inn á Þing­völlum, nátt­úru­vernd­ar­svið Umhverf­is­stofn­unar og Minja­stofnun yrðu sam­ein­aðar í Nátt­úru­verndar- og minja­stofnun.

Nátt­úru­fræði­stofnun Íslands, Nátt­úru­rann­sókna­mið­stöðin við Mývatn, Veð­ur­stofa Íslands, Land­mæl­ingar Íslands og Íslenskar orku­rann­sóknir (ÍSOR) yrðu sam­einuð í Nátt­úru­vís­inda­stofnun og Orku­stofnun og Umhverf­is­stofnun í svo­nefnda Lofts­lags­stofnun. (Uppfært: Ráðu­neytið tók þá ákvörðun í júlí að hverfa frá áformum um að sam­eina Veð­ur­stofu Íslands og ÍSOR öðrum stofn­unum. Var það gert eftir að umsagnir um áformin lágu fyrir.)

Færri og stærriMarkmið sam­ein­ing­ar­innar yrði að búa til kröft­ugri og stærri stofn­anir, segir ráðu­neytið.

Und­ir­bún­ingur hefur staðið í ár „við að greina tæki­færi til end­ur­skipu­lagn­ingar“ og er stefnt að því að leggja fram frum­varp …

Kjósa
45
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir (2)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • SÞH
    Sævar Þór Halldórsson skrifaði
    Bendi á að það er búið að ákveða að sameina ekki Veðurstofuna og Ísor við NÍ, Ramý og LMÍ.
    https://www.stjornarradid.is/efst-a-baugi/frettir/stok-frett/2023/07/04/Sameining-Landmaelinga-Islands-Natturufraedistofnunar-Islands-og-Ramy/
    2
  • MB
    Magnús Bjarnason skrifaði
    Það er auðvitað skylda kjörinna fulltrúa að gæta þess að skattpeningar séu notaðir á sem hagkvæmastan hátt. En Það á að vera hagkvæmasti háttur, sem völ er á til þess að ná fram markmiðum viðkomandi laga. Kjörnir fulltrúar ættu því frekar að hafa í huga hvort hægt sé að leggja meira fé í að ná fram markmiðum laganna og reyna að finna leiðir til þess, frekar en að sniðganga þau markmið og spara fé með því.
    -1
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár