Telur íslenskt samfélag búa við ákveðna lág-kolefna tálsýn

Pró­fessor við umhverfis- og bygg­ing­ar­verk­fræði­deild í HÍ segir að íslenskt sam­fé­lag „útvisti“ meiri­hluta los­unar gróð­ur­húsa­loft­teg­unda og búi þannig við ákveðna lág-kolefna tál­sýn.

Jukka Heinonen, pró­fessor við umhverfis- og bygg­ing­ar­verk­fræði­deild í Háskóla Íslands, hefur kannað hvernig neyslu­drifið kolefn­is­spor Íslend­inga dreif­ist um heims­byggð­ina. Í rann­sókn Jukka frá árinu 2017 kemur fram að við útreikn­ing á kolefn­is­spori neyslu íslenskra heim­ila hafi gögn um útgjöld þeirra meðal ann­ars verið tengd við erlendan gagna­banka um vist­spor landa.

Í ljós kom að með­al­ár­skolefn­is­spor vegna neyslu íslenskra heim­ila reynd­ist áþekkt því sem ger­ist meðal þjóða Evr­ópu­sam­bands­ins – þrátt fyrir sér­stöðu Íslands í orku­málum. Sam­göngur, matur og vörur voru þeir flokkar sem voru ábyrgir fyrir stærstum hluta útblást­urs íslenskra heim­ila.

Rann­sóknin sýndi einnig að um 71 pró­sent útblást­urs heim­ila var vegna inn­fluttra vara og reyn­ist útblást­urs­byrðin vegna neyslu íslenskra heim­ila mest í þró­un­ar­ríkjum. „Nið­ur­stöð­urnar sýna að þörf er á víð­tæk­ari nálgun á útreikn­ingi á útblæstri gróð­ur­húsa­loft­teg­unda en áður auk þess sem stefnu­mótun verður að taka mið af honum, bæði á Íslandi og ann­ars staðar í heim­inum. Rann­sóknin getur því nýst til fram­tíðar fyrir vel­meg­andi þjóðir sem vinna að lág­mörkun útblást­urs,“ sagði Jukka þegar nið­ur­stöður rann­sókn­ar­innar voru kynntar á sínum tíma.

Matvæli stór hluti af losun Íslendinga

Jukka segir í sam­tali við Kjarnann að rann­sóknin eigi enn vel við í dag. „Íslenskt sam­fé­lag „útvistar“ meiri­hluta los­unar og býr við ákveðna lág-kolefna tál­sýn. Þetta á jafn­vel enn betur við í Reykja­vík, þar sem lítil fram­leiðsla á sér stað. Borgin til­kynnir mjög litla losun en áhrif hennar eru mjög mikil í alþjóð­legum sam­an­burði.“

[links]Hann bendir á að mat­væli séu stór hluti af losun Íslend­inga og eru þau í reynd í öðru sæti á eftir sam­göngum. „Þessi losun á sér stað að mestum hluta utan land­stein­anna og í flutn­ingi mat­væl­anna til Íslands. Á Íslandi fer fram kjöt­fram­leiðsla, sem losar mikið sama hvar. Það er algengur mis­skiln­ingur að til dæmis íslenska lambið sé á ein­hvern hátt fram­leitt sjálf­bært þar sem raunin er sú að lofts­lags­á­hrifin eru ótengd stað­bundnum aðstæðum á Íslandi.“

Hann telur að kolefn­is­spor vegna mat­væla myndi minnka til muna með græn­met­ismið­uðu matar­æði og sér­stak­lega með stað­bund­inni græn­met­is­fram­leiðslu sem kæmi í stað­inn fyrir kjöt­fram­leiðslu.

Losun gróðurhúsalofttegunda jókst milli áranna 2016 og 2017

Samkvæmt upp­lýs­ingum frá Umhverf­is­stofnun jókst losun gróð­ur­húsa­loft­teg­unda sem er á beinni ábyrgð íslenskra stjórn­valda um 2,2 pró­sent milli áranna 2016 og 2017. Upp­lýs­ingar um losun Íslands má finna í skýrslu stofn­unar­innar (National Inventory Report – NIR) um losun gróð­ur­húsa­loft­teg­unda til lofts­lags­samn­ings Sam­ein­uðu þjóð­anna (UN­FCCC) sem birt var þann 15. apríl síð­ast­lið­inn.

Í skýrsl­unni er að finna ítar­legar upp­lýs­ingar um losun gróð­ur­húsa­loft­teg­unda á Íslandi, þróun frá 1990 til 2017, ásamt lýs­ingu á aðferða­fræð­inni sem notuð er til að meta los­un­ina.

Aukn­ing ferða­manna og almenn neysla hefur áhrif

Sam­dráttur í losun var 5,4 pró­sent yfir tíma­bilið 2005 til 2017. Losun gróð­ur­húsa­loft­teg­unda hefur hins vegar verið nokkuð stöðug síðan 2012, þrátt fyrir aðgerðir til að stemma stigu við los­un. Sam­kvæmt Umhverf­is­stofnun má meðal ann­ars reka það til aukn­ingar ferða­manna á Íslandi og hins vegar aukn­ingu almennrar neyslu.

Helstu upp­sprettur sem falla undir beina ábyrgð íslenskra stjórn­valda eru vega­sam­göng­ur, olíu­notkun á fiski­skip­um, iðra­gerj­un, losun frá kæli­m­iðlum og losun frá urð­un­ar­stöð­um.

Fyrir utan fyrr­nefnda losun á beinni ábyrgð íslenskra stjórn­valda tekur skýrslan einnig á losun frá stór­iðju undir við­skipta­kerfi ESB með los­un­ar­heim­ildir (ETS). Árið 2017 féllu 39 pró­sent af heild­ar­losun Íslands undir ETS og var þar 2,8 pró­sent aukn­ing í losun innan kerf­is­ins milli 2016 og 2017, sam­kvæmt frétt Umhverf­is­stofn­un­ar um málið.

Aukin losun frá fólks­bíl­um, málm­fram­leiðslu, kæli­m­iðlum og nytja­jarð­vegi

Heild­ar­losun gróð­ur­húsa­loft­teg­unda frá Íslandi, það er losun á beinni ábyrgð íslenskra stjórn­valda og ETS sam­tals, jókst þar af leið­andi um 2,5 pró­sent milli 2016 og 2017. Þessar tölur inni­halda ekki losun frá land­notk­un, breyttri land­notkun og skóg­rækt (LULUCF). Losun frá LULUCF telur ekki til skuld­bind­inga, þó hún sé metin og gert grein fyrir henni í skýrsl­unni, og er hún þess vegna ekki inni­falin í umfjöllun um heild­ar­losun Íslands. Hins vegar má Ísland telja hluta af kolefn­is­bind­ingu á móti los­un­inni. Flug (al­þjóða- og inn­an­lands) og alþjóða­sigl­ingar telja ekki heldur til skuld­bind­inga.

Meg­in­á­stæður fyrir aukn­ingu í losun milli 2016 og 2017, án land­notk­un­ar, er aukin losun frá fólks­bíl­um, málm­fram­leiðslu, kæli­m­iðlum og frá nytja­jarð­vegi. Þrátt fyrir að heild­ar­los­unin hafi auk­ist milli ára, hefur losun dreg­ist saman frá ákveðnum upp­sprett­um, segir í frétt Umhverf­is­stofn­un­ar. Þar megi nefna sem dæmi losun frá fram­leiðslu­iðn­aði, meðal ann­ars frá fiski­mjöls­verk­smiðj­um, sem hafi dreg­ist saman um 9 pró­sent og losun frá urð­un­ar­stöðum sem hafi dreg­ist saman um 3 pró­sent.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár